My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Friday, September 22, 2006
Jahérna ég...
Það er kominn föstudagur enn eina ferðina - busy vika að baki og annað eins ef ekki meira fram undan.
Ég hitti Claudiu á miðvikudaginn - hún er vinkona bekkjarsystur minnar fyrrverandi og er líka að leita að íbúð. Það er miklu ódýrara að leigja 2 saman þannig að við erum búin að ákveða að vera teymi í þessu öllu. Við kíktum á eina íbúð þarna á miðvikudagskvöld strax - inni á Manhattan - Empire State byggingin sást út um eldhúsgluggann og svona EN herbergin voru rosalega lítil - minna herbergið hafði rétt svo pláss fyrir rúmið og eini glugginn í herberginu var inní litlum skáp í horninu. Við ákváðum að við gætum gert betur. Ég fékk svo nafnspjald hjá Robin sem var með mér í bekk - hún vinnur núna sem líkamsræktarþjálfari og einn af hennar kúnnum er leigumiðlari. Að fara í gegnum miðlun er talsvert dýrara - svoleiðis menn taka ca 15% af ársleigu í þóknun en af því þetta er svona í gegnum kunningsskap eigum við að fá einhvern afslátt. Hann sagðist vera með einhverjar íbúðir á sínum snærum á Upper East Side sem er hverfi austan megin við Central Park inni á Manhattan.
Ég er núna að hlusta á ballettinn Þyrnirósu eftir Tchaikovsky- setti iTunes spilarann minn á "random" og hann valdi af handahófi nokkur lög í röð þangað til hann bauð uppá þetta - þá stoppaði ég við og tók "random" af... Tchaikovsky var náttúrulega bara snillingur - ballett tónlistin hans full af tilfinningum - sumir vilja segja væmni en ég segi rómantík. -Ég fór inná Manhattan áðan - verslaði nokkra góða geymslukassa og eina litla ferðatösku (með tveimur minni töskum inní). Ég er svona byrjaður að pakka - þannig að ég sé tilbúinn þegar kallið kemur. Við erum svona að vonast til að finna íbúð og flytja núna um mánaðarmótin næstu. Soldið knappt en ég held bara því fyrr því betra.
Ég reyni bara að hafa sem minnst samskipti við mína yndislegu? meðleigjendur - hef bara engan áhuga á því satt best að segja. Og það heldur áfram bullið hérna - Wesley átti semsagt afmæli í gær og á þriðjudaginn sendir Mike email á mig og nokkra vini þeirra þar sem var boðið til afmælisfagnaðar hér heima í gærkvöldi. Það var það fyrsta sem ég heyrði af þessum áætlunum. Skemmtilegt hvernig maður er alltaf hafður með í ráðum ha? -Ég svaraði ekki emailinu, keypti mér miða á danssýningu (Dorky Park frá Berlín -mjög skemmtilegt) sendi svo bara Wesley sms í gær "Happy birthday old bean, I won't be there tonight, have other commitments" hehehe Þannig losnaði ég undan því snilldarlega - hafði bara engan áhuga á að hanga hérna með þeirra vinum og láta eins og allt væri í blómasóma. NEI TAKK :)
Við Claudia hittum leigumiðlarann núna um helgina vonandi og ég vona heitt og innilega að við getum gengið frá þessu bara sem fyrst. Þá fær maður að prófa að búa á Manhattan líka - ekki leiðinlegt það
fylgist með í næsta þætti...
finnur Mummi íbúð sem hann getur sætt sig við og hefur efni á?
hvernig ganga verkefnin hans öll?
skilja allir í bróðerni á Gates Ave eða verður allt í loft upp?
týnist atvinnuleyfið í pósti eða ratar það á réttan stað?
Allt þetta og meira í næsta bloggi
;) ble ble

Tuesday, September 19, 2006
Jæja, það væri synd að segja að það væri ekkert að gerast hjá honum Guðmundi.
Í rauninni er heilmikið búið að vera í gangi -svo mikið að ég veit varla hvar skal byrja. Kannski skeytastíllinn sé bara bestur á þetta :
-Ég er búinn að filma "Benetton-project" eins og ég hef kallað það -ekki ólíklegt að það endi sem röð fjögurra stuttmynda hver um sig tekin upp á mismunandi árstíð.
-Heimasíðan mín er svona að taka á sig mynd -hægt og sígandi, ég er að kenna sjálfum mér vefsmíðar og reyni að hanna og forrita síðuna jafnóðum.
-Um daginn báðu meðleigjendur mínir mig um að flytja út ekki seinna en í lok október, :( -Kom í ljós að þeim fannst þetta ekki vera að ganga nógu vel ekki nógu mikið chemistry í gangi (lesist ég er ekki besti vinur þeirra) auk þess sem Mike hefur núna efni á að leigja alla hæðina sem við búum á fyrir sig og kærastann sinn. Ekkert gegn mér persónulega segja þeir bla bla bla ...
-Í gær var ég kominn að því að kasta inn handklæðinu eins og maður segir og flytja heim til Íslands aftur. Atvinnuleyfið var enn að láta á sér standa = ekkert atvinnuleyfi = engin vinna, engin vinna = engir peningar til að lifa... Tók þá ákvörðun að flytja heim fyrir jól ef ekkert breyttist fljótlega. Viti menn - c.a. klukkutíma síðar fékk ég email um að málið hafi verið samþykkt og ég myndi fá kortið mitt innan tveggja vikna.
Tók þá ekki nema 4 mánuði að afgreiða þetta!!! Trúiði mér þegar ég segist HATA skrifræði? Fjóra mánuði að ENDURÚTGEFA kortið mitt frá í vor sem var með villunni á. Allt í allt tók það mig 6 mánuði að fá þetta í gegn ARG !!!!! OG nota bene, ég ætla ekki að fagna sigri fyrr en ég er kominn með kortið í hendurnar VILLULAUST takk fyrir.
Þetta þýðir að ég get loksins farið að sækja um vinnu hérna - er svona aðeins búinn að vera kíkja á netinu á Craigslist sem er svona alhliða smáauglýsinga vefsíða... Sjáum hvað gerist þar...
Nú svo þarf ég náttúrulega - þökk sé mínum "yndislegu"?!??!!!! meðleigjendum að fara að leita mér að stað til að búa á. Ein bekkjarsystir mín kom mér í samband við vinkonu sína sem er líka að leita að íbúð - fer og hitti hana á morgun. Það er talsvert ódýrara að leigja með öðrum heldur en uppá eigin spýtur...
Já - núna um helgina síðustu lék ég svo í stuttmynd eftir Erlu Skúladóttur, kvikmyndagerðarkonu sem býr hér í borg. Þetta er verkefni á vegum leikstjórafélagsins heima sem á 40 ára afmæli í ár og býður þessvegna fjörutíu leikstjórum að gera jafnmargar stuttmyndir. Afraksturinn verður svo sýndur í Kastsljósinu á föstudögum skilst mér. Læt vita þegar af verður þannig að allir geti nú límt sig við skjáinn og borið augum dýrðina hehehe. Svo var nú annað því tengt sem var ótrúlega fyndið. Ég var semsagt búinn í tökum um tvö leytið á sunnudaginn - fór þá aftur inná Manhattan og hitti þar bekkjarsystur mína - við sátum í Washington Square Park og spjölluðum. Kvöddumst um fimm - ég labbaði aðeins um - fékk mér að borða og var svo að kíkja eftir kössum til að byrja að pakka niður dótinu mínu... Labba inní Duane & Reade sem er svona lyfja + allt múlígt búð... tékka hvort þeir eigi einhverja kassa... Rekst ég þá ekki á mótleikonu mína úr stuttmyndinni sem hafði orðið eftir klukkan 2 til að taka upp senur sem bara hún var í. Hún hafði klárað milli 5 og 6 og var mætt þarna til að kaupa sjampó, andlitskrem og fleira... Við erum að tala um 8 milljón manna borg !!!! Hún er bara ekkert svo stór eftir allt saman. Við stóðum bara og hlógum eins og kjánar hehehe - hverjar eru líkurnar á svona löguðu...
Ég vona að ég sé að taka rétta ákvörðun með að vera hérna áfram í vetur... Ætla samt að sjá hvernig málin þróast fram að jólum núna þegar ég er kominn með kortið mitt í hendurnar loksins. Mig dauðlangar heim til Íslands EN -þetta er líka tækifæri sem kemur ekkert endilega aftur... Að vera með svona atvinnuleyfi og mega finna, sækja um og vinna hérna í borg tækifæranna. Maður náttúrulega skuldar eitthvað nú þegar og ef illa gengur að finna vinnu hérna munu skuldirnar aukast eitthvað -ég er svona að gera upp við mig hvort er mikilvægara... Þessi lífsreynsla eða peningar...
Verð nú samt að segja eitt - ég er of gamall orðinn til þess að lifa lífi hins sveltandi listamanns... Það er jú ákveðin rómantík í því en æ... maður spyr sig af hverju... Ég þarf bara ákveðinn stöðugleika í lífinu.
Hvað segja lesendur BLOGGsins?
Ég segi bless í bili - ætla að reyna að vinna eitthvað í einhverju af þessum alltof mörgu verkefnum sem ég skapa sjálfum mér...
koss og knús
endilega skilja eftir komment
Mumminn