My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Saturday, May 05, 2007
Jæja - haldiði að maður sé nú duglegur :)
fullt af nýju dóti hérna á síðunni - eins gott að maður fái nú einhver komment núna á þetta fínerí :)

Myndir af útsýninu mínu hérna í Washington Heights hverfinu á Manhattan
Suma morgna þegar ég er snemma á fótum horfi ég á sólina koma upp þarna í norðaustrinu meðan ég borða morgunmatinn - bleikur himinn og alles :)
Hérna sést útsýnið mitt til norðurs
hort til norð-austurs
Suð-austur útsýni...
Horft til suðurs -Brunastiginn er beint fyrir utan hinn herbergis gluggann minn...

Laugardagskvöld og einu sinni sem oftar sit ég bara heima og slappa af -
Síðan ég bloggaði síðast er ég búinn að ganga frá miðanum mínum heim til Íslands núna í næsta mánuði og er dagsetningin semsagt 16.júní, ég held ég lendi þarna rétt eftir miðnætti - Icelandair farin að fljúga tvisvar á dag til New York og ég fer í loftið héðan kl 2 um eftirmiðdaginn. Mér skilst það sé verið að plana mikil veisluhöld um allt land daginn eftir þann sautjánda til að fagna heimkomu minni til Íslands aftur :) hehehe (er það ekki annars rétt skilið hjá mér að sólin komi upp þegar ég vakna?)
Sat hérna og borðaði harðfisk fyrr í kvöld sem hún Gurrý frænka mín kom með færandi hendi fyrir nokkrum vikum - er búinn að vera að spara mér að borða hann. Takk! Þóra og Gunni fyrir það :) Smá svona taste of Iceland - talandi um það hefur ekkert spurst til páskaeggsins góða - einhver tollvörðurinn orðið feitur af því...
Fann annars SKYR :) í Whole Foods í gær - fékk mér tvær dósir og borðaði með bestu lyst. Ekki spurning að ég fari aftur þangað í skyrleiðangur. Hef kíkt eftir því nokkrum sinnum áður en aldrei fundið fyrr en núna...
Robin vinkona mín sem hjálpaði mér að fá vinnuna hjá Equinox segir mér að stjórarnir þar séu ekkert alltof glaðir yfir að missa mig, spyrja hana reglulega hvað þeir geti gert til að fá mig til að vera. Spurðu hana til og með hvort hún héldi að ég hefði áhuga á Manager stöðu hjá þeim... Semsagt sama staða og annarrar manneskjunnar sem réði mig hehehe - ég varð nú bara steinhissa yfir þessu öllu saman - ég vissi svosem að ég væri vel liðinn hjá þeim en fyrr má nú aldeilis rota en dauðrota...
Þetta er vissulega ljúfsárt að vera að flytja héðan aftur heim EN ef ég leita inná við og spyr mig hvað skiptir meira máli þá er það einfaldlega fjölskylda og vinir heima á Íslandi og þó ég hafi eignast fullt af vinum hérna þá er einfaldlega fleira fólk heima sem togar... Að ég tali nú ekki um íbúðina mína blessaða - talsvert meiri þægindi í boði þar heldur en hérna.
Ég ætla að reyna þegar ég er búinn að skrifa þessa færslu að henda hérna inn myndum af útsýninu mínu hérna sem er annsi skemmtilegt. Ætlaði að vera búinn að gera það fyrir löngu síðan...
Hlakka ofsalega mikið til þess að hitta alla aftur heima og núna er bara að reyna sitt besta að njóta þess að dvelja hérna í new york það sem eftir lifir...
Meira síðar
Mumminnsinn