<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Thursday, August 24, 2006

Hilarious parody of bjork by French and Saunders

Aðeins verið að gera grín að henni Björk hehehe - frekar fyndið... Bara smella á vídeóið og spila :)
Smá svona hérna um Rockstar: Supernova...
Verð að viðurkenna að ég hef ekki alltaf horft á þáttinn - en svona það sem ég hef séð þá virðist Magni "okkar" vera að standa sig vel. -Það er í rauninni alveg ótrúlegt hversu margir þættir af svipuðum toga ganga hérna í amerísku sjónvarpi - hver stöðin á fætur annarri reynir að finna upp hjólið á ný og eru þessir þættir allir keimlíkir hver öðrum. Gaman að segja frá því samt að "So You Think You Can Dance" sló öllum þessum þáttum rebba fyrir rass í áhorfi. Það var þáttur sem ég horfði á í hverri einustu viku nema ég hefði eitthvað annað MIKLU mikilvægara að gera. Og það var ekki oft hehehe. En já af hverju fór ég að tala um þetta... Jú - var að lesa New York Times online hérna rétt áðan og þar var grein um alla þessa Making off... Searching for þætti og meðal annars minnst á Rockstar og myndin sem birtist með greininni sést vonandi ef þú smellir hérna. Þarna er hann Magni okkar hehehe
Annars er ótrúlegt hversu margir orðið eru alfarið á móti þessum endalausu raunveruleikaþáttum. Ég sá nýja seríu auglýsta af Survivor (sería 736?) og nýjasta tvistið á þeim bænum er að núna verður þátttakendum skipt upp í lið eftir kynþætti. Fjögur lið - asískt, svart, hvítt og hispanic. Virðist þegar vera farið að vekja mikið umtal því kynþáttamál eru enn í dag pólitískt mál - þarna er verið að etja saman fólki af mismunandi kynþáttum... Soldið fyndið því í myndinni minni einni sem ég er að vonast til að filma núna á næstu 1-2 vikum þá er ég einmitt að nota dansara af þessum sömu 4 kynþáttum en mín hugmynd er meira að fagna fjölbreytileikanum - mér finnst nefnilega frábært að við skulum ekki öll vera eins. New York er sko borg sem virkilega er fjölbreytt - hér býr fólk frá yfir 140 mismunandi löndum, 40% íbúanna eru fædd í öðru landi og samt ná allir að búa saman í sátt og samlyndi. Það kemur auðvitað fyrir að fólki lendir saman en eitt aðalsmerki borgarinnar og íbúanna er umburðarlyndi fyrir því að við erum ekki öll eins. SEM BETUR FER segi ég sko bara - ég held að lífið yrði alveg ofboðslega leiðinlegt ef við værum öll eins.
óver end át
Mummi
jæja - önnur færslan á stuttum tíma... ekkert smá duglegur sko :)
hérna hangir sumarið ennþá inni - hitinn fer þetta upp undir 30°C á daginn og svona -Leiðinlegur fylgifiskur þessa dagana eru samt moskító-flugur - held ég sé með amk 10 bit hingað og þangað um líkamann aðallega handleggjum... Ekki gaman - ég fór og fjárfesti í flugnaspreyi og ræðst nú á þær með algjöru samviskuleysi. Það er annað hvort þær eða ég og mig klæjar víst nóg undan þessum bitum sem ég er þegar kominn með.
Í gær sendi nýjar myndir á atvinnuleyfis-skrifstofuna og eitthvað af frekari upplýsingum, tók þá ekki nema tæpa 3 mánuði að óska eftir þessum upplýsingum - vonandi að eitthvað fari að gerast í þessum málum fljótlega og losi mig úr þessari gíslingu.
Ég er ennþá mikið í hugmyndavinnu við heimasíðuna mína væntanlegu - jafnframt því að lesa mér til um html-forritun og fleira tengt vefsmíðum. Á soldið erfitt með að ákveða mig hvernig ég vil setja þetta allt saman upp... Hvernig væri best að rata um síðuna og svona... Hvað legg ég áherslu á og svo framvegis.
Hvað vilja lesendur sjá á væntanlegri vefsíðu sem kemur Mumma, dansara, danshöfundi, danskennara videosmið etc etc á framfæri?

Monday, August 21, 2006

ÞETTA ER EKKI ALVÖRU FÆRSLA

hehehehe
smá grín - nenni ekki alveg að skrifa akkúrat núna langaði bara til að segja að ég er enn á lífi, enn í new york og svona rétt að byrja að kíkja útúr skelinni sem ég skreið inní eftir útskrift...
Ég er búinn að bíða síðan í maí eftir atvinnuleyfinu mínu og það virðist sem það ætli loksins að fara að mjakast eitthvað eftir meira en 2ja mánaða tíðindaleysi á þeim vígstöðvum...
Byrjaði í dag að vinna í vefsíðunni minni - læt vita þegar eitthvað verður komið inn þar af viti.
Set inn link hérna til hliðar líka í myndaalbúmið mitt - á enn eftir að setja inn fleiri myndir þar þannig að það er bara um að gera að kíkja við aftur...
Ein spurning svona að lokum...
LES ÞETTA YFIRLEITT NOKKUR ORÐIÐ ?
Miðað við fjölda kommenta sem ég fæ eru það ekkert rosalega margir... Skrýtið hvernig þetta blogg virkar svolítið eins og einstefnugata stundum - mér líður stundum eins og ég standi hérna á mínum trékassa og blaðri um mitt "merkilega líf" útí tómarúmið... ? Er þetta vitleysa í mér?
Væri gaman að fá komment - email - símtöl what ever, sérstaklega frá þeim sem ég sjaldan/aldrei heyri frá...
Strákurinn saknar fjölskyldu og vina voða mikið þessa dagana og finnst hann eitthvað einn í útlandinu ... Hef líka aldrei verið eins lengi að heiman og einmitt nú... sniff sniff...
Ég reyni að vera duglegri að blogga - sérstaklega ef þið eruð dugleg að skrifa hehehe (smá mútur geta ekki skaðað mikið?)
Mumminn

This page is powered by Blogger. Isn't yours?