My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Thursday, September 30, 2004
Vitiði að ég verð eiginlega að viðurkenna smá samviskubit hérna -
Þegar ég labbaði heim í kvöld fannst mér vera svona hálf svalt úti - og ég sé hérna á tölvunni minni sem er beintengd við einhverja veðurstöð hérna í Brooklyn að það er 16°C hiti úti akkúrat núna. Manni hefði nú einhvern tímann þótt það heitt - allavega kann ég yfirleitt betur við mig í svölu lofti en heitu. Þetta þýðir væntanlega að maður er svona hægt og bítandi að samlagast loftslaginu hérna. Mér fannst nú illa heitt hérna fyrstu dagana og vikurnar enda dólaði hitinn þá á milli 25 & 30°C fyrir nú utan allan rakann sem var í loftinu alltaf hreint.
Núna er veðrið miklu þægilegra fyrir svona hitaskræfu eins og mig. -Ja fyrir utan þetta að mér er eiginlega farið að finnast nett kalt hehehe. Það er margt skrýtið í henni veröld.
Jeffery meðleigjandi minn átti afmæli í gær og Wesley í síðustu viku og komu nokkrir vinir þeirra í heimsókn í gærkvöldi. Var nokkuð ljúft og skemmtilegt fyrir utan það að gestirnir hefðu nú alveg mátt fara fyrr heim þar sem ég þurfti náttúrulega að mæta í skólann í morgun.
Á morgun er besti dagur vikunnar - þá mæti ég í jógatíma klukkan 9:50-11:20 og er svo praktískt séð búinn í skólanum þann daginn þar sem ég þarf ekki að taka danssögu. Á morgun ætla ég samt að æfa í klukkutíma verk sem ég er að fara að semja fyrir sýningu sem verður í byrjun nóvember. Nota óperuaríu (aftur) úr óperunni Rusalka eftir Dvorak - dúett fyrir tvær stelpur úr skólanum. Verður vonandi fallegt hjá mér - ég er búinn að detta svolítið mikið í það að vera fyndinn og sniðugur í kóreografíutímum. Fólk er alltaf að segja mér hvað það sé allt sniðugt sem ég geri - mig langar svolítið að gera eitthvað annað núna. Kómíkin hefur jú oftast verið mér auðveld. Nú langar mig til að skora á sjálfan mig að gera eitthvað allt annað.
Í gær var smá svona fundur með kennurum og nemendum, fundir sem eru hálfsmánaðarlega. Bæði eru ræddir praktískir hlutir og svo sýna nemendur svona það sem þeir eru að fást við. Við erum búin að vera vinna með ákveðinn frasa af hreyfingum í tíma sem heitir "Leikstjórn & kóreografía" setja allskonar tilfinningar á hann og svona. Síðast bættum við svo texta á þetta allt saman og var útkoman ansi skemmtileg hjá mörgum. Ég var beðinn ásamt 3 öðrum úr því fagi að sýna okkar útkomu á þessum fundi þarna í gær þannig að það var nú svolítið skemmtilegt - að vera valinn. -Maður er jú alltaf að reyna að sanna sig. Ég er alltaf með á bakvið eyrað hjá mér að ég fékk nú einu sinni rúmlega milljón krónu styrk frá skólanum þannig að ég ætti kannski að leggja svolítið á mig og sanna það að ég eigi skilið að fá þessa peninga. -Maður vill allavega sýna þakklæti sitt og ekki slá slöku við.
jæja nóg í bili - klukkan að nálgast miðnætti og minn ætti að fara að sofa.
Jóga - æfing og svo smá barátta við kerfið á morgun - ætla að fara að sækja um kennitölu hérna. Þeir mæla með því í skólanum að maður geri það -auðveldar marga hluti í kerfinu. -Þeir sem lesa þetta blogg reglulega vita það að mér finnst rosalega gaman að fást við skrifræðið sem fylgir öllu hérna !!! - Ja eða þannig sko !!!!
Hmmm - segi frá því seinna
bestu eplakveðjur
Mummi

Monday, September 27, 2004
Jæja !
Þá er maður orðinn frændi í öðru-veldi - Steinar bróðir kominn með aðra stelpu sem fæddist núna í morgun að því að ég best veit - 12merkur 2.890gr og 48cm og ef það er eitthvað að marka hann bróður minn þá er þetta síðbúinn tvíburi Ásdísar Evu litlu frænku minnar sem kom fyrst í heiminn fyrir rúmum 6 árum.
Skrýtið að geta ekki skroppið í heimsókn á spítalann og séð litla krílið .... Ég verð bara að láta mér duga myndir þangað til ég kem heim um jólin. -Svo má náttúrulega alltaf hafa beina útsendingu með vefmyndavélum eins og ég er búinn að gera nokkrum sinnum síðan ég kom út. Ferlega gaman
Til hamingju Steinar - Dagný og Ásdís Eva - og auðvitað allir hinir sem þátt eiga :)
Sunnudagur að kveldi kominn og tími til kominn að hátta sig og fara að sofa - enn ein busy vika framundan með nægum verkefnum.
Ég setti hérna inn nýjan link til hliðar - einn undirleikarinn í skólanum, Chris De Rosa, er með heimasíðu þar sem hann setur inn upplýsingar um sig og sín verk. Margir rosalega góðir undirleikarar - þetta er semsagt ásláttarleikari og svo er einn snillingur sem spilar á selló - hann hefur spilað bæði í balletttíma og móderntíma hjá mér. Alveg brilliant músíkant - hef ALDREI! séð manninn í samstæðum sokkum - heheheh - flott týpa og skemmtileg.

Saturday, September 25, 2004
HÆ HÓ JIBBÍJEI OG JIBBÍ-Í-JEI !!!!
Haldiði að maður sé ekki bara kominn með almennilega nettengingu LOKSINS - það tók bara rúmar 3 vikur að ganga frá þessu..... Svona ef þið vissuð það ekki fyrir, þá tekur allt sinn tíma hérna í þessu landi - Skrifræðið er ansi mikið á köflum. Maður verður þá vonandi duglegri að skrifa héðan af -
Skólinn gengur sinn vanagang - maður er svona að venjast þessu smám saman. Þetta er allt spurning um tímastjórnun og skipulag.
Ég held ég sé hreinlega búinn að gefast upp gagnvart tryggingaskrifstofunni hérna - Tryggingastofnun á Íslandi greiðir sjúkrakostnað námsmanna erlendis á meðan á námi stendur og ætlaði ég að láta það duga hreinlega. -En nei, skólinn hérna setur það strangar kröfur um tryggingar að það er ekki nóg. Fyrst gerðu þær nú athugasemd við það að það væri ekkert hámark tekið fram á pappírunum sem ég fékk frá Tryggingastofnun hér þarf maður að hafa tryggingu uppá 75.000$ per "veikindi" -heima er ekkert svona þak á tryggingum einfaldlega - þeir borga sjúkrakostnaðinn þangað til þér er batnað - ekki þangað til þú ert búinn með 75.000 dollara kvótann.... -Gekk ekkert smá erfiðlega að koma þeim í skilning um það. En svo er annað og það strandar eiginlega á því - 15.000 dollara heimflutningstrygging ef ég tæki nú uppá því að veikjast alvarlega eða deyja - þá verða þeir að vera vissir um að það lendi ekki á þeim að borga undir mig flutning heim til Íslands. -Ég held ég nenni einfaldlega ekki að berjast í þessu meira - endar með því að ég kaupi "basic" tryggingu hérna uppá rúmar 70.000 krónur. -Finnst það frekar fúlt þegar ég veit að ég er tryggður fyrir vel flestu af tryggingastofnun heima.
En svona er nú skrifræðið stundum...
Ég hitti Ásu framkvæmdastjóra dansflokksins og Hjálmar H. Ragnarsson manninn hennar núna í vikunni -þau eru búin að vera hérna síðan á mánudagskvöld og fara heim aftur á morgun sunnudag. Þetta var fertugsafmælisgjöf Ásu sem hafði aldrei komið hingað áður. Það var reglulega gaman að hitta þau og tala smá íslensku aftur við fólk af holdi og blóði. Við byrjuðum á að setjast á kaffihús rétt hjá skólanum mínum og fórum svo sem leið lá niður í Battery Park neðst á Manhattan. Þar ætluðum við að fara út að Frelsisstyttunni en höfðum misst af síðustu ferð þangað út. Fórum í staðinn með Staten Island ferjunni yfir, en á henni fær maður ansi flott útsýni yfir bæði Frelsisstyttuna og Manhattan. -Var svolítið skrýtið að horfa á Manhattan og það bara vantaði tvíburaturnana tvo sem stóðu þarna þegar ég fór í þessa sömu siglingu fyrir þremur árum þegar ég var hér. Turnarnir voru sko ca. einum þriðja hærri en aðrar byggingar þarna í kring. Þannig að þeir settu ansi mikinn svip á umhverfið. Við náðum akkúrat ljósaskiptunum á ferjunni - sigldum út í björtu en til baka í myrkri - rosalega flott að sjá borgina svona upplýsta í myrkrinu. Eftir siglinguna fórum við svo uppí "The Village", hverfið þar sem Ása og Hjálmar eru með íbúð og út að borða á Ítölskum stað Pesci & Pasta (fiskur og pasta) -Fengum fínan mat þar og ég segi bara takk fyrir mig aftur Ása ef þú ert að lesa þetta :). Svo var komið að kveðjustund og ég labbaði mér aftur uppí skóla til að ná í töskuna mína og málverk sem ég hafði notað í leiklistarverkefni fyrr um daginn. Svo fór minn bara heim að læra - klára músíkverkefni (það er eins og ég sé alltaf að vinna músíkverkefni hafið þið tekið eftir því? hehehehehe)
Annars er náttúrulega íslenskur strákur að læra við kvikmyndadeildina hérna - Hann Huldar Breiðfjörð... Við erum búnir að vera í sambandi útaf þessum tryggingarmálum og er hann að reka sig á sömu veggi og ég. Fínt að hafa einhvern sem maður getur spjallað við um þessi sameiginlegu mál. Ég lagði inn tillögu að verki fyrir sýningu sem verður í byrjun nóvember - held ég sé kominn þar inn örugglega. Ætla að semja dúett fyrir tvær stelpur í bekknum mínum sem komu til mín og báðu um að fá að dansa fyrir mig þegar ég semdi verk. -Mér fannst það nú svolítið skemmtilegt - þær hafa semsagt séð til mín í spunatímum og kóreografíu tímum og fannst ég vera gera skemmtilega hluti sem höfðuðu til þeirra. Svo þær langaði til að vinna með mér. :)Ég luma á nógu mörgum hugmyndum til þess að hafa getað komið mínum hugmyndum saman við þeirra ósk - þannig að mitt fyrsta kóreografíuverkefni verður semsagt dúett handa þeim tveim. Þær eru mjög ólíkar þannig að það verður smá áskorun fyrir mig að koma því öllu saman. Önnur þeirra dansaði með American Ballet Theatre í 6 ár held ég meðan hin er voða lítið fyrir ballet og meira fyrir módern. Verður spennandi að sjá. Ætla að nota óperuaríu eftir Dvorak.
Svo á ég að keyra hljóð á sýningu hjá dansflokki skólans núna um miðjan október. -Það er hluti af náminu að vinna baksviðs á sýningum sem við erum ekki að dansa í sjálf. Fáum eina einingu á önn fyrir þá vinnu. Líka gaman að kynnast öðru en bara dansinum sjálfum. Mig langar að prófa að vera sýningarstjóri líka og svoleiðis - maður getur komið fram með séróskir um hvað mann langar til að gera. Bekkjarfélagi minn hann Benjamin verður sýningarstjóri á þessari sýningu sem ég keyri hljóðið.
Semsagt nóg við að vera hjá mínum .... Eins og alltaf liggur mér við að segja :)
Mér leiðist þá ekki á meðan hehehehe
Það er best ég fari að snúa mér að lærdómnum - skrifa aftur fljótt
bestu stóreplakveðjur,

Sunday, September 19, 2004
Halló (þitt nafn hér)!
(Gunnar vinur minn var að kvarta undan því að ég ávarpaði hann aldrei persónulega hérna á blogginu mínu - og honum var alveg sama þó aðrir læsu þetta líka hehehe- hann vantaði persónulegt ávarp - Gunnar minn!!!- þetta er semsagt til þín (og ykkar líka)hehehehe )
LETISTUÐ !!!!
úff þvílíkt letistuð sem er búið að vera á mér í dag og í gær. Maður er reyndar orðinn það gamall að ég þarf að pína mig til að sofa frameftir. Ég er vaknaður klukkan svona 8 á morgnana um helgar - og þarf að taka á honum stóra mínum til að sofa fram eftir. Náði að sofa til klukkan 10:45 í gærmorgun en eitthvað skemur í morgun. Vika tvö í skólanum liðin og þetta er svona smám saman að venjast. Námið er svona við það sama - mikið að gera en sumir dagar erfiðari en aðrir. -Sagði mig úr "Anatomiu" -áfangi sem ég þarf ekki að taka þar sem ég lærði svipað fag í Svíþjóð. -Fannst það samt nógu áhugavert til að langa að taka það aftur - svo gerði ég mér grein fyrir hvernig stundaskráin væri .... Anatomia er semsagt klukkan 6-7:30 á miðvikudagskvöldum eftir langan dag.....
Fimmtudagar eru samt lengstu dagarnir mínir - þá byrja ég klukkan 9 í Pilates- svo balletttími - svo moderntími - svo"directing and choreography" -svo "Dance theory and composition" og loks músík til klukkan 6:30 - Níu og hálfur klukkutími alls. Og öll fögin nema músik fela í sér einhverja hreyfingu.
Eitt svolítið fyndið hérna - eftir tíma virðist vera hefðin - sérstaklega hjá yngri krökkunum BFA nemunum að raða sér upp í röð og taka í hendina á kennaranum og þakka fyrir tímann hehehehe - ég sæi íslenska krakka í anda gera það !!!!
Og annað ! -ég rak upp stór augu einn morguninn núna þegar ég var að skoða auglýsingaskilti í lestinni á leiðinni í skólann. Auglýsing fyrir Kenneth Cole sem er amerískur hönnuður. Nú nema hvað ég veit ekki betur en ég hafi þekkt þarna íslenskt andlit - Edda Pétursdóttir sem einu sinni var í Listdansskólanum og vann einhverja módelsamkeppnina heima -skoðið auglýsinguna hér. Edda er í neðstu röð önnur frá vinstri - hvað segið þið fólk þarna heima ? Er þetta ekki rétt hjá mér ? -Maður segir bara "You go girl!!!" Gott hjá henni.
Í gær var ég bara heima og þvoði þvott og svona. Spjallaði á netinu - náði krökkunum úr dansflokknum rétt áður en þau fóru á svið fyrir Chicago - var hérna í beinni á vefmyndavélinni minni - Rosa gaman að vera með vefmyndavél. Spjallaði heillengi við hann Gunnar vin minn í vikunni líka - með bæði vefmyndavél og míkrófón. Þannig að við þurftum ekkert að pikka - bara tala saman og horfa á myndina á skjánum. -Svolítið öðruvísi en þegar ég var í Svíþjóð hérna um árið og handskrifaði bréf til Íslands. Í kvöld er spunakvöld í skólanum - músík kennararnir ætla að sjá um tónlistina og svo spinnur fólk dansa saman. Frí pizza og svona - hugsa að maður skelli sér bara.
Á föstudaginn var fór ég í partý heima hjá leiklistarkennaranum mínum sem hún heldur víst á hverju ári fyrir MFA nemendurna ásamt skólastjóra dansdeildarinnar. Þessi kona Kay Cummings er einn uppáhaldskennarinn minn -kennir mér bæði leiklist og "leikstjórn&kóreografíu" -ofsalega klár kennari og skemmtileg. Hún lék víst í einhverjum bíómyndum hér áður fyrr og á Broadway ofl ofl. Maður þyrfti eiginlega að komast yfir þessar bíómyndir :) -væri gaman að sjá.
Vaknaði upp í fyrrinótt við brjálað þrumuveður - Wesley meðleigjandi minn sagði mér svo í gærkvöldi að allar lestarsamgöngur hefðu verið úr lagi vegna flóða - það endaði með því að hann þurfti að labba í vinnuna tók hann 1.5 klukkutíma. Það var auðvitað engan leigubíl að fá eða neitt ... Eins gott að ég ákvað bara að vera heima í gær hehehe.
Ása framkvæmdastjóri dansflokksins er að koma til New York núna í vikunni ásamt Hjálmari manninum sínum - ég býst við að hitta þau einhverntímann í vikunni - Fyrsta skipti sem Ása kemur til New York og verður gaman að sjá hvernig henni líkar :) Hún varð líka fertug um daginn og þetta er semsagt afmælisgjöfin hennar -Til hamingju með afmælið aftur Ása !!!!
jæja - ég verð víst að fara að hætta þessu - klára að læra áður en ég fer í þetta dansspunapartý niðri í skóla.
Bið kærlega að heilsa öllum heima

Sunday, September 12, 2004
Sunnudagsmorgun - önnur vél af þvotti í gangi og eitt hlass í þurkaranum - búinn að borða Cheriosið mitt og kaffið bíður eftir mér frammi í eldhúsi. Dagurinn verður cirka þannig - þvo þvott - taka til og LÆRA !!! Vá - rosalega skrýtið að eiga að standa skil á heimalærdómi allt í einu - það eru þó nokkur verkefni sem bíða mín í dag.
Í gær var 11 september og þrjú ár síðan harmleikurinn við World Trade Center átti sér stað. Wesley meðleigjandi minn syngur í kirkjukór á Manhattan Grace Church og var minningarguðsþjónusta og svo sungin sálumessa eftir franska tónskáldið Gabriél Fauré - Wesley söng meira að segja smá sóló. Það er skemmst frá því að segja að þetta var eiginlega bara svolítið átakanlegt að vera þarna. Fólk var grátandi allt í kringum mig - fólk sem eflaust hefur misst einhvern nákominn í turnunum. Maður sá bæði fjölskyldur og einstæðinga. Það var ekki laust við að ég væri með kökk í hálsinum og tár í augnkrókunum. -Ekki síður kannski því mér varð hugsað til harmleiksins sem átti sér stað núna í vikunni í Keflavík - þar sem bekkjarbróðir minn til margra ára Bjarki Hafþór Vilhjálmsson dó á að mér finnst mjög dularfullan hátt miðað við opinberar útskýringar. -Það kemur alltaf við mann þegar jafnaldrar manns og skólafélagar deyja, Bjarki var ekki sá fyrsti úr mínum árgangi sem deyr - og þetta minnir mann óneitanlega á hverfulleika lífsins.
Eftir tónleikana labbaði ég sem leið lá niður Broadway og að "Ground Zero" þar sem World Trade Center stóð. Ég hef ekki komið þarna að frá því ég kom hingað til landsins og þegar ég var hérna í New York fyrir þremur árum þá stóðu turnarnir ennþá. Svona er þetta nú allt saman skrýtið. Svæðið er allt girt af - meðal annars með einhversskonar "minningarvegg" þar sem fólk hengir myndir af nákomnum og leggur blómvendi og kveikir á kertum. Flestir sem voru þarna voru greinilega bara að túristast en svo voru aðrir þarna sem greinilega voru tengdir þessu.
Eftir að hafa skoðað Ground Zero svæðið gekk ég áleiðis niður í Battery Park sem er neðst á Manhattan og hitti þar tvær bekkjarsystur mínar sem ég var búinn að mæla mér mót við og saman fórum við og horfðum á ókeypis (alltaf gott fyrir námsmenn) danssýningu í boði "Lower Manhattan Cultural Council" og "The Joyce Theater" Það voru 3 flokkar sem dönsuðu þetta kvöld - Limón Dance Company, Buglisi/Foreman Dance og Paul Taylor Dance Company. Ég var nú ekkert voða hrifinn af Limón verkinu - fannst það frekar gamaldags og snúast alltof mikið um form á líkamanum frekar en hreyfingu og frjálsan dans. Buglisi verkið var dansað af 5 konum og tileinkað þeim sem létust 11. september fyrir þremur árum. Það verk var miklu skemmtilegra áhorfs þó að dramatíkin hafi nú aldrei verið langt undan og ég var svolítið hræddur um að þær ætluðu að fara yfir strikið. En það gerðist samt ekki. Paul Taylor verkið var svo mjög áhugavert fyrir notkun á tónlistinni - mér fannst hann næstum teikna tónlistina á sviðinu með hreyfingum dansaranna. Sporin sjálf fannst mér ekkert rosa spennandi og búningarnir well.... Ljótir - sorry. hehehehe
Að sýningu lokinni settist ég svo niður með Anamarie bekkjarsystur minni frá Puerto Rico - við þurftum að tala saman um leiklistarverkefni sem við eigum að vinna saman á morgun mánudag. Þurftum sem sagt að ákveða hver við erum - hvert samband okkar er og svo er eitthvert vandamál/togstreita á milli okkar. Svo þegar við mætum í leiklistartíma á morgun eigum við að fara út á gólfið sem þessir karakterar og reyna að leysa vandamálið. -Verður spennandi að sjá hvernig þetta vinnst hjá okkur.
En það er best að ég fari að snúa mér að skólabókunum - maður verður að reyna að vera duglegur að læra. Svo maður fái góðar einkunnir og mamma og pabbi verði stolt af stráknum sínum - heheheheh.
við erum ekki enn komnir með tengingu hérna heima en ég uppgötvaði í fyrrakvöld að ég get stundum tengt mig inná þráðlaust net hjá einhverjum hérna í hverfinu. Hentugt þegar maður nennir ekki fara á Starbucks - en það er nú þannig með þessa tengingu að ég ræð engu um hana - hún kemur og fer eftir því sem eigandanum dettur í hug....
TAKIÐ EFTIR AÐ ÉG BÆTTI VIÐ TEXTA 6. SEPT HÉRNA FYRIR NEÐAN SEM ÉG SKRIFAÐI HEIMA OG ÆTLAÐI AÐ HENDA INN SEINNA.... SEINNA ER SEMSAGT KOMIÐ OG FARIÐ - TEXTINN ER INNI
Njótið og endilega haldið áfram að senda comment og póst.
Bestu kveðjur

Thursday, September 09, 2004
Jæja - þetta er bara stutt orðsending til að láta alla vita að ég er á lífi ennþá - búið að vera alveg brjálað að gera - skólinn byrjaði á þriðjudaginn var og stundaskráin er PÖKKUÐ - ég var að koma úr músík tíma með Professor Moulton eins og hann vill láta kalla sig - engar smá kröfur þar í gangi eins gott að standa sig. Tókum hraðnámsskeið í nótnalestri og eigum í næsta tíma að geta klappað nokkra takta af frekar flóknum ryþmum - eins gott að ég er með meðleigjenda sem getur hjálpað mér með svona tónlistarspurningar.
Ég býst við að geta skrifað meira á morgun þannig að ég bið ykkur öll að hafa þolinmæði - ég er einhversstaðar með eina langa frásögn sem ég á eftir að klippa og skeyta hérna inn - svo er frá mjög mörgu að segja eftir þessa fyrstu viku
Við erum sko ekki enn komnir með blessaða nettenginguna heima :( -Mér líður eins og ég sé alveg úr tengslum við umheiminn - orðinn svo vanur nettengingunni heima.
Semsagt allt í góðu hér fyrir utan hvað er brjálað að gera
bestu kveðjur

Monday, September 06, 2004
Þegar þetta er skrifað sit ég hérna við nýja 50$ skrifborðið mitt úr IKEA og horfi hérna yfir tölvuskjáinn útí garð sem á reyndar eftir að gera upp. Það er komið fram á dag – og á morgun þriðjudag byrjar skólinn á fullu. Síðasta vika var nokkuð bissí – Allskonar námsskeið og “workshop” í gangi um það hvað bíður okkar næstu vikur og mánuði í þessu M.F.A. námi hérna við Tisch.
Fimmtudagsmorgun hófst á því að ég fór á heilsugæslustöð NYU í ástandsskoðun hjá sjúkraþjálfurunum þar og þar var tékkað á nokkurnveginn öllu sem hægt er að tékka á. Held að ástandsskoðunin sem við dansarar hjá Íslenska Dansflokknum fórum alltaf í hjá Gáska sé ekki helmingi eins nákvæm. Ég kom nú samt mjög vel útúr henni miðað við marga – ég fékk blað með 3 teygjuæfingum sem ég á að gera á hverjum degi hehehe. Styrktarprófinu lauk með orðunum “you’re perfectly strong” og ég ákvað að vera svolítið góður með mig og sagði bara “of course” – íslenskur víkingur hlýtur að vera sterkur. Annars talandi um að vera sterkur úff!!!! – þarna á sjúkraþjálfunardeildinni vinnur kona að nafni Heather – hún er semsagt atvinnulíkamsræktarkona – og maður lifandi er konan mössuð – svona fyrir utan síða hárið og löngu neglurnar þá er voða lítið kvenlegt við hana. Andlitið er einhvern veginn þannig að hún gæti verið hvort heldur sem er kona eða karl og ekki þarf að taka fram að líkaminn er pjúra vöðvar. Maður fær nú bara minnimáttarkennd í kringum svona fólk. Carol sem er stelpa með mér í bekk var í þessari skoðun um leið og ég spurði mig daginn eftir hvort þetta hefði verið kona eða maður. –Þessi Carol er ansi skemmtilegt – við erum með svipaðan húmor og erum búin að hlæja mikið saman síðan þetta var. Eftirnafn hennar er Knopf – eða “hnappur” uppá þýsku –sniðugt eftirnafn að bera. Hún er ein af þeim sem eru næst mér í aldri í hópnum. Mér sýnist við vera á svona 10 ára bili – rúmlega 20 til rúmlega 30 ára gömul.
Þegar við vorum búin í sjúkraþjálfunarprófinu tók við “placement test” fyrir ballett og módern tímana – svona til að velja fólk saman í hópa sem annars skiptir ekki öllu máli – það eru 4 aðalkennarar í hvoru fagi fyrir sig – klassík og módern og í gegnum skólaárið er þessu skipt þannig að allir eru í tímum hjá öllum kennurum. Mummi er nú ekki búinn að vera nógu duglegur að koma sér í form fyrir haustið þannig að svona þegar komið var fram í miðjan tíma var minn farinn að finna mikla þreytu í lærunum og harðsperrurnar sem læddust inn þennan daginn og daginn eftir úff !!! maður lifandi – þær voru ansi slæmar. En samt lætur maður sig nú hafa þetta dag eftir dag. Svona er maður nú bilaður.
Tisch sem er listadeildin við NYU hélt Graduate Mixup á fimmtudagskvöldið var. Þar komu saman allir framhaldsnemendur – þ.e. fólk í Mastersnámi, til að kynnast fólki úr öðrum deildum. Hitti þar einn íslending, Huldar held ég að hann heiti (þið vitið hvað ég er gleyminn á nöfn)– og svo skilst mér að það sé ein stelpa líka sem er í listnámi þarna – sá hana samt ekki. Okkur fannst við vera rosa kunnuglegir enda kom í ljós að hann hafði verið í tökuliðinu sem tók upp Trópí-auglýsinguna með henni Aðalheiði í balletttíma einn morguninn í vor. Þegar við hin höfðum miklar áhyggjur af því að við sæumst í mynd hehehehe – Hann mundi sko vel eftir því og fannst það frekar fyndið
Hverfið okkar hérna er rosa fínt – við erum með garð hérna fyrir utan sem á reyndar eftir að gera fínan – Nathaniel eigandinn heyrði frá meðleigjendum mínum að ég hefði verið að vinna í mínum garði í sumar og vildi endilega fá hugmyndir – Garðurinn er ekki ósvipaður í laginu og garðurinn heima á Barónsstíg. Það er eikartré held ég í garðinum sem er örugglega ca 10-15 metrar á hæð – fallegt og myndarlegt tré. Reglulega heyrir maður í engisprettum og ég fann meira að segja eina örenda í gluggakistunni í eldhúsinu um daginn. Myndarleg dýr engisprettur – fagurgrænar og stærri en flest skordýr sem byggja Íslandið góða. Annars finnst mér ferlega kósí að liggja uppí rúmi á kvöldin og heyra í engisprettunum kyrja hérna fyrir utan. Já og svo er annað – fyrsta morguninn sem ég vakna hérna og opna augun þá sé ég lítinn sætan íkorna hlaupandi upp og niður eikartréð. Þannig að þó maður sé staddur í borg þar sem allt er meira og minna steinsteypa – gler og malbik, þá er hverfið okkar nokkuð gróið –maður missir ekki alveg tengslin við náttúruna. Og ef maður vill komast í tengsl við náttúruna er alltaf CENTRAL PARK Þar er sko alveg hægt að gleyma því að maður sé staddur í stórborg enda þessi garður alveg gígantískur að stærð.
Nú fer í hönd fyrsta skólavikan og verður hún örugglega nokkuð strembin – þetta verða 2 tæknitímar á dag og í næstu viku er Pilates tvo morgna – kennarinn ekki af verri endanum – Kathy Grant sem er ein tveggja í heiminum sem lærði beint af Joseph Pilates sjálfum og er ennþá að kenna. Mér skilst hún sé 75 ára og algjörlega af gamla skólanum. – Verður áhugavert að kynnast því. –Það er líka hægt að fá einkatíma hjá henni í tækjunum og svoleiðis – nemendur með stærri vandamál og meiðsli hafa forgang. Spurning hvort maður komist að til að styrkja betur svæðið í kringum mjóbakið þar sem brjósklosið kom. Fyrir utan tæknitímana tek ég leiklist tvisvar í viku – tónlist tvisvar í viku – leikstjórn og kóreografíu tvisvar í viku – “dance theory & composition (listin að setja saman dansverk) tvisvar í viku – dansgagnrýni einusinni í viku og anatómíu/hreyfifræði einu sinni í viku. Stundaskráin er semsagt ansi þétt setin og svo fyrir utan þetta allt saman koma æfingar fyrir sýningar – á sýningum er maður til skiptis – danshöfundur – dansari – tæknimaður o.s.frv. Allir hjálpa öllum dæmi svona. Nokkuð sniðugt til að fá reynslu á hinum ýmsu sviðum leikhúsvinnunnar.
Þegar þetta er skrifað erum við ekki enn komnir með internet-tengingu hérna heima en eigum að fá hana á morgun. –Í dag er “labor-day” sem er almennur frídagur – og mikið rosalega vona ég nú að það standist þetta með internet-tenginguna – það er orðið ansi þreytandi og dýrt að fara alltaf á Starbucks til þess að komast á netið –

Wednesday, September 01, 2004
Mummi heilsar ykkur öllum frá Stóra Eplinu - á þessum fallega dýrðardegi 25°C í dag og ekki eins svakalega mikill raki og hefur verið -
Í dag var fyrsti opinberi "orientation & registration" dagurinn sem þýðir hvað ? Jú maður mætir á svæðið og hlustar á nokkra "fyrirlestra" um hvað fer í hönd og útá hvað þetta gengur allt saman.
Ég byrjaði í morgun á því sem kallast International Student Orientation sem er með fókusinn á alþjóða stúdenta við NYU sem eru ca 4000 - Svo fór ég klukkan 3 og hitti alla í dansdeildinni - valdi mér fög og fleira skemmtilegt - á morgun fer ég svo í balletttíma og smá modern til að sjá með hverjum ég verð í tímum - svo er smá stöðupróf í músík til að sjá hvar við stöndum öll sömul og hvernig kennarinn á að haga kennslunni. Ég er feginn að þetta er allt saman að smella saman hægt og bítandi - fer í fyrramálið í skoðun hjá sjúkraþjálfara líka til að tékka á stöðunni hvernig líkaminn er undirbúinn. Ekki ósvipað því sem dansflokkurinn gerir heima með sína dansara - svokölluð ástandsskoðun.
Jæja - minn er dauðþreyttur núna -klukkan orðin 7 og tími til kominn til að fara heim - vaknaði uppúr klukkan 7 í morgun eftir hálfgerða andvökunótt - var alltaf að vakna með einhverja draumavitleysu í gangi.... Það er alltaf sama sagan með mig nóttina fyrir eitthvað meiriháttar. Þá dreymir mig alltaf allskonar vitleysu - Þannig var það
skrifa meira seinna og endilega verið dugleg að lesa og senda mér mail eða comment - þessi síða hérna býður uppá hvoru tveggja :)
bestu kveðjur
Mummi