My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Sunday, October 23, 2005
jæja - þá er einni törn lokið og smá andrúm fyrir næstu törn. Fyrstu uppfærslu SADC - dansflokks skólans lauk í gærkvöldi og á þriðjudaginn kemur hefjast æfingar fyrir næstu uppfærslu sem fer á svið 1-3 desember. Ég var nú bara í einu verki núna í þessari sýningu en fyrir desembersýninguna er ég að semja ca 7. mínútna sóló fyrir sjálfan mig OG dansa í verkum tveggja bekkjarsystkina minna. Nóg að gera hjá mínum - þetta verða ca. 13 tímar á viku í æfingar. Hver danshöfundur fær 4.5 klst á viku til að æfa verkið sitt. Á mánudögum erum við svo með "projects class" þar sem við þurfum að sýna verkin okkar amk tvisvar áður en kemur að sýningu. Það er kennari sem situr yfir þessu öllu saman og svo gefur fólk komment og svona - verkin eru rædd -hvað má gera betur og hvað er gott. Phyllis Lamhut sem ég hef talað um áður hérna í blogginu kemur til með að leiða þessa tíma núna næsta tímabil. Hún getur verið rosa gagnrýnin þannig að það er eins gott að vera duglegur og vinna vinnuna sína vel.
Þrátt fyrir allt annríkið finnst mér alveg hreint ofsalega gaman í skólanum. Verkefnin sem við erum að fást við eru öll svo skemmtiega skapandi að maður vill gera þau vel. Þessvegna tekur kannski lengri tíma að vinna þau heldur en ella - ef manni þætti þau leiðinleg. Svo finnst mér alveg ofsalega gaman í söngtímum - hún er að gera góða hluti kennarinn minn - mér finnst ég heyra mun á röddinni minni bara núna eftir 3 tíma. Tímarnir eru alltaf teknir upp á kasettu þannig að ég geti hlustað og pælt vel í þessu öllu saman. Það er svo spennandi að geta tjáð sig í söng líka - ekki bara dansi og svoleiðis.
Ég hef smá játningu fram að færa.... - Ég horfi eiginlega sama og ekkert á sjónvarp hérna úti - hef bara engan tíma í það EN - um daginn var ég að skoða Skjás Eins vefsíðuna og haldið þið að ég hafi ekki bara orðið "húkkt" á Íslenska Bahcelornum :/ -ég veit ekkert sérlega flott sko en alveg ótrúlegt hvað svona getur límt mann við skjáinn/tölvuna. Ég er eiginlega mest hissa að það skuli hafa fengist fólk í þetta á litla íslandi... Kannski Ísland sé bara stærra en maður hélt.
Það er komið alvöru haust núna - 10°C úti og skýjað. Þvílík demba sem kom í gærkvöldi þegar við komum út úr skólanum eftir sýningu. Fórum saman nokkur úr mínum bekk á Greenwich Brewery sem er uppáhalds bar Valerie bekkjarsystur minnar. Tókum leigubíla þangað og alla leiðina rigndi jú talsvert en um leið og bíllinn stoppaði til að hleypa okkur út þá gerði þvílíka hellidembu að ég hef sjaldan séð annað eins. Það var eins og veðurguðirnir stæðu bara með slönguna og sprautuðu á okkur þvílíkur var krafturinn.
Ég vil óska vinum mínum í ABBA til hamingju með að eiga besta Eurovision lagið frá upphafi. Ég hef lengi verið ABBA aðdáandi - satt best að segja var ABBA fyrsta uppáhalds hljómsveitin mín sem ég man eftir. Hef varla verið mikið meira en kannski 6-7 ára. Þeir sem þekkja mig vel vita líka hvað ég er mikill Eurovision aðdáandi og ég verð nú að segja að mitt uppáhalds Eurovision lag frá upphafi er Sti Fotia sem Alexander Panai söng fyrir Kýpur hérna um árið... Kýpverjar - Tyrkir og Grikkir eru alltaf svo duglegir að nota sín þjóðareinkenni í lögin með flottum árangri. Mér finnst við Íslendingar mættum alveg prófa það :) koma með smá rímur - "fimmundarsöng" og kannski vikivaka ryþma :) Öllu blandað við nútímapopp í skemmtilega útgáfu.
Á næstu vikum er þetta "TO-DO" listinn minn :
-Semja 7 mínútna sóló fyrir 1.-3. desembersýninguna.
-Klára tríóið sem mjög líklega kemst inná sýningu 10/11 nóvember.
-Taka upp - klippa og gera klára 2-4 mínútna sjálfsmynd fyrir videotímann.
-Semja ca. 2ja mínútna verk fyrir tónlist þar sem við notum hljómborðið, hljóðeffecta, míkrófón og blöndum öllu saman í eina heild.
-Skrifa 10-20 bls ritgerð um framlag Andrew Lloyd Webber til söngleikjamenningar.
-Undirbúa 15 mínútna fyrirlestur með tóndæmum um sama efni. (Andrew Lloyd Webber)
-Klára tillögu um að fá að semja þetta einsmanns dæmi mitt í vor og fá inni á minna sviðinu hérna í skólanum...
Allskonar minni verkefni - lesa í tónlistarsögu etc...
Svo vonandi sofa smá og umgangast vini mína utan skóla....
SEMSAGT nóg að gera hjá mínum :)
Kannski best að koma sér í að gera eitthvað af þessu... hehehe
Er núna að þvo þvott - hef ekki hent í vél í tvær vikur núna og var orðið ansi lítið úrval af fötum hérna til að fara í. Þarf eitthvað að taka til og svoleiðis líka - skrifa nokkur email og svoleiðis.
Segi bara bless í bili
Mummi
Saturday, October 15, 2005
Oftast nær er það nú þannig að þegar ég er ekkert að blogga þá er alveg brjálað að gera - undanfarnir dagar eru sko engin undantekning þar á. Mér finnst eins og ég hafi eittþúsund og sautján hluti á listanum mínum yfir hluti sem ég þarf að gera. Það er alveg fullt að gera í skólanum - eiginlega miklu meira en ég hélt að yrði þennan vetur. En álagið er einhvern veginn öðruvísi samt núna. Ég er t.d. núna þessa dagana að vinna í verkefni fyrir tónsmíðakúrsinn minn - samdi litla melódíu á píanó sem ég þarf svo að útsetja fyrir 8 mismunandi hljóðfæri sem eiga öll að spila í einu á einhverjum tímapunkti í verkinu. Mér finnst í rauninni merkilegt hvað maður eins og ég sem kann í rauninni voða lítið í tónlist getur fundið upp. Ég sat í eina fimm klukkutíma í hljóðstúdíói skólans um síðustu helgi og lék mér á píanóið og tölvuna sem er tengd hljómborði. Svo spilaði ég melódíuna fyrir kennarann og bekkinn á píanó í síðasta tíma hehehe - og ég kann ekki á píanó sko!!! Get spilað þetta lag mitt samt. Þetta er ferlega skemmtilegt - ný tegund sköpunar sem ég hef aldrei fengist við áður. Svo erum við að sigla inní stórt verkefni í video-kúrsinum "Dance for Camera". Við eigum semsagt alveg sjálf að búa til stuttmynd sem er sjálfsmynd. Það má vera texti og svoleiðis en aðallega eigum við að hugsa um myndbyggingu og hreyfingu - bæði okkar eigin hreyfingu og myndavélarinnar. Megum ekki fá neina hjálp við þetta -eigum að taka allt saman alveg sjálf annaðhvort með að halda á vélinni eða stilla henni upp. Megum bara hafa einhvern með okkur ef við erum að taka upp einhversstaðar í borginni þar sem hætta er á að dótinu okkar verði stolið. Þá megum við hafa einhvern með til að passa dótið okkar. Eigum fyrir næsta tíma að skila inn tillögu hvernig við byggjum þetta allt saman upp - tækjalista og lista yfir nokkur skot (image-list). Svo verðum við í þessu það sem eftir lifir annar - að taka upp myndefnið og klippa það saman í tölvuforritinu sem við erum að læra á. Nú svo um næstu helgi, fimmtudag, föstudag og laugardag er sýning hjá SADC -Second Avenue Dance Company - þetta er dansflokkur skólans sem ég er í, hluti af náminu. Ég er nú ekki að dansa mikið -er í einu verki bekkjarbróður míns en er búinn að vera að aðstoða við æfingar á "Changing Steps" sem er verk eftir Merce Cunningham. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er Merce Cunningham einn af stóru frumkvöðlunum í nútímadansi í heiminum. Hann mætti sjálfur á æfingu fyrir um viku síðan og horfði á rennsli og gaf krökkunum nokkur komment á það sem þau voru að gera. Maður fékk að taka í höndina á manninum og svona sem var náttúrulega bara skemmtilegt og svo hrundu nokkrir gullmolar af vörum hans sem voru mjög insperandi -hann var að tala um hvernig þau eiga að reyna að gera allar hreyfingar eins stórar og hægt er og þó það sé mikið um endurtekningar þá að reyna að gera hvert skipti sem hreyfing er framkvæmd sérstakt og svolítið frábrugðið hinum skiptunum. Hann benti í lokin á sólblóm sem var í blómvendi sem hann fékk og talaði um hvernig blöðin virkuðu öll eins en voru það í rauninni ekki við nánari athugun. Þannig ættu dansararnir að dansa - gera hvert spor einstakt/sérstakt.
Svo er ég að reyna að koma á smá eins-manns sýningu í vor - dansleikhúsverki sem mig langar að setja upp. Kay leiklistarkennarinn minn frá í fyrra ætlar að hjálpa mér með það - þurfum að ná samkomulagi við tæknistjórann í leikhúsi skólans. Mjög spennandi ef ég fæ þetta í gegn. Allt kostar þetta mikinn undirbúning og skipulag langt fram í tímann. Svolítið ólíkt því sem ég er vanur - er miklu meira maður andartaksins. Ég er með tvö verk í bígerð núna í haust - annað verkið er dúett/tríó þar sem ég dansa sjálfur ásamt stelpu sem heitir Christy og er í skólanum. Margrét Eir ætlar að syngja á sviðinu með okkur og ég er svona að skoða hvernig ég get tvinnað saman hennar söng og dansinn okkar svo úr verði ein skemmtileg heild. Margrét er líka í námi hérna í New York. Er að skoða aðferðir konu sem ég man því miður ekki hvað heitir, við söng- og raddþjálfun. Þetta er víst mjög spennandi og skemmtilegt sem hún er að kenna og á örugglega eftir að nýtast Margréti vel við kennsluna heima. Við erum reyndar á biðlista með að komast að á þessa sýningu sem er í nóvember... Vonandi að einhver detti út - hefur eitthvað verið um það í haust að fólk hafi verið að detta út af listum fyrir sýningar. Verkin ekki tilbúin eða eitthvað svoleiðis. Svo er ég sjálfur með sóló í undirbúningi fyrir desembersýningu SADC - verður vonandi skemmtileg blanda af gleði og alvöru... Er svolítið að velta fyrir mér ástinni og samböndum. Ég verð líka í tveimur öðrum verkum á þessari sýningu sem krakkar úr bekknum mínum eru að semja. Nóg að gera hjá mínum semsagt. Félagslíf ? ...lítið -maður er aðallega svona með krökkum úr skólanum og svo hitti ég reglulega góða vinkonu mína hana Erin sem hætti í skólanum núna í haust. Hún ákvað að prógrammið væri ekki það rétta fyrir hana - er ekki að bjóða henni það sem hana langar til að gera þannig að það er ekki alveg réttlætanlegt að eyða öllum þessum peningum í skólagjöld og svoleiðis. Hún er lærður arkitekt hefur alveg nóg að gera í því svona á meðan hún skoðar hug sinn varðandi hvað hana langar til að gera í framtíðinni.
Nú svo eru að verða breytingar hérna í meðleigjandamálum. Jeffery annar meðleigjandi minn hefur ákveðið að flytja burt frá New York. Hann er að stefna á framhaldsnám næsta haust og ætlaði að flytja burt í vor. Hann er samt svo óánægður í vinnunni sinni hérna núna og erfitt að safna peningum hérna í þessari frekar dýru borg að hann ætlar að flytja aftur heim til foreldranna sem búa í Wisconsin-fylki og vinna þar frekar. Við erum komnir með nýjan meðleigjanda sem flytur inn um mánaðarmótin kemur - hann heitir Mike og er frá Þýskalandi. Wesley hinn meðleigjandi minn kynntist Mike á netinu og urðu þeir góðir vinir. Mike hefur oft komið hingað í heimsókn - komið á sýningar í skólanum hjá mér og svo framvegis. Hann vinnur á skrifstofu Sameinuðu Þjóðanna - ég er ekki alveg viss hvað hann gerir þar en ég veit að hann þurfti að vinna launalaust í langan tíma áður en hann var tekinn til greina í launað starf. Ég kann ágætlega við Mike og það er vissulega betra að fá inn einhvern sem maður þekkir heldur en einhvern ókunnugan.
Ég er búinn að fá leigjendur heima á Barónsstíginn - erum ekki búin að ganga frá samningnum við þau en foreldrar mínir hittu þau um daginn og leist bara vel á þau. Þannig að það leystist allt saman vel á endanum.
Finnst fleirum en mér eins og tíminn þjóti framhjá með hraða eldingar ? Í gær þegar það kom föstudagur fannst mér eins og það hefði verið föstudagur bara deginum áður. Ég held að þeim mun uppteknari sem maður er -þeim mun hraðar þjóta dagarnir framhjá. Ég hefði ekkert á móti því að fjölga dögunum í svona 8 per viku kannski - og áttundi dagurinn væri þá "ekki gera neitt" dagur. Ég hef verið að reyna að eiga einn þannig dag í viku en það tekst sko alls ekki alltaf og ég sé sko ekki fram á svoleiðis daga á næstunni. Þarf t.d. á æfingu á morgun, sunnudagí skólanum vegna sýningarinnar um næstu helgi. Ætla líka að nota tímann eftir æfinguna til að klára þetta tónsmíða verkefni.
Semsagt nóg um að vera hjá mínum... Ekki vera feimin við að kommentera og svona
bless í bili
Mummi
PS. LOKSINS er stytt upp hérna og sólin farin að skína aftur. Búið að hellirigna alla þessa viku. Með tilheyrandi flóðum og skemmtilegheitum. Síðasta laugardag rigndi t.d. meira þann eina dag en ágúst og septembermánuð samtals.
Tuesday, October 04, 2005
Hver segir svo að stjörnuspár hafi ekki eitthvert sannleiksgildi...
Stjörnuspá
Vatnsberi
Stjörnurnar kunna að jafna út hlutina. Þær gera fjarstæðukenndustu óskir þínar alls ekki svo fjarstæðukenndar. Þú ert hreinlega alltaf á réttum stað á réttri stund. Kannski lendurðu í partíi með einu aðalátrúnaðargoðinu þínu.
OK –þetta er semsagt stjörnuspáin mín á mbl.is í dag – OG á föstudaginn kemur hver haldiði að mæti á æfingu þá annar en Merce Cunningham sjálfur. Ok – þetta er kannski ekki beint partý með átrúnaðargoðinu en nálægt því samt. Dansflokkur skólans er semsagt búinn að vera æfa verk eftir Cunningham – Changing Steps og er ég búinn að vera til aðstoðar Cheryl sem kenndi krökkunum verkið og hefur stjórnað æfingum. Núna mætir svo Merce Cunningham á föstudaginn til að samþykkja þær leiðir sem farnar eru við uppsetningu verksins og svo framvegis. Gaman að þessu – þetta er þá í annað sinn sem maður kemst í návígi við hann kallinn en eins og einhverjir kannski muna þá kom hann með dansflokkinn sinn til Íslands haustið 2002 minnir mig.
Gaman að þessu hehehe
Brjálað að gera annars – 12 tíma dagur í dag – mætti í söngtíma kl 10 í morgun – svo í 20.aldar tónlistarsögu, þá balletttíma – svo gat sem ég notaði til að vinna verkefni fyrir “dance for camera” og hinn músík-tímann minn” Svo Projects-class þar sem við sýnum hvort öðru verkin okkar sem við erum að semja eða dansa í. Svo æfing fyrir mitt eigið verk sem sýnt verður í nóvember og svo frá 20:15- næstum 22 í kvöld… æfing með Ben bekkjarbróður mínum sem er að semja verk fyrir sýningu sem verður eftir ca 3 vikur. Pheeeew segir maður bara…. Þokkalega þreyttur og því farinn í rúmið
Bless í bili
Mummi
