<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Wednesday, August 31, 2005

Jæja - bara stutt klukkan margt og svona hehehe - Erin bekkjarsystir mín bauð mér Ben og Lisu í mat í kvöld ásamt Ben kærasta Lisu sem líka er nemandi við NYU nema bara í læknanámi. Átti bara alveg yndislegt kvöld með þeim sátum og spjölluðum um heima og geima.
Ég gleymi alveg að skrifa um aðalatriðið núna í þessum síðustu færslum mínum hehehe - fór semsagt á danssýningu í Lincoln Center fyrir rúmri viku síðan verk eftir Mark Morris sem mér fannst alveg frábært - sá sko heimildarmynd um hann fyrir mörgum árum síðan í sjónvarpinu heima þar sem hann var að semja akkúrat þetta verk. Jaðraði við tæra snilld á köflum - var alveg með kökk og hroll yfir allri snilldinni.
NEMA HVAÐ - þegar hléið er að verða búið sé ég tvær unglingsstelpur standa inní miðri sætaröð ca. 4 röðum fyrir framan mig að biðja um eiginhandaráritun. Ég fór auðvitað strax að hugsa með mér hver þetta gæti nú verið en sá ekki framan í manninn fyrr en eftir að allt var búið og hann stóð upp. OG jú - það var eins og mig grunaði - sjálfur Mikhail Baryshnikov mættur á svæðið. Fyrir þá sem ekki þekkja nafnið þá er hann tvímælalaust einn af ef ekki sá allra besti dansari sem uppi hefur verið síðustu öld eða svo. Rússi sem flúði land á sínum tíma og dansaði svo aðallega hérna í USA eftir það. Hann dansaði td aðalhlutverkið í White Nights bíómyndinni - var í annarri snilldarmynd sem heitir Turning Point - Dancer var enn ein bíómynd. Að ógleymdu gestahlutverki í síðustu þáttaröð Sex and the City þar sem hann lék rússneskan listamann sem Carrie féll fyrir þangað til hún áttaði sig á að það var Mr. Big sem hún vildi. Það var nú ekki laust við að ég fengi bjarma í augun af því að líta goðið eigin augum. Hef því miður aldrei séð hann dansa live - bara á videoi og maðurinn er hreinn og beinn snillingur. Takið aðaláhugamálið ykkar - uppáhaldstónlistarmann eða eitthvað af þannig kaliber - og þá vitið þið hvað þetta var merkilegt í mínum augum. White Nights bíómyndina sá ég í bíó á táningsaldri þegar ég var svona að uppgötva dansinn og ólst svo upp með Baryshnikov sem aðal átrúnaðargoðið. Eða Misha eins og við köllum hann í dansheiminum hehehe.
Ég þjáist bara að stjörnuhræðslu þannig að ég þorði auðvitað ekki/ kunni ekki við að labba upp að honum og kynna mig. Held mig vanti þetta unglingsstúlku gen sem skammlaust treður sér inní miðja röð í leikhúsi til að sníkja eiginhandaráritun. Mér finnst voða kúl að hafa séð hann samt.
Nýnemarnir eru mættir í bæinn - maður sér þau labba á háskólasvæðinu og á morgun eiga þau víst að mæta til skráningar og svoleiðis eins og yðar einlægur fyrir ári síðan. Ótrúlegt hreint - mér finnst eins og ég hafi komið hingað í gær bara.
Jæja -best ég fari að halla mér - það var eitthvað annað sem ég ætlaði að minnast á en ég man það ekki í augnablikinu. Tók til í herberginu mínu og skúraði gólfið. Voða dulleur :)
segi bara góða nótt (eða dag eða morgun eða kvöld -fer eftir hvenær þetta er lesið...)
xxx
Mummi
Comments:
Ohhh... þú hefðir náttlega átt að stökkva á manninn... þú veist að manni er allt fyrirgefið um leið og maður segist vera frá Íslandi.... ég var sko aldeilis með unglingsstúlkugenið í mér fyrr í sumar er ég stökk á IanMacGeller..... hehe....

allavega vona að nýnemarnir séu sætir... ;o)

kveðja SB
 
Innilega sammála SB. Okkur íslendingum er fyrirgefið allt maður.

Þetta er þinn Michael Jordan. Frábært.

kveðja,

Arnar Thor
 
Veistu að ég skil þig svo vel.. þegar ég sé einhvern frægan þá yfirleitt fer ég í hina áttina eða tek stóran sveig.. gott að ég er komin með skilgreiningu á þessu.. hahahaha..
En spurning um að prófa þetta.. "HÆ! ÆM FROM ÆSLAND..!!!"
Kveðja Þórný
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?