<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Saturday, December 16, 2006

Finnish guy teaches how to disco

Er ekki um að gera að læra smá diskó-dans fyrir áramótaböllin sem eru á næsta leiti...?

Wednesday, December 13, 2006

jæja gott fólk,
alveg kominn tími á nýja færslu hérna - það er ekki það að það sé ekkert að gerast hérna ... þvert á móti - það er bara svo mikið að gera hjá mér að ég veit ekki hvar ég á að byrja... því geri ég stundum bara ekki neitt hahaha. Soldið erfitt að koma skipulagi á hugsanir sínar og blogga í svoleiðis ástandi.
Allavega - ég er kominn með vinnu í Equinox líkamsræktarstöðinni mæti í svokallað "Corporate Orientation" hjá þeim á mánudaginn kemur sem er haldið fyrir alla nýliða sem eru að byrja hjá þessari keðju - þeir reka sko nokkrar stöðvar í borginni. Fer svo á fullt þegar ég kem aftur til landsins í janúar. Þetta er ekkert hálaunastarf svona til að byrja með - það er ekki fyrr en maður hefur lært á systemið hjá þeim og er farinn að pikka upp kúnna í einkaþjálfun sem peningarnir fara að rúlla... sjáum hvernig það gengur allt saman.
Fór á sýningu Pinu Bausch í gærkvöldi í BAM leikhúsinu í Brooklyn. Pina er í miklu uppáhaldi hjá mér - hef áður talað um hana hérna á blogginu. Nema hvað - í hléinu stökk ég af stað til að fara á klósettið og hverjum haldiði að ég hafi svo mætt í dyrunum þegar ég var að fara inná klósettið? Nú bara Keanu Reeves ! -Við vorum svona: || nálægt hvor öðrum. Hefði verið minnsta málið að strjúkast aðeins við hann hefði ég viljað hahaha. Hann horfði svo djúpt í augu mér og sagði: "you are really beautiful, do you want to go out for coffee sometime?" nei ok ... hann sagði það ekki en ég hefði alveg þegið kaffibolla með pilti hefði hann boðið það. Hann er nú ekkert ljótur pilturinn sko... Bara verst að maður var ekki kominn á klósettið fyrr! þá hefði maður kannski séð eitthvað spennandi :)
Föstudaginn var eldaði ég svo íslenskt lambalæri sem ég keypti í Whole Foods hérna - jamm - þeirri sömu og nú hótar að hætta sð selja íslenskar vörur af því að hvalveiðarnar okkar heima passa ekki að ímynd verslunarinnar. Nú þarf ríksstjórnin heima bara að gera upp við sig hvorir hagsmunirnir eru nú meiri. Ég get sagt ykkur það að eini fáninn sjáanlegur í kjötborðinu hjá þeim þarna var sá Íslenski, það er að segja Íslensku vörurnar eru þær einu sem er hampað sérstaklega og virkilega undirstrikað hvaðan þær koma. Verður sorglegt ef allt þetta markaðsstarf sem fram hefur farið hérna fer forgörðum bara svo hægt sé að veiða einhverja nokkra hvali sem varla seljast svo... Nóg af predikun - áttum ljúfa kvöldstund hérna Auður Karítas frænka mín, Erin stundum kölluð "eiginkona" mín og Pat kærastinn hennar (hljómar þetta ekki yndislega súrrealist?) Lamb, brúnaðar kartöflur, rauðkál og eitthvað fleira meðlæti. Claudia meðleigjandi sat með okkur framan af en fór svo út að hitta vinkonu sína.
Það líður óðum að því að ég fljúgi heim að fögru landi ísa - finnst ég eiga eftir að gera milljón og einn hlut áður en að því kemur. Kláraði nú samt að skrifa jólakortin í dag og vonandi verða þau komin á áfangastað fyrir jól ef ekki þá segi ég bara "sorry" hehehe - Ég hlakka mikið til að sjá ættingja og vini og ég er viss um að þessar tæpu tvær vikur eiga eftir að fljúga hjá á leifturhraða.
Jæja - nú er komið miðnætti og best að ég láti staðar numið í bili
koss og knús á línuna
Mummi

Wednesday, December 06, 2006

Jólin, jólin, jólin koma senn...
Jæja - ekki laust við að maður sé að komast í jólaskap og hlakki alveg óskaplega til þess að komast heim í faðm fjölskyldunnar. Lendi beint í hápunkt jólaundirbúningsins á Þorláksmessumorgni og verð væntanlega ennþá frekar svefndrukkinn og jet-laggaður þegar jólin svo hringja inn. Þetta verður nú ekkert voðalega langt stopp, ekki nema rétt tæpar 2 vikur. En hlakka samt voðalega mikið til að sjá vini og ættingja - ja eða þá vini sem verða á landinu alveg hreint voðalega margir þeirra sem eru annaðhvort búin eða við það að flýja land :( ´
Boltinn liggur núna hjá Equinox líkamsræktarstöðinni ég sendi þeim email á mánudaginn með Ferilskránni minni og svona fyrstu kynningu - bíð svo bara eftir að vera boðaður í viðtal hjá þeim.
Annars er ég svo að fara að vinna með Kyle bekkjarbróður mínum að verki þar sem hann semur dansana og ég mun sjá um video sem varpað verður á skjá undir sýningunni. Meira um það þegar nær dregur.
Við Margrét Eir reyndum í 4ða skipti í gær að fá miða á Chorus Line söngleikinn en þau eru með lotterí alltaf 2 tímum fyrir sýningar þar sem þeim heppnu gefst færi á að kaupa miða á besta stað fyrir rétta 20$ - miða sem annars kosta líklega um 111$ Munar um minna sko.... Það er skemmst frá því að segja að við höfðum ekki heppnina með okkur frekar en fyrri daginn. Ég segi bara eins og maðurinn sem ekkert vann í síðustu viku: "My name is cursed!" -Auðvelt að detta í svoleiðis pælingar þegar maður vinnur aldrei neitt, kannski liggur bara einhver bölvun yfir manni...
Búinn að vera duglegur að fara í bíó að undanförnu -sá "The Fountain," "Casino Royal," og svo "Babel" núna síðast... fínar myndir allt saman. Stefni á að sjá Flags of our Fathers loksins um helgina en allir 3 bræður mínir tóku nú þátt í þeirri mynd þarna í fyrra haust. Maður mætir með stækkunarglerið til að sjá hvort þeim bregði nú ekki eitthvað fyrir :) -Eitthvað var ég búinn að heyra af því að Gísli bróðir minn sjáist.
Læt þessu lokið í bili - er víst nóg að gera hjá mínum... Svo mikið að ég á erfitt með að forgangsraða, er snillingur í að skapa mér alltof mörg verkefni í einu.
Svo er fullkomnunaráráttan erfið viðureignar -eins og t.d. með heimasíðuna mína sem ég vil helst ekki að komi fyrir almenningssjónir fyrr en hún er alveg tilbúin og allt virkar eins og það á að gera... En það er nú allt að koma... Jóhannes vinur minn ætlar að hjálpa mér í tæknimálunum og svo er ég að vinna í textaskrifum og svoleiðis nokk...
Bless í bili

Saturday, December 02, 2006

Jæja gott fólk,
þá er búið að sýna blessaða stuttmyndina "plús/mínus" og fyrir þá sem misstu af má kíkja á hana HÉRNA
Annars er ég búinn að vera vinna mikið í heimasíðunni minni að undanförnu og er svona að vonast til að hún verði hæf til sýninga bara á næstu dögum. Nokkrir tæknilegir hnökrar sem mig langar til þess að leysa áður en þetta fer svona fyrir augu almennings skiljiði.... Einhver fullkomnunar árátta hjá manni svona.
Er á leiðinni að hitta Robin fyrrum bekkjarsystur mína á eftir í Equinox líkamsræktarstöðinni þar sem hún vinnur. -Má vera að hún geti komið mér að þar sem einkaþjálfara, þyrfti reyndar að vinna svo kallaðar "floor-shifts" í fyrstu 20 tíma á viku almenn aðstoð í sal. Svo þegar maður fer að pikka upp "clients" í einkaþjálfun þá fer þetta allt saman að rúlla og maður fær meira borgað. Svo er nú ekki verra að menn eins og Daniel Craig, nýji Bond er víst að lyfta þarna svo það er séns að maður rekist á hann hehehe. Sá annars Casino Royal í gær og ég er bara mjög sáttur við hann sem Bond, hann er ískaldur alveg en þarf maður ekki að vera það til þess að skjóta mann og annan eins og Bond er þekktur fyrir?
Ég læt ykkur að sjálfsögðu vita hvernig þetta fer allt saman með líkamsræktina. -Þegar framí sækir þarf maður ekki að vinna svo marga klukkutíma til þess að hafa nægar tekjur til að lifa af. Þá gæti ég notað frítímann til þess að vinna í mínum eigin verkefnum. Snjallt ekki satt?
Hef annars ekkert heyrt ennþá frá Danskeppninni sem ég sótti um vinnu hjá -það ætti að skýrast núna í byrjun Desember...
Svo kem ég heim núna um jólin og ég satt best að segja ekki beðið!!! Hef ekki komið heim síðan 15.janúar. Ég lendi á Þorláksmessumorgun og flýg aftur hingað út 5.janúar. Ekki langt frí, en samt verður kærkomið :)
Skrifa meira seinna -birti tilkynningu þegar heimasíðan kemst í gagnið
þangað til þá,
ble ble

This page is powered by Blogger. Isn't yours?