<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Wednesday, August 31, 2005

Jæja - bara stutt klukkan margt og svona hehehe - Erin bekkjarsystir mín bauð mér Ben og Lisu í mat í kvöld ásamt Ben kærasta Lisu sem líka er nemandi við NYU nema bara í læknanámi. Átti bara alveg yndislegt kvöld með þeim sátum og spjölluðum um heima og geima.
Ég gleymi alveg að skrifa um aðalatriðið núna í þessum síðustu færslum mínum hehehe - fór semsagt á danssýningu í Lincoln Center fyrir rúmri viku síðan verk eftir Mark Morris sem mér fannst alveg frábært - sá sko heimildarmynd um hann fyrir mörgum árum síðan í sjónvarpinu heima þar sem hann var að semja akkúrat þetta verk. Jaðraði við tæra snilld á köflum - var alveg með kökk og hroll yfir allri snilldinni.
NEMA HVAÐ - þegar hléið er að verða búið sé ég tvær unglingsstelpur standa inní miðri sætaröð ca. 4 röðum fyrir framan mig að biðja um eiginhandaráritun. Ég fór auðvitað strax að hugsa með mér hver þetta gæti nú verið en sá ekki framan í manninn fyrr en eftir að allt var búið og hann stóð upp. OG jú - það var eins og mig grunaði - sjálfur Mikhail Baryshnikov mættur á svæðið. Fyrir þá sem ekki þekkja nafnið þá er hann tvímælalaust einn af ef ekki sá allra besti dansari sem uppi hefur verið síðustu öld eða svo. Rússi sem flúði land á sínum tíma og dansaði svo aðallega hérna í USA eftir það. Hann dansaði td aðalhlutverkið í White Nights bíómyndinni - var í annarri snilldarmynd sem heitir Turning Point - Dancer var enn ein bíómynd. Að ógleymdu gestahlutverki í síðustu þáttaröð Sex and the City þar sem hann lék rússneskan listamann sem Carrie féll fyrir þangað til hún áttaði sig á að það var Mr. Big sem hún vildi. Það var nú ekki laust við að ég fengi bjarma í augun af því að líta goðið eigin augum. Hef því miður aldrei séð hann dansa live - bara á videoi og maðurinn er hreinn og beinn snillingur. Takið aðaláhugamálið ykkar - uppáhaldstónlistarmann eða eitthvað af þannig kaliber - og þá vitið þið hvað þetta var merkilegt í mínum augum. White Nights bíómyndina sá ég í bíó á táningsaldri þegar ég var svona að uppgötva dansinn og ólst svo upp með Baryshnikov sem aðal átrúnaðargoðið. Eða Misha eins og við köllum hann í dansheiminum hehehe.
Ég þjáist bara að stjörnuhræðslu þannig að ég þorði auðvitað ekki/ kunni ekki við að labba upp að honum og kynna mig. Held mig vanti þetta unglingsstúlku gen sem skammlaust treður sér inní miðja röð í leikhúsi til að sníkja eiginhandaráritun. Mér finnst voða kúl að hafa séð hann samt.
Nýnemarnir eru mættir í bæinn - maður sér þau labba á háskólasvæðinu og á morgun eiga þau víst að mæta til skráningar og svoleiðis eins og yðar einlægur fyrir ári síðan. Ótrúlegt hreint - mér finnst eins og ég hafi komið hingað í gær bara.
Jæja -best ég fari að halla mér - það var eitthvað annað sem ég ætlaði að minnast á en ég man það ekki í augnablikinu. Tók til í herberginu mínu og skúraði gólfið. Voða dulleur :)
segi bara góða nótt (eða dag eða morgun eða kvöld -fer eftir hvenær þetta er lesið...)
xxx
Mummi

Sunday, August 28, 2005

jæja - haldiði að maður sé duglegur !!!
ný sjálfsmynd þarna efst - ný mynd vikunnar... og fleiri myndir koma með þessari færslu :)
Ég sit hérna og borða ís - lokaður inní herbergi með loftkælinguna mína á - ekkert voðalega heitt úti þannig lagað - ekki nema 25°C EN rakinn er um 70% og þá er ekkert ferlega þægilegt að vera á ferðinni. Frammi í stofu og eldhúsi er tilfinningin svolítið eins og að vera í búningsklefa sundlaugar. Rakinn er bara það mikill. Helgina eftir að ég kom út aftur fór ég á eina af mörgum ströndum hérna - ca 45.mín með lest frá miðborginni
gaman hjá mínum á ströndinni
LONG BEACH úti á Long Island
Þessi næsta mynd er svo af mér þá um kvöldið heima hjá Erin bekkjarsystur minni ca 33°C úti og sólin búin að skína allan daginn á gluggana hjá henni og slökkt á loftkælingunni - þá svitnar maður svona smá hehehe
it's too darn hot!
Held við verðum að kæla þetta aðeins niður... Fór á Gullfoss og Geysi með henni Sollu minni heima í Íslandi í sumar. Tók smá video af vatninu þarna á Gullfossi - er að kokka smá videoverk í hausnum og vantaði svoleiðis myndir - kemur vonandi eitthvað útúr því.
fyrsti í hausti held ég bara - kólnaði snögglega þarna daginn eftir Gay-Pride
Kyle bekkjarfélagi minn hélt svo uppá afmælið sitt sunnudaginn 14. ágúst með því að bjóða nokkrum velvöldum í keilu - fyrsta skipti sem ég fer í keilu á ævinni hehehe
Er víkingurinn ekki bara vígalegur?
Svo í gær þann 27. ágúst fór ég í gær á hina árlegu "Wigstock" hátíð sem haldin var í 20. sinn. -Eins og einhver er kannski þegar búinn að geta sér til þá er þetta dragshow þar sem allar helstu drag-drottningar New York borgar og víðar koma saman til að skemmta sér og öðrum. Mörg atriði mjög flott á sviðinu en þessi var eiginlega sætust - var að dreifa miðum varðandi eftirpartýið sem var boðið til...
hann eða hún...?
Segi þetta gott í bili og stefnan er að vera svolítið duglegri að skrifa núna í vetur...
Einhver kvartaði undan því að ekki væri hægt að fá tilkynningu þegar það kemur ný færsla inn - ef fleiri vilja eitthvað svoleiði system er ekkert mál að búa til smá póstlista þar sem ég myndi senda email með svoleiðis tilkynningu - smellið bara á linkinn hérna uppi til hægri og sendið mér póst um að þið viljið komast á póstlista :)
koss og knús
Mummi

Friday, August 26, 2005

jæja - þá kom nú að því að ég skrifaði hérna nokkrar línur - klukkan rétt rúmlega 1 aðfararnótt laugardags. Rétt rúm vika þangað til skólinn byrjar aftur og allt að bresta á. Ég hef notað sumarið mikið til svona innri íhugunar - verið mikið í "hver-er-ég?" pælingum hvaðan er ég að koma - hvert er ég að fara og svo framvegis. Það var yndislegt að koma heim í sumar rifja upp kynni af landi og þjóð - ekki síst vinum og vandamönnum. En að sama skapi fannst mér voða gaman að koma aftur hingað út - þessi borg kennd við Nýju Jórvík er alveg ferlega mögnuð. Kitlar mig alveg rosalega að vera kominn hingað aftur. Ég er kannski ekki alltaf sammála stefnu stjórnvalda - eða almenningsáliti og siðvenjum hérna. EN - það verður ekki frá þessari borg tekið að hún hefur á mig einhver álagaáhrif.
Ég hef frá mörgu að segja - margt búið að brjótast um í kollinum á mér þá fyrst og fremst framtíðin - hvað tekur við þegar námi líkur. Sem stendur bera fæst orð minnsta ábyrgð EN það eru mörg verkefni í mínum kolli sem mig langar til að hrinda í framkvæmd. Eitt af því er að búa til heimasíðu til að koma mér og minni list á framfæri... EN fyrst þarf víst að koma með nafn á barnið og finna lén við hæfi - einhverjar hugmyndir?
Ég þarf líka að henda inn nokkrum myndum hérna bæði að heiman og eins eftir að ég kom út aftur. Skipta út mynd vikunnar sem er búin að standa hérna síðan í maí held ég hehehe ekki nógu gott - örugglega allir hættir að lesa þetta þar sem ég skrifa aldrei neitt. Megið alveg láta vita af ykkur ef þið sjáið þetta - smellið á comment og sendið kveðju.
bið að heilsa í bili
Mummi

This page is powered by Blogger. Isn't yours?