<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Wednesday, February 02, 2005

hæ hæ
bara stutt í þetta skiptið...
klukkan að ganga 12 og langur dagur á morgun - þarf meðal annars að sýna "Composition" kennaranum mínum sólóinn minn 7 mínútna sem ég ætla að dansa á sýningu eftir 2 vikur núna. Hún á örugglega eftir að koma með fullt af gagnrýni á þetta sem maður þarf að taka tillit til og svona... hehehe
Nadia var hjá mér í nótt - kom hingað frá Boston til að sjá La La La Human Steps sem er frægur kanadískur dansflokkur - svona fyrir þá sem ekki þekkja til þeirra. Ég fór með henni á sýninguna og svo fékk hún að gista hjá mér og fór svo aftur til Boston í dag. Alltaf gaman að hitta íslendinga, vini og ættingja :)
Fullt að gera annars... er meðal annars að kryfja verk eftir Prokofiev í tónlistartímum núna - Mars úr "The Love of Three Oranges" -ekki auðvelt verkefni sko 3 blaðsíður af nótum og við eigum að segja hvað verkið skiptist í marga hluta - hvað skilur þá að og svo framvegis osfrv.
Eitt hérna að gamni - sá frétt á mbl.is - Veturinn er langt því frá búinn hérna samkvæmt þessu: Punxatawney Phil sá skuggann sinn Þeir kannast við þetta sem sáu bíómyndina Groundhog Day...
jæja - bless í bili
Ó -var næstum búinn að gleyma - búinn að versla digital myndavél fyrir jóla og afmælispeningana sem ég fékk frá familíunni þannig að þið megið búast við fleiri myndum hérna innan skams. :)
Comments:
Fráært, hlakka til að sjá myndir

Funkster
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?