<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Tuesday, October 31, 2006

Jæja, þá er kallinn fluttur loksins – bý núna hérna ofarlega á Manhattan í hverfi sem kallast Washington Heights. Gatan heitir stutt og laggott – Colonel Robert Magaw Place – hehehe... Ekki laust við að líkaminn sé í sjokki eftir allan burðinn á öllu þessu drasli.
Ég leigi hérna með henni Claudiu sem ég hef nefnt áður í þessum skrifum mínum, hún fann semsagt íbúð með tveimur herbergjum, svefnherbergi og stofu sem má nota sem herbergi. Fyrir herlegheitin borgum við svo 1100$ á mánuði eða 550$ á mann. Ólíkt viðráðanlegra heldur en 950$ sem ég var að borga á gamla staðnum. Svo förum við líklega á morgun að skoða aðra íbúð sem okkur bíðst á MIKLU betri stað eða niðri á 62nd street rétt við Lincoln Center alveg. Mér skilst að íbúðin sé okkar ef okkur líst á hana þannig að það er frábært – ekki síst þar sem hún er alvöru 2ja herbergja þ.e. með tveimur svefnherbergjum OG stofu. Verðmiðinn er ekki slæmur heldur 900$ eða 450$ á manninn. Semsagt – meira pláss, betri staðsetning og lægri leiga. Hljómar eiginlega of vel til að geta verið satt. Krossum fingur bara öll sömul. Ég er nú reyndar með alveg frábært útsýni hérna í Washington Heights, við erum uppá 6.hæð og þar sem húsið stendur á hæð þá horfum við yfir húsin hérna fyrir aftan. Í morgun vaknaði ég við sólina sem var að rísa í austri, bleikur himinn og alles. Rosalega falleg sjón – svo lokaði ég bara augunum og fór aftur að sofa. Í gær fóru Bandaríkin yfir á vetrartíma sem þýðir að við græddum klukkutíma. Þegar ég vaknaði kl 9 að gamla tímanum var búið að færa klukkuna aftur þannig að hún var bara 8. Þetta þýðir að maður verður syfjaður fyrr á kvöldin og vaknar fyrr en venjulega á morgnana. Svona þangað til maður er búinn að jafna sig á þessu öllu saman og byrjar aftur að fara seint að sofa og vera syfjaður og þreyttur þegar maður vaknar á morgnana.
Ég er heima núna þegar ég skrifa þennan texta – engin internettenging ennþá og engir nágrannar með opin þráðlaus kerfi sem hægt er að stelast inná. Stefnan er tekin niður í bæ á eitthvað internetkaffihús svo maður geti tékkað á email og skoðað atvinnuauglýsingarnar. Eins vantar svona sitthvað til heimilisins sem ég ætla þá að verða mér útum. Ég er alveg ákveðinn í því að drösla með mér eins miklu dóti ég get þegar ég kem heim um jólin, ég sá það alveg þegar ég var að pakka niður sérstaklega fötunum mínum að ég er með helling af dóti sem ég aldrei nota. Ég er ekki að ýkja þegar ég segi að það eru þarna flíkur sem ég flutti með mér þegar ég flutti hingað út og hef ALDREI farið í.
Anyway – best að hoppa í sturtu og koma sér af stað niður í bæ, ætla að hitta “eiginkonuna” í lunch – finna internetkaffihús og svo erindast...
Bless í bili,
Mummi
PS... vegna vandræða í nettengingum birtist þetta degi síðar hehehe

Friday, October 27, 2006

The Immigration Debate

Það er nú ansi mikið til í þessu videoi hérna... Held að sumir ætti kanski að skoða söguna sína aðeins betur...

Wednesday, October 25, 2006

Sagan af atvinnuleyfinu...



ok - svona var þetta nú síðustu mánuði...

22.mars 2006
USCIS -United States Center of Immigration Services tekur við umsókn minni um "Optional Practical Training" sem gerir erlendum námsmönnum kleyft að vinna hérna í USA í eitt ár að námi loknu. Venjulegur vinnslutími er 60-90dagar

6.maí 2006
Ég fæ sent kortið mitt sem gefur mér lyfi til að vinna frá 1.júlí 2006 - 30.júní 2007. Uppgötva villu á kortinu sem reyndust vera mín eigin mistök. Skrifaði afmælisdaginn minn 11.02.1971 eins og ég hef alltaf gert - hérna útleggst það hinsvegar 2.nóvember 1971... -Ég hef samband við USCIS sem segja mér að ég verði að sækja um aftur, senda gamla kortið til þeirra og borga 180$ færslugjald aftur. Geri það allt saman eins og fyrir var lagt og hefst svo biðin.

22.september 2006
Fjórum mánuðum eftir að ég sæki um á ný fæ ég loksins kort númer 2. Það sem á að taka 60-90 daga tók 120 daga !!!! Eða öllu heldur - þeir þurftu nú bara að endurútgefa kortið þannig að það var nú ekki eins og það þyrfti að endurvinna allan prósessinn sko.... EN ! -Kort númer 2 er líka með villu, og í þetta skiptið er það ekki mín sök heldur USCIS. Þeir skanna undirskrift ráðgjafa í skólanum inná kortið mitt í staðinn fyrir mína. Ég fer og tala við þær í skólanum sem bera USCIS ekki vel söguna. Segja mér hvernig USCIS skyldaði alla skóla í landinu til að fjárfesta í rándýru tölvukerfi til að halda utan um upplýsingar um erlenda námsmenn. Kerfi sem þeir nota svo ekki sjálfir í því sem þeir gera en ef þeir gerðu það væri auðveldlega hægt að stytta afgreiðslutímann til muna og koma í veg fyrir asnaleg mistök eins og ég og fleiri hafa lent í.

24.október 2006
Mér berst LOKSINS í hendurnar villulaust kort og ætti því loksins að geta unnið óhindrað hérna... Sjáum hvað setur með það.
Þessi prósess allur tók EKKI NEMA 7 mánuði í það heila. Frá þeim tíma sem þeim berst fyrsta umsóknin mín og þar til ég fæ loka útgáfu af kortinu.
OG nota bene - kortið gildir til 10.júlí þannig að þetta árs atvinnuleyfi er orðið að rúmlega 8 mánaða atvinnuleyfi.

Minn er ekkert of ánægður með þetta eins og gefur að skilja EN loksins komin lausn á málið - ÞÓ FYRR HEFÐI VERIÐ !!!!

Sunday, October 22, 2006

Missti ég af einhverju?

Ég bara spyr því undanfarnar vikur hafa rignt yfir mig allskonar tilboðum frá bönkum, kreditkortafyrirtækjum og flugfélögum um að opna hjá þeim "Business account" eða einhverskonar viðskiptareikning. Það kannski fylgir því hérna í Ameríkunni að um leið og maður útskrifast með Meistaragráðu að þá sé maður sjálfkrafa kominn útí einhversskonar business? En - ég ætla nú ekki að falla í þá gryfju að safna að mér einhverjum kreditkortaskuldum og enn sem komið er er ég ekkert að ferðast vegna viðskipta þannig að ég held ég láti vera að fá mér viðskiptakort hjá flugfélögunum...
Kyle bekkjarbróðir minn er á fullu að reyna að koma sér og sínum verkum á framfæri - hann bað mig í vikunni að vinna með sér í verkefni sem hann leggur til við eitt leikhúsið hérna í borg. Hann sendi mér umsóknina sína til samþykktar en þar stendur "new material shot and edited by Icelandic filmmaker, Gudmundur Helgason..." það fór skrýtinn tilfinning um mig þegar ég last þetta fyrst. EN, jú -mig langar til þess að vinna í þessari stuttmyndagerð í framtíðinni svona með öllu hinu sem mig langar til þess að gera. Mér fannst ég svona fá einhvern atvinnumanna stimpil þarna með þessu :)
Ég ætla að reyna að koma mínum myndum í sýningu hjá DTW sem er leikhús sem bara sýnir dans hérna í borginni. Þeir eru með tvo stóra skjái í anddyrinu hjá sér þar sem þeir sýna svona video-dansverk, ný dagskrá í hverjum mánuði en þetta rúllar hjá þeim alla daga þegar er opið hjá þeim. Fín leið til þess að koma sýnum verkum á framfæri.
Kyle er einmitt að reyna að koma einu sviðsverki sínu inn á prógrammið hjá þeim í DTW og um næstu helgi er einhverskonar inntökupróf þar sem danshöfundar mæta með dansverk sín sem eru svo valin inná dagskrána. Ég ætla að horfa á æfingu hjá honum í dag og sjá hvort ég geti orðið eitthvað að liði. Annað sem ég hef áhuga á að gera í framtíðinni - stjórna æfingum á dansverkum, ég gerði það einmitt í fyrra í skólanum aðstoðaði við uppsetningu á verki eftir Merce Cunningham sem sýnt var á sýningu dansflokks skólans.
Á mánudaginn ætti að fást svar með húsnæði - leiðir okkar Claudiu skildu þarna um stutta stund - hún fann í millitíðinni íbúð sem er eitt svefnherbergi og stofa sem nota má sem svefnherbergi. Leigan er 1100$ á mánuði sem yrði þá 550$ á mánuði fyrir hvort okkar. Talsvert minna en ég borga núna sem er 950$ ... munar um minna sko.
Ég er svona að kíkja í kringum mig eftir vinnu - var næstum farinn í inntökupróf fyrir Broadwayshow á fimmtudaginn var en hætti svo við eftir mikla umhugsun. Ekki viss um að ég vilji vera fastur á sviði átta sýningar í viku, sex daga vikunnar... Svo hef ég ekki farið í danstíma síðan í maí þannig að ef ég ætla að fara að dansa aftur þá væri ekki óvitlaust hjá mér að koma mér í allavega smá form fyrst.
Með það í huga gerði ég stutta stöng hérna heima bara á föstudaginn - það var eiginlega bara vont hehehe -alveg kominn tími á að maður fari að hreyfa sig aftur. Þó ekki sé nú stefnan að hafa dansinn sem aðalatvinnu, allavega ekki að dansa á sviði sko...
Jæja, nóg um það í bili - verð að fara að gera mig klárann fyrir æfinguna með Kyle getið skoðað vefsíðuna hans hérna...
Meira síðar,
Mummi

Wednesday, October 11, 2006

Jæja,
og svo kom haustið bara allt í einu einn daginn.
Ætli það sé ekki best að maður skrifi eitthvað hérna svona handa fréttaþyrstum vinum og ættingjum. Hef svolítið verið að einbeita mér að íbúðarleit að undanförnu og má segja að sú leit hafi tekið smá U-beygju núna á mánudaginn var. Við Claudia vorum semsagt búin að finna voða fína íbúð með aðstoð leigumiðlara núna í síðustu viku. En það var komin umsókn á hana þannig að það voru kannski ekki miklar líkur á að við fengjum hana. Ég var eiginlega farinn að spá í bara eitthvað tímabundið fram að jólum og sjá bara til hvort það rættist eitthvað úr hjá mér með vinnu og slíkt. Nema svo hringir leigumiðlarinn á sunnudaginn - umsóknin hafði verið dregin til baka og vildum við sækja um? Það varð úr að við Claudia mættum á mánudaginn til þess að fylla út alla pappíra - og það er ekkert smá sem leigusalar vilja fá að vita um væntanlega leigjendur. Það er beðið um staðfestingu á atvinnu, afrit af skattskýrslu, skilríki, svokallað kredit-tékk ofl ofl. Ég var með einhverja skrýtna tilfinningu yfir þessu öllu og hún jókst bara þegar þeir á leigumiðluninni tilkynntu okkur að þóknunin fyrir þeirra vinnu væri 3400$ eða 1700$ á hvort okkar. Þetta er standardinn hérna - 15% af ársleigu takk fyrir. Við erum að tala um ca. 235.000 til þeirra fyrir að finna handa okkur íbúð og aðstoða við pappírsvinnuna. Mér skildist á Robin bekkjarsystur minni að við fengjum einhvern díl hjá þeim en það var ekki... Þetta eru einfaldlega peningar sem ég á ekki til - þannig að eftir að tala við Claudiu og hugsa málið aðeins - tala við mömmu í símann og svona þá hringdi ég í leigumiðlarann og bað hann um að draga umsóknina okkar til baka. Held það sé útilokað mál að ég fari útí það að fá mér eigin íbúð fyrir þennan tíma. Ekki meðan þessi óvissa er enn í gangi með vinnu og hvað ég geri hérna. Frekar að ég finni mér laust herbergi hjá fólki sem þegar er með íbúð. Eitthvað tímabundið meðan ég sé hvernig málin þróast hérna hjá mér.
Mig dauðlangar heim aftur til Íslands og ef ég finn ekkert spennandi að gera þá held ég að það verði lendingin í þessu máli.
Er annars að vinna mikið í heimasíðunni minni - hún er öll að koma til, útlitið er nokkurn veginn komið og ég er aðallega í því að koma inn öllu innihaldinu. Tekur smá tíma þegar maður er svona að læra forritunina jafnóðum og maður vinnur síðuna.
Svo er ég mikið að fást við allar þessar eilífu tilvistarspurningar - hver er ég? -hvað vil ég gera? -hvað er ég að gera? er ég á réttri braut? -er ég kannski bara rammvilltur? Ég veit stundum bara ekki baun hvað ég vil - eða jú - ég veit það alveg en stundum koma bara upp aðrar hugmyndir sem rugla mann í ríminu. Ég er kannski svolítið eins og Marta úr bíblíusögunum "Marta, Marta þú mæðist í mörgu..." var þetta ekki einhvern veginn svona? Það er svo margt sem mig langar til að gera og vinna við. Bara verst að maður er ekki í launaðri vinnu við að skapa sína list og svona hehehe. Ég er búinn að grófklippa "Benetton-project" númer 1 og er að gera mig klárann í að filma númer 2. Hugmyndin er semsagt að filma dansarana fjóra í fjórum mismunandi árstíðum. Allt á mismunandi stöðum hérna í new york. Er með tvo staði í Central Park í huga fyrir haustið en hérna eru haustlitirnir óðum að láta sjá sig. Þetta verður að sjálfsögðu allt saman til sýnis á vefsíðunni minni og ég læt vita um leið og þetta verður komið upp.
Já - svo fæ ég væntanlega að sjá afraksturinn af stuttmyndinni sem ég lék í um daginn í dag. Erla Skúladóttir sem skrifaði handritið og leikstýrði henni er á leiðinni heim til Íslands með afraksturinn - þetta verður svo sýnt í föstudags Kastljósi ásamt hinum 39 myndunum næstu vikurnar. Þetta er semsagt í tilefni af 40 ára afmæli Leikstjórafélags Íslands að þeir láta peningana renna í þetta í staðinn fyrir að halda partý. Flott hjá þeim!!! Endilega að fylgjast með Kastljósinu á næstunni - veit reyndar ekkert hvenær stendur til að sýna myndina sem ég lék í. Læt ykkur vita um leið og ég veit eitthvað sjálfur.
Ætla að segja þetta gott í bili - bið að heilsa öllum
xoxox
Mummi

This page is powered by Blogger. Isn't yours?