<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Tuesday, October 31, 2006

Jæja, þá er kallinn fluttur loksins – bý núna hérna ofarlega á Manhattan í hverfi sem kallast Washington Heights. Gatan heitir stutt og laggott – Colonel Robert Magaw Place – hehehe... Ekki laust við að líkaminn sé í sjokki eftir allan burðinn á öllu þessu drasli.
Ég leigi hérna með henni Claudiu sem ég hef nefnt áður í þessum skrifum mínum, hún fann semsagt íbúð með tveimur herbergjum, svefnherbergi og stofu sem má nota sem herbergi. Fyrir herlegheitin borgum við svo 1100$ á mánuði eða 550$ á mann. Ólíkt viðráðanlegra heldur en 950$ sem ég var að borga á gamla staðnum. Svo förum við líklega á morgun að skoða aðra íbúð sem okkur bíðst á MIKLU betri stað eða niðri á 62nd street rétt við Lincoln Center alveg. Mér skilst að íbúðin sé okkar ef okkur líst á hana þannig að það er frábært – ekki síst þar sem hún er alvöru 2ja herbergja þ.e. með tveimur svefnherbergjum OG stofu. Verðmiðinn er ekki slæmur heldur 900$ eða 450$ á manninn. Semsagt – meira pláss, betri staðsetning og lægri leiga. Hljómar eiginlega of vel til að geta verið satt. Krossum fingur bara öll sömul. Ég er nú reyndar með alveg frábært útsýni hérna í Washington Heights, við erum uppá 6.hæð og þar sem húsið stendur á hæð þá horfum við yfir húsin hérna fyrir aftan. Í morgun vaknaði ég við sólina sem var að rísa í austri, bleikur himinn og alles. Rosalega falleg sjón – svo lokaði ég bara augunum og fór aftur að sofa. Í gær fóru Bandaríkin yfir á vetrartíma sem þýðir að við græddum klukkutíma. Þegar ég vaknaði kl 9 að gamla tímanum var búið að færa klukkuna aftur þannig að hún var bara 8. Þetta þýðir að maður verður syfjaður fyrr á kvöldin og vaknar fyrr en venjulega á morgnana. Svona þangað til maður er búinn að jafna sig á þessu öllu saman og byrjar aftur að fara seint að sofa og vera syfjaður og þreyttur þegar maður vaknar á morgnana.
Ég er heima núna þegar ég skrifa þennan texta – engin internettenging ennþá og engir nágrannar með opin þráðlaus kerfi sem hægt er að stelast inná. Stefnan er tekin niður í bæ á eitthvað internetkaffihús svo maður geti tékkað á email og skoðað atvinnuauglýsingarnar. Eins vantar svona sitthvað til heimilisins sem ég ætla þá að verða mér útum. Ég er alveg ákveðinn í því að drösla með mér eins miklu dóti ég get þegar ég kem heim um jólin, ég sá það alveg þegar ég var að pakka niður sérstaklega fötunum mínum að ég er með helling af dóti sem ég aldrei nota. Ég er ekki að ýkja þegar ég segi að það eru þarna flíkur sem ég flutti með mér þegar ég flutti hingað út og hef ALDREI farið í.
Anyway – best að hoppa í sturtu og koma sér af stað niður í bæ, ætla að hitta “eiginkonuna” í lunch – finna internetkaffihús og svo erindast...
Bless í bili,
Mummi
PS... vegna vandræða í nettengingum birtist þetta degi síðar hehehe
Comments:
Vúhú!!! Til lukku með nýju íbúðina og "eiginkonuna" ... Vona að það gangi upp með íbúðina á 62. st. geðveik staðsetning. Ég á samt eftir að sakna sápunnar á gamla staðnum..hehehe..
 
Jibbii!!!! Loksins loksins, til hamingju elsku vinurinn minn, gott ad eitthvad sje ad glaedast.
Toj toj med hina ibudina, nu ef hun er ekki ykkar, tha skitt med thad, thu ert tho alla vega med thetta lika fina utsyni! :)
 
Til lukku í krukku!!!

kveðja frá Óðinsvéum,

Arnar Thor
 
Hæ hæ.... til hamingju með íbúð og atvinnuleyfi.. hehe...

Nú hugsa ég alltaf til þín á mánudögum þegar ég ligg yfir "So you think you can dance"... ;o) er mjög fegin að úrslitin voru ekki tilkynnt í þættinum sem ég sá með þér....annars man ég að þú sagðir að einhver sem náði ekki top4 væri í uppáhaldi... ég er mjög forvitinn, hver var það?....

ástarkveðjur,
Sigga Birna
 
Ertu a lifi kuturinn minn? Sakna posts fra thjer.
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?