<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Saturday, September 25, 2004

HÆ HÓ JIBBÍJEI OG JIBBÍ-Í-JEI !!!!
Haldiði að maður sé ekki bara kominn með almennilega nettengingu LOKSINS - það tók bara rúmar 3 vikur að ganga frá þessu..... Svona ef þið vissuð það ekki fyrir, þá tekur allt sinn tíma hérna í þessu landi - Skrifræðið er ansi mikið á köflum. Maður verður þá vonandi duglegri að skrifa héðan af -
Skólinn gengur sinn vanagang - maður er svona að venjast þessu smám saman. Þetta er allt spurning um tímastjórnun og skipulag.
Ég held ég sé hreinlega búinn að gefast upp gagnvart tryggingaskrifstofunni hérna - Tryggingastofnun á Íslandi greiðir sjúkrakostnað námsmanna erlendis á meðan á námi stendur og ætlaði ég að láta það duga hreinlega. -En nei, skólinn hérna setur það strangar kröfur um tryggingar að það er ekki nóg. Fyrst gerðu þær nú athugasemd við það að það væri ekkert hámark tekið fram á pappírunum sem ég fékk frá Tryggingastofnun hér þarf maður að hafa tryggingu uppá 75.000$ per "veikindi" -heima er ekkert svona þak á tryggingum einfaldlega - þeir borga sjúkrakostnaðinn þangað til þér er batnað - ekki þangað til þú ert búinn með 75.000 dollara kvótann.... -Gekk ekkert smá erfiðlega að koma þeim í skilning um það. En svo er annað og það strandar eiginlega á því - 15.000 dollara heimflutningstrygging ef ég tæki nú uppá því að veikjast alvarlega eða deyja - þá verða þeir að vera vissir um að það lendi ekki á þeim að borga undir mig flutning heim til Íslands. -Ég held ég nenni einfaldlega ekki að berjast í þessu meira - endar með því að ég kaupi "basic" tryggingu hérna uppá rúmar 70.000 krónur. -Finnst það frekar fúlt þegar ég veit að ég er tryggður fyrir vel flestu af tryggingastofnun heima.
En svona er nú skrifræðið stundum...
Ég hitti Ásu framkvæmdastjóra dansflokksins og Hjálmar H. Ragnarsson manninn hennar núna í vikunni -þau eru búin að vera hérna síðan á mánudagskvöld og fara heim aftur á morgun sunnudag. Þetta var fertugsafmælisgjöf Ásu sem hafði aldrei komið hingað áður. Það var reglulega gaman að hitta þau og tala smá íslensku aftur við fólk af holdi og blóði. Við byrjuðum á að setjast á kaffihús rétt hjá skólanum mínum og fórum svo sem leið lá niður í Battery Park neðst á Manhattan. Þar ætluðum við að fara út að Frelsisstyttunni en höfðum misst af síðustu ferð þangað út. Fórum í staðinn með Staten Island ferjunni yfir, en á henni fær maður ansi flott útsýni yfir bæði Frelsisstyttuna og Manhattan. -Var svolítið skrýtið að horfa á Manhattan og það bara vantaði tvíburaturnana tvo sem stóðu þarna þegar ég fór í þessa sömu siglingu fyrir þremur árum þegar ég var hér. Turnarnir voru sko ca. einum þriðja hærri en aðrar byggingar þarna í kring. Þannig að þeir settu ansi mikinn svip á umhverfið. Við náðum akkúrat ljósaskiptunum á ferjunni - sigldum út í björtu en til baka í myrkri - rosalega flott að sjá borgina svona upplýsta í myrkrinu. Eftir siglinguna fórum við svo uppí "The Village", hverfið þar sem Ása og Hjálmar eru með íbúð og út að borða á Ítölskum stað Pesci & Pasta (fiskur og pasta) -Fengum fínan mat þar og ég segi bara takk fyrir mig aftur Ása ef þú ert að lesa þetta :). Svo var komið að kveðjustund og ég labbaði mér aftur uppí skóla til að ná í töskuna mína og málverk sem ég hafði notað í leiklistarverkefni fyrr um daginn. Svo fór minn bara heim að læra - klára músíkverkefni (það er eins og ég sé alltaf að vinna músíkverkefni hafið þið tekið eftir því? hehehehehe)
Annars er náttúrulega íslenskur strákur að læra við kvikmyndadeildina hérna - Hann Huldar Breiðfjörð... Við erum búnir að vera í sambandi útaf þessum tryggingarmálum og er hann að reka sig á sömu veggi og ég. Fínt að hafa einhvern sem maður getur spjallað við um þessi sameiginlegu mál. Ég lagði inn tillögu að verki fyrir sýningu sem verður í byrjun nóvember - held ég sé kominn þar inn örugglega. Ætla að semja dúett fyrir tvær stelpur í bekknum mínum sem komu til mín og báðu um að fá að dansa fyrir mig þegar ég semdi verk. -Mér fannst það nú svolítið skemmtilegt - þær hafa semsagt séð til mín í spunatímum og kóreografíu tímum og fannst ég vera gera skemmtilega hluti sem höfðuðu til þeirra. Svo þær langaði til að vinna með mér. :)Ég luma á nógu mörgum hugmyndum til þess að hafa getað komið mínum hugmyndum saman við þeirra ósk - þannig að mitt fyrsta kóreografíuverkefni verður semsagt dúett handa þeim tveim. Þær eru mjög ólíkar þannig að það verður smá áskorun fyrir mig að koma því öllu saman. Önnur þeirra dansaði með American Ballet Theatre í 6 ár held ég meðan hin er voða lítið fyrir ballet og meira fyrir módern. Verður spennandi að sjá. Ætla að nota óperuaríu eftir Dvorak.
Svo á ég að keyra hljóð á sýningu hjá dansflokki skólans núna um miðjan október. -Það er hluti af náminu að vinna baksviðs á sýningum sem við erum ekki að dansa í sjálf. Fáum eina einingu á önn fyrir þá vinnu. Líka gaman að kynnast öðru en bara dansinum sjálfum. Mig langar að prófa að vera sýningarstjóri líka og svoleiðis - maður getur komið fram með séróskir um hvað mann langar til að gera. Bekkjarfélagi minn hann Benjamin verður sýningarstjóri á þessari sýningu sem ég keyri hljóðið.
Semsagt nóg við að vera hjá mínum .... Eins og alltaf liggur mér við að segja :)
Mér leiðist þá ekki á meðan hehehehe
Það er best ég fari að snúa mér að lærdómnum - skrifa aftur fljótt
bestu stóreplakveðjur,
Mummi
Comments: Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?