<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Tuesday, October 04, 2005

Hver segir svo að stjörnuspár hafi ekki eitthvert sannleiksgildi... 

Stjörnuspá

stjörnumerkiVatnsberi

Stjörnurnar kunna að jafna út hlutina. Þær gera fjarstæðukenndustu óskir þínar alls ekki svo fjarstæðukenndar. Þú ert hreinlega alltaf á réttum stað á réttri stund. Kannski lendurðu í partíi með einu aðalátrúnaðargoðinu þínu.

OK –þetta er semsagt stjörnuspáin mín á mbl.is  í dag – OG á föstudaginn kemur hver haldiði að mæti á æfingu þá annar en Merce Cunningham sjálfur.  Ok – þetta er kannski ekki beint partý með átrúnaðargoðinu en nálægt því samt.  Dansflokkur skólans er semsagt búinn að vera æfa verk eftir Cunningham – Changing Steps og er ég búinn að vera til aðstoðar Cheryl sem kenndi krökkunum verkið og hefur stjórnað æfingum.  Núna mætir svo Merce Cunningham á föstudaginn til að samþykkja þær leiðir sem farnar eru við uppsetningu verksins og svo framvegis.  Gaman að þessu – þetta er þá í annað sinn sem maður kemst í návígi við hann kallinn en eins og einhverjir kannski muna þá kom hann með dansflokkinn sinn til Íslands haustið 2002 minnir mig.

Gaman að þessu hehehe

Brjálað að gera annars – 12 tíma dagur í dag – mætti í söngtíma kl 10 í morgun – svo í 20.aldar tónlistarsögu, þá balletttíma – svo gat sem ég notaði til að vinna verkefni fyrir “dance for camera” og hinn músík-tímann minn”  Svo Projects-class þar sem við sýnum hvort öðru verkin okkar sem við erum að semja eða dansa í.  Svo æfing fyrir mitt eigið verk sem sýnt verður í nóvember og svo frá 20:15- næstum 22 í kvöld… æfing með Ben bekkjarbróður mínum sem er að semja verk fyrir sýningu sem verður eftir ca 3 vikur.    Pheeeew segir maður bara…. Þokkalega þreyttur og því farinn í rúmið

Bless í bili

Mummi

Comments:
Blessaður,

Til lukku með goðið er ekki ættarnafnið hans, Cunningham, "slæg skinka" á íslensku. Fær mann til að velta fyrir sér á hverju fjölskylda hans lifði og þá hvoru megin réttvísinnar.

Góða skemmtun á morgun.

kveðja,

Arnar Thor
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?