<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Tuesday, November 15, 2005

Jamm - loksins finnst mér ég vera farinn að sjá ljósið við enda ganganna - síðustu vikur eru búnar að vera brjálæði í skólanum - alltof mikið að gera. Ég er langt því frá búinn en finnst ég vera aðeins farinn að sjá fyrir endann á þessum ósköpum. Sýningarnar síðasta fimmtudag og föstudag gengu bara vel. Samdi semsagt dúett/tríó eða hvað maður á að kalla þetta. Margrét Eir var á sviðinu og söng án undirleiks og ég og Christy dönsuðum lítinn svona ástar og saknaðardúett... Held þetta hafi bara komið ágætlega út hjá okkur, hef allavega fengið jákvæð viðbrögð.
Ég er á fullu að reyna að klára sólóinn minn fyrir desembersýningu SADC dansflokks skólans. Þarf að sýna fullkláraða útgáfu á mánudaginn í "Projects class" því svo vikuna eftir byrjar tæknivinnan á fullu.
Ég er líka að dansa í tveimur öðrum verkum eftir bekkjarfélaga mína þannig að það eru þó nokkrir klukkutímar á viku sem fara í æfingar á þessu öllu saman.
Inga frænka mín spurði mig um daginn hvort ég væri ekki farinn að hlakka til að koma heim um jólin - satt best að segja er ég búinn að vera svo bissí að ég hef varla leitt hugann að jólunum. Mér óar eiginlega bara við því hvað það er stutt eftir og ég á eftir að gera svo margt. HEHEHE en jæja - ég hef alltaf unnið best undir pressu og á síðustu stundu... Oftast er það þannig að þegar það er alltof mikið að gera eins og núna veit ég barasta ekki hvar ég á að byrja... þannig að í nokkra daga stundum vikur geri ég ekki neitt. Svo ræðst ég bara á hauginn og byrja að moka eins og ég er byrjaður að gera núna - og sækist verkið bara vel held ég.
T.d. er ég búinn að hreinsa upp nokkur svona atriði eins og að breyta flugfarinu mínu heim - átti bókað 22.des en er búinn fyrr í skólanum en ég hélt. Fékk bókuninni minni breytt núna í morgun og flýg heim 19. desember, lendi að morgni 20.des :) mátulega í alla jólaösina. Er að þvo þvott núna - vél númer 2 í morgun -vaknaði einum þremur korterum á undan klukkunni og er bara búinn að vera rosa duglegur að vinna núna í morgun.
Best að dvelja ekki of lengi við þessi skrif hérna - bið að heilsa og vonandi líður öllum vel sem lesa þetta. Þarf að fara að gera mig klárann í skólann -balletttími kl. 13:30 og svo æfingar til 18:30.
koss og knús
Mummi
Jæja, þá er það komið á hreint :
Norsk rannsókn: Fæðingarmánuður hefur áhrif á námsárangur -þetta mátti lesa á mbl.is í morgun. Samkvæmt þessu gengur þeim best að læra sem fæddir eru fyrstu 3 mánuði ársins HALLÓ!!!! minn er sko fæddur í febrúar, í miðri gósentíð námsárangurs :) -Þarna kom skýringin á því af hverju í ósköpunum mér gengur alltaf svona vel að læra hehehe

Friday, November 04, 2005

Jæja,
í dag er föstudagur - enn ein helgin að ganga í garð... Nóg að gera eins og alltaf - tók miðsvetrarpróf í 20.aldar tónlistarstögu á mánudaginn var og gekk vel að sögn kennarans. Hann mundi nú ekki alveg hvaða einkunn ég hafði fengið en sagði að ég hefði verið "in the nineties" þ.e. með + 90% árangur, einkunn uppá 9 eða meira :) Ekki slæmt miðað við hvað mér fannst ég í rauninni kunna lítið fyrir þetta próf.
Þriðjudagskvöldið fór ég á tónleika með Rufus Wainwright þeir sem þekkja mig vita hvað ég held mikið uppá hann - á allar 4 plöturnar hans t.d.. Var alveg rosalega gaman að sjá hann og heyra svona í eigin persónu. Ég er byrjaður að taka upp efni fyrir videoportrettið mitt. Held því áfram næstu daga og svo hefst raunverulega vinnan þ.e. að klippa þetta allt saman.
Er að fara núna uppí skóla - byrja daginn á rennsli á verkinu mínu sem ég samdi fyrir mig Christy og Margréti Eir - það verður sýnt í næstu viku á sýningum í skólanum. Er líka byrjaður að vinna í sólónum mínum fyrir SADC sýninguna í desember. Þannig að já - þetta kemur víst allt með kalda vatninu.
Ætla að láta þetta duga í bili - þarf að gera mig kláran í skólann
bless í bili
Mummi

This page is powered by Blogger. Isn't yours?