<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Wednesday, May 11, 2005

sumarfrí, sumarfrí, sumarfrí....
Labbaði í dag um Washington Square Park sem er á miðju háskólasvæðinu rétt eftir útskriftarathöfn skólans sem fór fram í morgun. Heilmikið húllumhæ og að hugsa sér að eftir ár þá er það ég sem útskrifast með MFA gráðu í dansi og get því kallað mig Meistara :) ótrúlegt alveg - tíminn flýgur skuggalega hratt. Finnst ég bara vera rétt kominn hingað út.
Sumarið er svona að skríða í bæinn - hangir milli 15-20 gráður flesta daga núna. Alveg mátulegt fyrir mig sko.
Núna vantar mig bara eina einkunn fyrir "Graduate Seminar" sama fag og ég fékk A fyrir ritgerðina mína. Spurning hvort ég fái líka A fyrir allan kúrsinn... Fékk svo B+ fyrir músík sem er framför - fékk bara "plein B" fyrir jól. Annað er allt saman pass/fail og ég veit að ég hef ekki fallið í neinu. Þannig að það má líklega segja að maður hafi staðist þetta fyrsta ár með glans hehehe. Smá mont hérna :)
Ætla að sjá Phantom of the Opera á næstunni - fara í Bronx dýragarðinn - Grasagarðinn hérna í Brooklyn, á ströndina og svo framvegis og svo framvegis... Svo einhver ferðalög hérna innanlands.
Meira seinna ,
Mummi
Comments:
Hæ hó, ég hef fengið inngöngu í New School í New York og kem því til með að flytja út til stórborgarinnar í haust. Jiha. Viltu vera mér innan handar frændi? kveðjur, Auður Karitas
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?