My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Saturday, October 30, 2004
Laugardagskvöld - þvottavélin malar - laufin falla af trjánum - þoka - Halloween dótinu skipt út fyrir jólaseríur í búðunum í dag... -Halloween á morgun - skrúðganga og læti og krakkar ganga hús úr húsi hringja bjöllum "Trick or treat !!!" Ég á nú eitthvað lítið sælgæti hérna í húsinu - verður vonandi allt í lagi - og ekki mikið um prakkarastrik.
Búið að vera rosa mikið um að vera hérna megin Atlantshafsins. Um síðustu helgi fékk ég heimsókn frá Íslandi -Gísli vinur minn og Margrét Eir komu og fengu að gista hérna hjá mér í fjórar nætur. Var nú ekki mikið sofið þá daga - farið út að borða og svona skemmtilegt og samt mætti minn nú í alla tíma í skólanum eins og vera ber. Margrét Eir bjó hérna í 6 mánuði áður en hún fór aftur heim til Íslands að leika í Rent og ætlar að reyna fyrir sér aftur í vor. Gísli minn var að koma í fyrsta sinn til USA og fannst bara gaman held ég. New York nokkurn veginn eins og hann átti von á - ALLT ROSA STÓRT!!! Hann átti að vera að syngja hérna með Björk en hann syngur inná nýju plötuna hennar ásamt fleirum úr Schola Cantorum. Svo datt það allt saman uppfyrir en hann ákvað bara að skella sér kallinn þrátt fyrir allt saman. -Ég er rosa feginn að hann gerði það, var gaman að sjá hann hérna. Helgina þar áður hitti ég Auði Karítas frænku mína sem kom hérna í heimsókn ásamt einhverjum vinum sínum. -Hún kom með tösku að heiman með vetrarfötunum mínum í, dún-úlpunni og leðurjakkanum ofl. Sýningin gekk vel þarna um daginn þegar ég var hljóðmaður, gaman að fá að sitja svona í stjórnklefanum og bera annarskonar ábyrgð á því að sýning gangi vel. Núna er ég á fullu að undirbúa sýningu sem verður núna fimmtudag og föstudag við erum 7 með verk á því kvöldi. Ég kláraði verkið mitt síðasta sunnudag og var með æfingu í dag aftur til að hreinsa og lagfæra það sem þurfti að laga. Á mánudaginn er svo fyrsta sviðsæfing - tækniæfing á þriðjudag - aðalæfing á miðvikudag og svo sýningar 2 kvöld. Á laugardeginum er svo Íslandsdagur í Whole Food Market - matvöruverslun með gæðavörur héðan og þaðan úr heiminum - mig langar að reyna að fara þangað - á svo að sjá sýningu um kvöldið (hluti af náminu) og ætla svo að bjóða bekknum mínum hingað heim eftir sýninguna þar sem leikhúsið er í ca 15-20 mínútna göngufjarlægð héðan. Á sunnudaginn ætla ég svo að reyna að sjá Óperukór Reykjavíkur eins og ég held hann heiti núna í Carnegie Hall - Garðar Thor Cortes stjórnar. :)
Þið sjáið að það er nóg að gera hjá mínum ha ?
Það er eiginlega ekki hægt að láta sér leiðast hérna - maður hefur allavega ekki þá afsökun að það sé ekkert að gera - ekkert um að vera... Það er svo margt um að vera að maður er stanslaust að velja og hafna.
Við fengum mið-annar "evaluation" núna í vikunni - þar sem kennararnir okkar skrifa svona hvernig þeim finnst við vera að standa okkur og svona. Var bara allt rosa jákvætt held ég. Eina sem var kanski svona eitthvað var það sem nútímaballettkennarinn minn sagði - "að ég væri með stirt bak og ekki nógu góða stjórn/hreyfingu í bakinu" hehehe mér fannst það nú eiginlega bara fyndið. Hef alltaf verið með stirt bak og held að það fari nú ekkert að breytast mikið úr þessu.
Við skiptum líka um danskennarana núna erum með hvern kennara í 7 vikur og svo er skipt. Þannig fáum við að prófa alla kennara í ákveðinn tíma. Það eru 4 "sett" af kennurum í gangi sem rótera á milli hópa. Sniðugt system hjá þeim. Nýji modernkennarinn er rosa jákvæð pínulítil kona - en alveg jafn kröfuhörð fyrir því. Og nýji ballettkennarinn minn tekur starfinu mjög alvarlega og leggur sig alla fram um að hjálpa hverjum og einum. :)
Ég er alltaf að lofa að skrifa oftar og styttra í hvert sinn en stend aldrei við það hehehehe - ég þarf bara að koma mér upp rútínu hérna. Margt spennandi framundan sko...
Meira um það seinna - ætla að tæma þvottavélina og setja í þurrkarann
bestu kveðjur
Mummi

Saturday, October 16, 2004
Halló halló halló !
Long time no see - sjaldséðir hvítir hrafnar - seint skrifa sumir en skrifa þó... hehehe
Ég verð að biðja lesendur þessarar síðu afsökunar á því hversu langt er um liðið síðan ég skrifaði síðast hérna inn. EN - núna er ég loksins laus frá þessari viku dauðans eins og ég hef svona kallað hana. Síðusta sunnudag var semsagt fyrsta tækniæfing fyrir sýningu "Second Avenue Dance Company" eða SADC. Mér hafði verið falið það verkefni að vera hljóðmaður á þessari sýningu en hérna í skólanum er það þannig að allir þurfa að taka það sem er kallað "Production Crew". Maður fær eina einingu fyrir þetta og er hugsað sem svo að maður kynnist öllum hinum störfunum sem eru í leikhúsinu. Svo voru æfingar á þessu öllu frá klukkan 7 á kvöldin til ca 10-11 mánudag, þriðjudag og miðvikudag og svo sýningar fimmtudag - föstudag og laugardag. Ágæt törn það sem lauk semsagt núna áðan / í kvöld. En þá er því líka lokið og ég þarf ekkert að gera þetta aftur fyrr en á næsta ári. Ekki að mér hafi fundist þetta eitthvað leiðinlegt - þvert á móti. Þetta er bara svolítið mikið eftir fullan skóladag sem byrjar þetta 9-10 á morgnana og er fram til 5-6:30 á kvöldin. OG eiga svo eftir að læra heima þegar þessu öllu sleppir. EN - ég vandi mig þó á það þessa viku að lesa í lestinni - sérstaklega á leiðinni heim. Þar eru 20 mínútur sem annars fóru bara í það að sitja og horfa á fólk á ferðalagi. Þetta snýst voða mikið um að nýta tíma sinn rétt og vel - þá gengur allt svo miklu betur.
Var að hugsa það þegar ég labbaði þvert yfir Manhattan í kvöld til að taka lestina heim (og afsakið orðbragðið) "Æ fokking lov ðis sittí" Það er eitthvað svo gaman að vera hérna - Mér finnst ég vera að fá svo mikla örvun svona andlega - skapandi - borgin bíður uppá svo margt sem veitir manni innblástur til allra hluta. Var með æfingu á verkinu mínu í dag og samdi meira en mínútu á rúmum klukkutíma. Mér fannst það bara nokkuð vel af sér vikið. Ég held ég sé svona smám saman að falla inní þennan margumtalaða ryþma sem er hérna í þessari borg.
jæja - nóg í bili - ætla að reyna að skrifa frekar oftar og styttra
klukkan er líka orðin margt og tími til kominn fyrir mig að fara að sofa...
ég hef frá mörgu að segja sem hefur gerst núna síðan ég skrifaði síðast og ég reyni að læða því að.
Skrifa meira á morgun sunnudag.
bless bless og góða nótt