<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Wednesday, December 13, 2006

jæja gott fólk,
alveg kominn tími á nýja færslu hérna - það er ekki það að það sé ekkert að gerast hérna ... þvert á móti - það er bara svo mikið að gera hjá mér að ég veit ekki hvar ég á að byrja... því geri ég stundum bara ekki neitt hahaha. Soldið erfitt að koma skipulagi á hugsanir sínar og blogga í svoleiðis ástandi.
Allavega - ég er kominn með vinnu í Equinox líkamsræktarstöðinni mæti í svokallað "Corporate Orientation" hjá þeim á mánudaginn kemur sem er haldið fyrir alla nýliða sem eru að byrja hjá þessari keðju - þeir reka sko nokkrar stöðvar í borginni. Fer svo á fullt þegar ég kem aftur til landsins í janúar. Þetta er ekkert hálaunastarf svona til að byrja með - það er ekki fyrr en maður hefur lært á systemið hjá þeim og er farinn að pikka upp kúnna í einkaþjálfun sem peningarnir fara að rúlla... sjáum hvernig það gengur allt saman.
Fór á sýningu Pinu Bausch í gærkvöldi í BAM leikhúsinu í Brooklyn. Pina er í miklu uppáhaldi hjá mér - hef áður talað um hana hérna á blogginu. Nema hvað - í hléinu stökk ég af stað til að fara á klósettið og hverjum haldiði að ég hafi svo mætt í dyrunum þegar ég var að fara inná klósettið? Nú bara Keanu Reeves ! -Við vorum svona: || nálægt hvor öðrum. Hefði verið minnsta málið að strjúkast aðeins við hann hefði ég viljað hahaha. Hann horfði svo djúpt í augu mér og sagði: "you are really beautiful, do you want to go out for coffee sometime?" nei ok ... hann sagði það ekki en ég hefði alveg þegið kaffibolla með pilti hefði hann boðið það. Hann er nú ekkert ljótur pilturinn sko... Bara verst að maður var ekki kominn á klósettið fyrr! þá hefði maður kannski séð eitthvað spennandi :)
Föstudaginn var eldaði ég svo íslenskt lambalæri sem ég keypti í Whole Foods hérna - jamm - þeirri sömu og nú hótar að hætta sð selja íslenskar vörur af því að hvalveiðarnar okkar heima passa ekki að ímynd verslunarinnar. Nú þarf ríksstjórnin heima bara að gera upp við sig hvorir hagsmunirnir eru nú meiri. Ég get sagt ykkur það að eini fáninn sjáanlegur í kjötborðinu hjá þeim þarna var sá Íslenski, það er að segja Íslensku vörurnar eru þær einu sem er hampað sérstaklega og virkilega undirstrikað hvaðan þær koma. Verður sorglegt ef allt þetta markaðsstarf sem fram hefur farið hérna fer forgörðum bara svo hægt sé að veiða einhverja nokkra hvali sem varla seljast svo... Nóg af predikun - áttum ljúfa kvöldstund hérna Auður Karítas frænka mín, Erin stundum kölluð "eiginkona" mín og Pat kærastinn hennar (hljómar þetta ekki yndislega súrrealist?) Lamb, brúnaðar kartöflur, rauðkál og eitthvað fleira meðlæti. Claudia meðleigjandi sat með okkur framan af en fór svo út að hitta vinkonu sína.
Það líður óðum að því að ég fljúgi heim að fögru landi ísa - finnst ég eiga eftir að gera milljón og einn hlut áður en að því kemur. Kláraði nú samt að skrifa jólakortin í dag og vonandi verða þau komin á áfangastað fyrir jól ef ekki þá segi ég bara "sorry" hehehe - Ég hlakka mikið til að sjá ættingja og vini og ég er viss um að þessar tæpu tvær vikur eiga eftir að fljúga hjá á leifturhraða.
Jæja - nú er komið miðnætti og best að ég láti staðar numið í bili
koss og knús á línuna
Mummi
Comments:
vúhúúú!! Keanu Reeves ... Þú mátt fá hann og ég fæ Daniel ;-)
 
Komdu sæll og blessaður Mummi! Datt hér inn...gaman að sjá hvað þú ert búinn að vera aðhafast og hvað lífið hjá þér er búið að vera bæði skemmtilegt og þroskandi í senn. Ég óska þér ánægjulegra jóla í faðmi fjölskyldu og vina. Njóttu þess. Kv.Kalli Pálma,
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?