My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Wednesday, May 11, 2005
sumarfrí, sumarfrí, sumarfrí....
Labbaði í dag um Washington Square Park sem er á miðju háskólasvæðinu rétt eftir útskriftarathöfn skólans sem fór fram í morgun. Heilmikið húllumhæ og að hugsa sér að eftir ár þá er það ég sem útskrifast með MFA gráðu í dansi og get því kallað mig Meistara :) ótrúlegt alveg - tíminn flýgur skuggalega hratt. Finnst ég bara vera rétt kominn hingað út.
Sumarið er svona að skríða í bæinn - hangir milli 15-20 gráður flesta daga núna. Alveg mátulegt fyrir mig sko.
Núna vantar mig bara eina einkunn fyrir "Graduate Seminar" sama fag og ég fékk A fyrir ritgerðina mína. Spurning hvort ég fái líka A fyrir allan kúrsinn... Fékk svo B+ fyrir músík sem er framför - fékk bara "plein B" fyrir jól. Annað er allt saman pass/fail og ég veit að ég hef ekki fallið í neinu. Þannig að það má líklega segja að maður hafi staðist þetta fyrsta ár með glans hehehe. Smá mont hérna :)
Ætla að sjá Phantom of the Opera á næstunni - fara í Bronx dýragarðinn - Grasagarðinn hérna í Brooklyn, á ströndina og svo framvegis og svo framvegis... Svo einhver ferðalög hérna innanlands.
Meira seinna ,
Mummi

Saturday, May 07, 2005
jæja - þá er lengsta sumarleyfi sögunnar hafið - ég þarf ekki að mæta aftur í skólann fyrr en í september á hausti komanda...
Það er nú samt ekki á stefnuskránni að sitja aðgerðarlaus með hendur í skauti heldur ætla ég að njóta þess að vera hérna í borginni sem aldrei sefur og skoða óendanlegt úrval af afþreyingu og stöðum/borgarhlutum. Það er líka á stefnuskránni að skreppa niður til Florida með bekkjarsystur minni sem er þaðan. Við fáum flugmiða með Jet-Blue á ca 160$ báðar leiðir sem er nú ekki mikill peningur.
Þessi vetur hefur liðið hjá á þvílíkum ógnarhraða að það er lyginni líkast - enda segir jú máltækið "Time flies when you are having fun". Músíkprófið gekk ágætlega held ég bara þarna á miðvikudaginn - stór hluti af því var utanbókarlærdómur sem ég held ég hafi náð að svara alveg 100% -Hinir hlutar prófsins eru erfiðari að dæma hvernig manni hafi gengið - það voru nokkur hlustunaratriði þar sem við hlustuðum á verk og áttum svo að segja hvaða form væri á verkinu sem við hlustuðum á. Hvernig verkið skiptist upp í mismunandi kafla og svoleiðis...
Á þriðjudaginn var áttum við 15 mínútna einkafundi með öllu kennaraliðinu þar sem var farið yfir veturinn - okkur gafst kostur á að segja hvað okkur fannst og kennararnir sögðu hvað þeim fannst. Ég var heppnari en margir bekkjarfélagar mínir sem fengu harða útreið frá sumum kennurum. Þeir voru allir mjög jákvæðir í minn garð og ánægðir með að ég hafði valið þennan skóla. Kathy Grant pilates-kennarinn okkar bauð mér meira að segja að panta hjá henni tíma og mæta til hennar þangað til ég fer heim til Íslands aftur. "EVIL-Miss Kathy Grant" af öllum. Hún er þá að gera þetta bara á sinn reikning því að skólinn er búinn og hún þarf ekkert að sinna okkur nemendum skólans fyrr en næsta haust. Rausnarlegt boð frá henni sem ég ætla sko að þiggja. Hún er ca 85 ára gömul með grátt afró-hár og er ennþá með smá svona "Girl-friend" takta. Ein af örfáum sem lærðu af Joseph Pilates sjálfum og er ennþá að kenna. Ég fékk ritgerðina mína til baka þarna á þriðjudaginn líka og til að gera langa sögu stutta fékk minn A fyrir hana. Var satt best að segja mjög hissa á því. En eins og Deborah Jowitt kennarinn minn sagði "This is a very smart, entertaining paper, with writing that's relaxed and natural. I enjoyed reading it very much". Hún hafði að sjálfsögðu nokkra punkta sem henni fannst að mætti laga en almennt var hún bara mjög ánægð semsagt. -Ég er sérstaklega ánægður með þetta þar sem ég fór ekki að ráðum hennar sem hún gaf okkur núna í haust þegar hún sagði að við ættum að láta einhvern lesa yfir ritgerðirnar okkar til að ganga úr skugga um málfar og svoleiðis. Hún tók sérstaklega fram að við "útlendingarnir" í bekknum ættum að taka þetta til okkar - ég held af því að í fyrra var hún með nemanda frá Japan sem var ekkert sérstaklega klár í ensku. Mummi þrjóski ákvað hinsvegar að taka fulla ábyrgð á ritgerðinni sinni sjálfur og sjá ... Hann fékk A fyrir hana. hehehe Now I was born to be an A-student... :) -Spurningin er bara hver loka-einkunnin verður í þessu fagi og eins músík... Öll hin fögin sem ég tek eru pass/fail og ég veit að ég náði þeim öllum.
Annars er nú hugurinn mikið heima á Íslandi þessa dagana þar sem hann afi minn blessaður liggur á spítala mikið veikur og flakkar milli þess að vera tiltölulega hress og að vera við það að kveðja okkur hérna. Voða skrýtið að vera svona einn í útlandinu vitandi af honum svona veikum. Annars rifjaðist upp fyrir mér núna um daginn nokkuð sem hann sagði í fyrra-sumar þegar ég fór og kvaddi hann og ömmu áður en ég fór hingað út. Hann hefur nú lesið mikið og horft mikið á allskyns heimildamyndir um dagana og þegar ég var búinn að tala svolítið um New York og hvernig þetta væri nú allt saman hérna þá spurði hann hvort það væri ekki mikið af svörtu fólki hérna. -Jú ég sagði honum að það væri nú alveg slatti af því. Eftir smá umhugsun sagði hann að sér þætti svarta fólkið almennt ofsalega fallegt -eiginlega fallegra en við hvíta fólkið. Mér fannst þetta mjög merkilegt að heyra frá manni á áttræðisaldri sem líklega hefur nú ekki séð marga blökkumenn svona í eigin persónu um dagana. Sýnir bara hvað hann er víðsýnn blessaður.
Í kvöld er svo haldið uppá 20 ára fermingarafmæli míns árgangs í Keflavíkinni - alveg hrikalegt hvað maður er orðinn eitthvað "gamall" - eins og mér finnst ég vera eitthvað ungur. 20 ár liðin frá því að maður fermdist en ég man það svona næstum eins og það hafi gerst í gær. Ég get ekki verið á staðnum því miður - ekki frekar en á 10 ára og 15 ára fermingarafmælinu þegar ég var fastur í leikhúsinu að sýna.
Ég ætla að nota sumarið svolítið til þess að læra sjálfur svona það sem mig langar til að læra - kominn uppá lagið með að nota bókasafnið og svona. Maður fær nú engar einingar fyrir svoleiðis lærdóm EN þetta er líka bara fyrir mig sjálfan. Eins gott að nota allt það sem borgin hefur uppá að bjóða meðan maður er hérna. Planið er að nota rigningardaga í að fara á Performing Arts Library sem ég hef talað um áður og horfa á myndbönd af dansverkum sem mig hefur alltaf langað til að sjá en aldrei gefist tækifæri til. Það væri óskandi að eitthvað þessu líkt væri í boði heima.
bless í bili