My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Thursday, February 24, 2005
Bara stutt hérna - í þetta skiptið... komið miðnætti og minn á að vakna kl 7:30 í fyrramálið að vanda.
Ég fór semsagt í segulómskoðun í gær-morgun og myndirnar sem áttu að taka 2 virka daga að komast til læknisins míns voru komnar sama dag uppúr hádeginu. OG já - ég er víst brotinn EN ekki á þeim stað sem þeir héldu fyrst. Þetta bein sem þeir héldu að væri brotið hefði þýtt 3 mánuði í gifsi en í staðinn fyrir að "scaphoid" beinið sé brotið þá er það radius (r á myndinni að neðan) og það tekur ekki nema 4 vikur í viðbót í gifsi. - Svo var einhver bólga í liðbandi hinummegin við úlnliðinn og það ætti vonandi að jafna sig núna við hvíldina í gifsinu.
Þannig að þetta var nú allt saman lán í óláni að það var radius en ekki scaphoid beinið sem brotnaði. Þó að 4 vikur í gifsi hljómi ekkert alltof vel - þá hljómar það sko þúsund sinnum betur en 3 mánuðir. Ég fór semsagt svo í morgun og fékk alvöru gifs í staðinn fyrir "hálf-gifsið" sem ég er búinn að vera með. Það er samt á margan hátt meðfærilegra heldur en hitt sem ég var með - ég er t.d. með alla putta fría núna meðan þumalinn var innilokaður í hinu gifsinu. Og ég á að hreyfa puttana - halda þeim í formi.
Eins gott kannski af því að ég þarf að skrifa stóra ritgerð hérna á tölvuna mína og það er ekki gott að vera lengi að pikka þegar maður þarf að skrifa langa ritgerð.
Bless í bili gott fólk
Mummi

Monday, February 21, 2005
Jæja,
alveg kominn tími á að maður setjist niður og bloggi eitthvað smá. Síðasta vika ansi strembin byrjaði eiginlega á föstudaginn 11.febrúar með afmælinu mínu - fór í leikhús að sjá hana Bridget bekkjarsystur mína dansa með Ron Brown Comapny í BAM. Svo fórum við nokkur og settumst niður inni á Manhattan og fengum okkur snarl, ég kom ekki heim fyrr en kl. 2 um nóttina og vaknaði aftur kl 7:30 til þess að fara í tíma. (Já - á laugardagsmorgni...) Er semsagt núna 4 laugardaga í röð á námsskeiði í lýsingarhönnun og svoleiðis mjög intressant og skemmtilegt. Eyddi svo lunganum úr laugardeginum í að reyna að finna búninga á mig og Kevin (uppblásin dúkka fyrir Partý) fyrir sýninguna sem var núna 17-19 feb. Sunnudeginum eyddi ég svo í heimalærdóm - aðallega tónlistarritgerð þar sem við vorum að kryfja í öreindir stutt píanóverk. Ég var að vinna í henni til kl. 5 aðfararnótt mánudags og GAT ekki farið í ballettíma þá um morguninn - svaf bara aðeins lengur og fór svo í bóklegu fögin mín eftir hádegið. Svo voru æfingar hjá okkur mánudag-þriðjudag og miðvikudag og svo sýningar fimmtudag-föstudag og laugardag. Minn ákvað svo að gera ekki neitt í gær sunnudag og í dag mánudag sem er frídagur sem betur fer :) Presidents Day - hvað svo sem það þýðir.
Fór á laugardaginn var að sjá "The Gates" í Central Park. Merkilegt fyrirbæri það og flott að sjá þetta teygja sig um allan garðinn - ég tók fullt af myndum og hér er ein sem ég er einna ánægðastur með :
THE GATES - Umhverfislistaverk Christo og Jeanne-Claude í Central Park.
Annars er bara allt á fullu - stóra verkið okkar Lisu að komast á fullt skrið - hönnuðurnir okkar á fullu í sinni vinnu og fyrsta æfing með dönsurum á morgun.
Fór í aðra röntgein-myndatöku á föstudaginn var og ekkert sem kom útúr henni, myndirnar sýna ekkert brot. Það er nú ekki allt búið enn með það því Dr. Erkes - íþróttalæknirinn sem ég hitti vill senda mig í MRI - segulómskoðun til að vera 100% viss um að allt sé í lagi þar sem röntgeinmyndir sýna ekki með sömu nákvæmni það sem segulómskoðunin sýnir. Þannig að ég þarf að ganga um með þetta blessaða gifs næstu 2 vikur í viðbót....

Mig langar svona að lokum að þakka allar kveðjurnar sem ég fékk í kringum afmælið mitt - koss og knús til ykkar allra
Takið eftir nýjum lið hérna að ofan - skemmtimynd vikunnar :) Langar til að koma þar með mynd af einhverju fyndnu/merkilegu sem ég rekst á hérna í borginni... Vonandi ný mynd vikulega - fylgjist með...
Bless í bili

Wednesday, February 09, 2005
Jæja - bara stutt að sinni :(
Mínum tókst sko að meiða sig á föstudaginn var. Ég var að sýna sólóinn minn sem ég var að semja, einhverskonar forsýning fyrir tæknifólk á MFA-sýningunni sem verður í næstu viku. Nú til að gera langa sögu stutta þá lenti ég illa úr stökki sem ég geri og meiddi mig á vinstri úlnlið. Læknarnir á "Urgent Care" -Bráðavaktinni í skólanum gátu lítið sagt mér hvað þetta var en ég hitti íþróttalækni -þ.e. sérfræðing í íþróttameiðslum, í gær miðvikudag og hann gat útskýrt þetta betur fyrir mér. ÞAð kemur tvennt til greina: annaðhvort er ég illa brákaður EÐA með brotið scaphoid-bein þarna á mörkum úlnliðs og handar SJÁIÐ HÉR litla gula beinið á myndinni. Málið er bara það, að svona brot sést ekki á röntgen myndum fyrr en eftir ca. 10-14 daga. Ég fer semsagt í aðra röntgenmyndatöku á föstudaginn í næstu viku og þá ætti þetta að koma betur í ljós. Verkurinn var mjög mikill þarna fyrstu 2-3 dagana en núna er hann svo til enginn nema ég reyni á hendina. Maður vonar bara að beinið sé óbrotið því ef svo er þá erum við að tala um 3 mánuði í gifsi takk fyrir.
Og til að stytta söguna enn meira - þá varð ég að hætta við að dansa þennan sóló minn í næstu viku þar sem álagið á úlnliðinn er of mikið. Ég fæ að aðlaga æfingarnar eins og ég vil í bæði ballett-tímum og móderntímum, þannig að það er allt í góðu lagi með það. Allir viljugir að hjálpa til og svona - Linda skólastjóri bað mig að láta sig bara vita ef það væri eitthvað sem hún gæti gert.
Mér fannst nú hálf endasleppt að vera svo bara ekkert með í sýningunni þannig að ég lagði höfuðið í bleyti og stakk uppá því að ég gerði sófaatriðið úr Partý-verkinu mínu frá 2003. Núna er semsagt allt á fullu til að koma þessu verki mínu á svið - fór í dag og fann uppblásinn dansfélaga sem ég þarf til að geta gert þetta. Sófi fannst á einni skrifstofunni í skólanum og svona þannig að þetta ætti allt að ganga upp. Málunum reddað og allt í góðu. Ég er núna í bráðabirgða-gifsi og hugsa að ég dansi bara með það - get samt tekið það af mér ef ég vil - þegar ég fer í sturtu og svona.
Ekki meira að sinni - þreytist fljótt í úlnliðnum við þetta pikkerí hérna...
Minni svo bara á föstudaginn 11.febrúar - engin afsökun ef þið gleymið honum ;) híhíhí
bestu kveðjur,
Mummi
PS er enn að vinna í myndunum - þarf að ná að minnka þær einhvern veginn, þær eru alltof stórar fyrir síðuna

Wednesday, February 02, 2005
hæ hæ
bara stutt í þetta skiptið...
klukkan að ganga 12 og langur dagur á morgun - þarf meðal annars að sýna "Composition" kennaranum mínum sólóinn minn 7 mínútna sem ég ætla að dansa á sýningu eftir 2 vikur núna. Hún á örugglega eftir að koma með fullt af gagnrýni á þetta sem maður þarf að taka tillit til og svona... hehehe
Nadia var hjá mér í nótt - kom hingað frá Boston til að sjá La La La Human Steps sem er frægur kanadískur dansflokkur - svona fyrir þá sem ekki þekkja til þeirra. Ég fór með henni á sýninguna og svo fékk hún að gista hjá mér og fór svo aftur til Boston í dag. Alltaf gaman að hitta íslendinga, vini og ættingja :)
Fullt að gera annars... er meðal annars að kryfja verk eftir Prokofiev í tónlistartímum núna - Mars úr "The Love of Three Oranges" -ekki auðvelt verkefni sko 3 blaðsíður af nótum og við eigum að segja hvað verkið skiptist í marga hluta - hvað skilur þá að og svo framvegis osfrv.
Eitt hérna að gamni - sá frétt á mbl.is - Veturinn er langt því frá búinn hérna samkvæmt þessu: Punxatawney Phil sá skuggann sinn Þeir kannast við þetta sem sáu bíómyndina Groundhog Day...
jæja - bless í bili
Ó -var næstum búinn að gleyma - búinn að versla digital myndavél fyrir jóla og afmælispeningana sem ég fékk frá familíunni þannig að þið megið búast við fleiri myndum hérna innan skams. :)