<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Saturday, June 03, 2006

LAUS ÚR ÁLÖGUM!!!

Jæja - þá er maður loksins laus af þessum flugvelli hehehe
Nei, bara smá djók svona - hef einhvernveginn bara enga löngun haft til að blogga hérna. Bæði var um nóg að hugsa svona þegar kom að útskrift í skólanum og svo þegar það var allt saman búið... ja-það var ekki laust við að það væri úr manni allur vindur svona - ég tók mér bara frí frá öllu og leyfði mér að gera ekki neitt í svolítinn tíma.
En jæja - kallinn semsagt útskrifaður og alles, orðinn Meistari eins og pabbi hehehe. Spurning hvort ég kalli mig Dansmeistara héðan í frá þar sem pabbi er pípulagningameistari. -Ætli símaskráin taki það gilt sem starfsheiti?
Það var alveg hreint voðalega gaman að hafa foreldrana hérna á þessum tímamótum - bæði við útskriftirnar báðar (Tisch School of the Arts sem ég var í og New York University sem er stóra batteríið yfir öllu) og eins voru þau hérna og sáu lokasýningu okkar útskriftarnemenda sem heppnaðist bara voðalega vel. Ég fékk ágætis umsagnir um verkið mitt frá kennurum skólans eftir þá sýningu. Þeirra gagnrýni var mjög mikið bara á sömu nótum og ég hefði gagnrýnt verkið... Hefði ég haft meiri tíma til að vinna að því hefði ég lagað þessa hnökra. En það er aldrei að vita nema maður vinni verkið eitthvað meira og þrói það frekar.
Ég er kominn með atvinnuleyfi hérna í USA - fyrir næsta ár - frá og með 1.júlí og maður fer svona að kíkja í kringum sig eftir atvinnu. Mig langar ekki til þess að dansa í neinum dansflokki svona fast... Margir hafa verið að spyrja mig hvað taki við hjá mér og satt best að segja veit ég það ekki - og mér finnst það bara alltí lagi hehehe - ég hef ekki áhyggjur af því að mér leggist ekki eitthvað til.
Ég fæ mér einhverja "dagvinnu" eins og er algengt með listamenn hérna, og vinn svo að eigin list í mínum frístundum. Ég er búinn að filma eina af 3 dans-stuttmyndum sem ég er með í hausnum en það er eitthvað sem mig langar til þess að gera svolítið af í framtíðinni. Mér gekk mjög vel í "Dance for the Camera" tímum í vetur og þetta fag var ein aðalástæða þess að mig langaði til þess að koma hingað og nema við þennan skóla. Ég fékk A fyrir veturinn þar og kennarinn hvíslaði því svona að mér að hún hefði haft sérstaklega gaman að því að fylgjast með mér vinna mínar myndir. Naut þess að vinna með okkur öllum en þó sérstaklega mér... maður verður bara hálf feiminn þegar maður heyrir svona. En gott veganesti að hafa með sér - gott fyrir sjálfstraustið. Ég held það hjálpi mér líka mikið í video-vinnunni að hafa verið áhugaljósmyndari í öll þessi ár...
En ég hef frá ýmsu að segja og ætla ekki að láta þessa færslu verða of langa... Ég hendi inn myndum hérna frá LA og Vegas við tækifæri - eins fór ég í 4.5klst gönguferð um síðustu helgi útí náttúrunni, ekki nema klukkutímalestarferð frá New York og maður er kominn í svo gott sem óbyggt skóglendi... Voða gaman
koss og knús í bili
Mummi

This page is powered by Blogger. Isn't yours?