<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Thursday, September 29, 2005

Mikið rosalega flýgur tíminn eitthvað hratt áfram. -Mér finnst síðasta helgi rétt búin og á morgun er föstudagur. Það verður allavega ekki um mig sagt að mér leiðist neitt sérstaklega mikið....
Fór á sýningu í gamalli yfirgefinni sundlaug síðasta þriðjudag sem var kannski helst merkileg fyrir verkefnið sem slíkt - stórt svæði og margir dansarar. Dansinn sem slíkur var ekkert spes - þ.e. sporin sjálf - en það var margt leikrænt sem var skemmtilegt og ýmsar svona óvæntar uppákomur.
Þriðjudagsmorgun mætti ég í Central Park til að filma bekkjarbróður minn einn fyrir kvikmyndakúrsinn minn - ég vísaði svona svolítið til Sound of Music bíómyndarinnar og vakti þetta bara heilmikla kátínu hjá bekkjarsystkinum mínum og kennaranum. Ég verð að reyna að koma því á netið eða senda þeim sem áhuga hafa eða eitthvað hehehe -ég var nokkuð ánægður með þetta allavega.
Hlustaði loksins á söngtímann minn frá síðasta mánudegi í gærkvöldi og það er ekkert spes reynsla að heyra sjálfan sig gera allskonar mistök sko... -Liggur við að maður vorkenni bara greyið Patriciu kennaranum mínum hehehe. -EN maður er víst þarna til að læra... Ég lofa að gefa ekki út disk fyrr en ég er búinn að ná almennilegum tökum á söngnum :) -Ef að það þá gerist einhvern tímann.
Það er aðeins farið að koma haust í loftið núna finnur maður - fór niður í 14°C í dag... Ekki laust við að manni hafi næstum verið kalt.
Annars er maður mikið að skoða tæknimálin öll - erum að læra allskonar skemmtilega tækni í bæði músík- og kvikmyndatímanum. Eyddi klukktíma rúmum í dag í að finna útúr því hvernig ég gæti komið upptöku af einu verkinu mínu frá í fyrra inná tölvuna mína. -Það tókst á endanum og er stefnan að koma öllum verkunum mínum á DVD sem er nú öllu varanlegra heldur en VHS spólur.
Meira af því síðar.
ætla að segja þetta gott í bili held ég bara
koma mér snemma í rúmið og lesa svolítið
ble ble
Mummi

Sunday, September 25, 2005

jæja - dagur að kveldi kominn...
búinn að vera alveg hreint rosa duglegur í dag - þvoði 4 vélar af þvotti, skúraði herbergið mitt, ganginn og tók allt baðherbergið í gegn. Þreif þar að auki eldavélina og gerði aðeins snyrtilegra í eldhúsinu. 'Gi dulleur? :)
Á sunnudögum er mjög algengt að sjá svörtu fjölskyldurnar hérna í hverfinu ganga til kirkju í sína fínasta pússi. Það eru nokkrar kirkjur hérna í kring og virðast þær aðallega vera sóttar af blökkumönnum. Mig langar einhvern sunnudaginn að bregða mér í ekta gospelmessu - sitja bara aftast og hlusta á sönginn. Söngtími hjá mér í fyrramálið - fyrsti alvöru tíminn okkar saman... síðasti tími fór aðallega í að kynnast og finna út hvaða rödd ég syng. Hefði nú reyndar alveg getað sagt henni að ég væri baritónn, -hún komst allavega að þeirri niðurstöðu eftir að hafa prófað mig aðeins.
Í gær fór ég í hljóðstúdíó skólans til að vinna að verkefni fyrir næsta tíma. Áttum að búa til hljóðmynd við ljóð sem við sömdum um daginn. Nú það er skemmst frá því að segja að ég tékkaði mig inn klukkan 16:25, jú leit á klukkuna um 6 leytið og svo vissi ég ekki fyrr en klukkan var orðin ÁTTA !!!! Semsagt búinn að sitja við tölvuna og hljómborðið í tæpa fjóra tíma. Ekkert mál að gleyma sér svona. ÉG var nokkuð ánægður með útkomuna hjá mér - allavega fékk ég svona kátínukitl í magann þarna undir lokin þegar fór að koma einhver mynd á þetta hjá mér. Sjáum til hvað kennarinn segir í næsta tíma þegar við spilum þetta fyrir hina...
Eitt það leiðinlegasta sem mér finnst ég sjá hérna er heimilislaust fólk sem er annsi víða - nú eða bara betlarar hingað og þangað um borgina. Það er nú einn fótalaus maður sem býr hérna rétt hjá í bíl sem er lagt fyrir utan kirkju tveim götum héðan. Hann fer allra sinna ferða í hjólastól en bíllinn er hans heimili. Þarna svaf maðurinn í fyrravetur meðan mér var hvað kaldast hérna inní herberginu mínu sem er með þynnri veggi og því minna einangrað en aðrir veggir hússins. Maður hefur það nú ótrúlega gott miðað við marga aðra. Um daginn þegar ég var að labba í skólann sá ég svo ungann mann, pönkara sem lá og svaf á gangstéttinni við 2nd Avenue þar sem skólinn minn er. Þar sem hann var sofandi gat ég virt hann vel fyrir mér þegar ég labbaði framhjá og það sem var nú ótrúlega fallegt í þessu öllu var friðurinn yfir andlitinu á honum þar sem hann svaf. Dótinu hans var svo raðað skipulega í kringum hann þarna á gangstéttinni. Seinna þennan sama dag sá ég hann svo í almenningsgarði rétt hjá skólanum og var nú eitthvað meira veldi á honum þar í vinahópnum heldur en fyrr um morguninn. Pönkarar eru nú oftast með einhverja svona fyrirferð og klæðast heldur ógnvænlegum fötum - án þess að ég sé að dæma einn né neinn. Mér fannst bara merkilegur munurinn á þessum sama manni um eftirmiðdaginn þar sem hann sat á sumbli með félögunum og þarna um morguninn þar sem hann lá sofandi á gangstéttinni. Mér finnst erfitt að loka á betlarana hérna og segja "I'm sorry" þegar maður er beðinn um peninga... En hvar á maður að draga mörkin þegar allur þessi fjöldi reikar um göturnar. Já New York er svo sannarlega borg mikilla andstæðna, Því svo sér maður ríkidæmið mjög víða...
Ég er að hugsa um að nota kvöldið til að lesa í skólabókunum og undirbúa mig fyrir vikuna...
Takk fyrir að lesa og ekki vera feimin að kvitta - sérstaklega þið sem aldrei kvittið eða kommentið á neitt hehehe ;)
ble ble
Mummi

Saturday, September 24, 2005

Jæja - og þá að öðrum málum...
Leigjandinn minn hefur ákveðið að segja upp íbúðinni heima á Barónsstíg þannig að núna verð ég að finna annan leigjenda sem fyrst - hendi þessu svona út til ykkar þarna - ef þið vitið um einhvern traustan aðila sem vantar íbúð til leigu.
Annars búið að vera nóg að gera - skólinn að komast á fullt og svona. Fór í söngtíma á mánudagsmorgun - komst loksins af biðlistanum og til kennara. Líst vel á hana. Henni finnst voða gaman að vinna með dönsurum - segir þá fljótari að tileinka sér hlutina en leikararnir sem hún vinnur venjulega með. Þetta er semsagt í gegnum leiklistardeild skólans.
Svo er voða gaman hjá mér í tónlistartímum og camerutímum. Þarf að búa til mínútumynd fyrir næsta fimmtudag - er með hugmynd sem ég held að sé skemmtileg - sjáum hvað verður úr henni... Ég er á leiðinni núna í skólann og þarf að semja einhverja tónlist þar við ljóðið sem ég tók upp um daginn. Það er hljómborð þarna með allskonar hljóðum sem við eigum að nota til að taka upp hljóðmynd við ljóðið. Græjukallinn í mér aldeilis að fá útrás núna.
Svo er ég á fullu að undirbúa tvö verk sem ég ætla að semja og sýna núna í haust í skólanum. Verð með sóló fyrir sjálfan mig á desembersýningu SADC -Second Avenue Dance Company, sem er dansflokkur skólans - svo verð ég með annað verk á meira óformlegri sýningu í skólanum í nóvember. Ætla þar að dansa dúett við stelpu úr skólanum - náðum vel saman í móderntímum í fyrra. Margrét Eir ætlar að syngja live á sviðinu með okkur sem er mjög spennandi. Ætlum að leika okkur svolítið með lagið "Nights in White Satin"
Nú og svo er ég aðstoðarmaður við æfingar hjá SADC á verki eftir Merce Cunningham sem verður á októbersýningunni okkar. Sú sem er að kenna verkið, Cheryl Therrien dansaði í mörg ár með flokknum og kom meðal annars til Íslands þarna um árið. Hennar síðasta verk með Cunningham flokknum var "Split Sides" sem engir aðrir en Sigur Rósarstrákar og Radiohead sömdu tónlistina við.
Svo er hérna linkur á nýjasta Sigur Rósarmyndbandið -rosalega flott myndband hjá þeim og alltaf flott að sjá íslenska náttúru í aðalhlutverki. Ég fékk alveg kökk í hálsinn þegar ég horfði á þetta enda er ég alveg með eindæmum hrifnæmur. Það sem er svolítið scary við þetta samt er að mig dreymdi einu sinni draum fyrir mörgum mörgum árum þar sem ég gerði það sama og krakkarnir gera þarna í lokin á myndbandinu og meira að segja á svipuðum slóðum. Vil ekki kjafta hérna hvað gerist - skoðið myndbandið með því að smella á linkinn þarna að ofan. Þetta lag Glósóli var fyrsta lagið á tónleikunum þeirra þarna um daginn og alveg ótrúlega magnað hjá þeim þar. Minnti mig á herfylkingarnar þrammandi í Lord of the Ring myndunum. Frábær byrjun á frábærum tónleikum :)
jæja - ekki meira í bili nema jú - ég ætla að skipta um mynd vikunnar áður en ég logga mig út...
koss og knús
Mummi
KLUKKEDÍ KLUKK
jæja - það er víst búið að klukka mig - hann Jóhannes vinur minn sá til þess og hvað þýðir það? Jú það þýðir að ég þarf að koma hérna með 5 gagnslausar staðreyndir um sjálfan mig... samt, hver veit, aldrei að vita nema þetta geti komið einhverjum að gagni hehehe allavega svona lítur þetta þá út :
1. Ég er algjör tækjasjúklingur
2. Ég drekk oftast nær piparmyntute á morgnana, nema um helgar þá fæ ég mér kaffi.
3. Ég hef borðað jólamatinn heima hjá foreldrunum í bráðum 34 ár
4. 4.250 punktar af 26.950 fyrnast í Vildarklúbbi Flugleiða um áramótin.
5. Ég sit oft og tel allan fjandann þegar ég þarf að bíða eftir einhverju. Hvað eru margar ljósaperur í herberginu - margir naglar sem halda gereftinu á hurðinni á sínum stað, hversu margar raðir af flísum á gólfi eða vegg... (kannski efni í Rain Man 2 hehehe)

þar hafið þið það - 5 gagnslausar -allavega gagnlitlar staðreyndir um sjálfan mig ég er að hugsa um að halda við þessari hefð og klukka vini mína Arnar og Siggu Birnu og Guðnýju Þóru frænku mína.

Tuesday, September 13, 2005

bissí bissí...
jæja - afsakið biðina á skrifum hjá mér - búið að vera mikið að gera að undanförnu. Stína frænka mín og Bössi maðurinn hennar eru í bænum núna og dró ég þau greyin um alla borg bæði á laugardaginn og sunnudaginn. Þau eru hérna í brúðkaupsferðinni sinni og maður verður nú að sýna þeim ýmislegt. Ég ákvað að leggja áherslu á hin mismunandi hverfi borgarinnar en það er alveg merkilegt hvernig andrúmsloftið breytist eftir því hvar í borginni maður er. Mjög ólíkt allt saman. Svo er náttúrulega skólinn á fullu - allt að fara í gang þar og maður er svona að læra stundaskránna - vita hvar maður á að vera á hverjum tíma. Verður bissí vetur held ég en skemmtilegur. Komst að í raddþjálfun loksins - búinn að vera á biðlista og leit ekki vel út með að ég kæmist en það losnaði einn tími á mánudögum. Þetta eru 30 mínútur einu sinni í viku - einkatímar í raddþjálfun. Skemmtilegt :) -Lítur hins vegar ekki út fyrir að ég komist að í "producing essentials" -Of vinsæll kúrs til þess líklega. En jæja - hef þá bara meiri tíma í annað.
Fór í gærkvöldi á Sigur Rósar tónleikana í Beacon leikhúsinu sem er ofarlega á Broadway. Fullt hús og rosalega mikil stemning. Mjög skemmtilegt að fylgjast með fólkinu sem var þarna. Menn voru þvílíkt að lifa sig inní músíkina og alltaf rosa fagnaðarlæti þegar menn föttuðu hvaða lag þeir voru að byrja að spila. Nýju lögin fengu líka góðar viðtökur. Mér fannst rosa flott hjá þeim hvernig þeir ná að halda sándinu sem er á plötunum eiginlega alveg eins á tónleikunum. Virkilega vandaður flutningur - og ég verð að nefna ljósasjóvið líka sem var alveg saga útaf fyrir sig og bætti heilmiklu við músíkina.
Ég þarf einmitt að fara að vinna verkefni núna áður en ég fer að sofa - skrifa eina bls. um tónleikana fyrir músík-tíma. Eigum að skrifa um tvenna tónleika sem við förum á í vetur. Ágætt að nota þá þessa tónleika í það verkefni :)
Megum reyndar ekki skrifa um venjulega rokktónleika en ég held nú reyndar að Sigur Rós flokkist engan veginn undir það heldur. Músíkin þeirra er allt of hlaðin til þess.
Vona að allir hafi það gott og bið bara að heilsa í bili,
Mummi

Saturday, September 10, 2005

Smá mont svona...
las smá grein á mbl.is um daginn þar sem verið var að tala um bestu háskóla í heimi -Harvard háskólinn þarna í fyrsta sæti. Að sjálfsögðu myndi einhver segja...
En samkvæmt þessum lista þá er NYU í TUTTUGASTAogNÍUNDA (29.)sæti á lista yfir bestu háskóla í heimi. Tuttugasti og fyrsti besti skólinn í Ameríku sem þýðir að af 29 bestu háskólum í heiminum eru aðeins átta þeirra utan Bandaríkjanna. Segir ansi margt um standardinn á háskólamenntun hérna... -Allavega eru kröfurnar nógu miklar á köflum hehehe.
Auðvitað væri flottast að vera í besta háskóla í heimi - en ég held að það sé engin dansdeild í Harvard :) Annars er bara flott að vera í 29. sæti miðað við fjölda háskóla í öllum heiminum. Ég er aðeins búinn að rýna í þennan lista en finn ekki Háskóla Íslands eða Háskólann í Reykjavík á listanum. Kannski einhver ykkar finni þá... nema þeir séu ekki á listanum yfir höfuð hehehe -skildi menntamálaráðherra vita af þessu???

Friday, September 09, 2005

símskeytastíll 

3 dagar búnir – harðsperrur – vöðvakrampi – þreyta

Mikið nýtt – skemmtilegir kúrsar – líst sérstaklega vel á “dance for camera” –

Er á biðlista fyrir einn utan-deildar kúrs – “Producing Essentials” – líklegt að ég komist inn en ekki öruggt – kemur í ljós í næstu viku

Kennarinn þar töff kelling sem hefur unnið í allskonar verkefnum fyrir hin ýmsu kvikmyndastúdíó UA – MGM – Orion – Disney.....

Var yfir dreifingu á td Amadeus og Silence of the Lambs fyrir Orion...

Sigur-rósar tónleikar á mánudaginn kemur – miðarnir ekki komnir í póstinum ennþá L hringi og kvarta ef þeir eru ekki komnir á laugardaginn.

Miðarnir á tónleika Rufus Wainwright 1.nóvember komu hinsvegar í dag.... sýnir að eitthvað er ekki alveg rétt. 

Krakkarnir í dansflokki skólans sem ég er nú í líka svona opinberlega allavega hehehe – þau eru á fullu í inntökuprófum þessa dagana fyrir gesta-danshöfundana.

Ég verð aðstoðarmaður eins – líklega konu sem setur upp verk eftir Merce Cunningham.  Náði samkomulagi við kennaraliðið hérna um þetta í vor.  Langaði ekki til þess að koma hingað til þess að fara að dansa svona eitthvað eftir aðra.  Langar til að semja eigin verk.  –Líst vel á þetta samt – að aðstoða svona – aldrei að vita nema sú reynsla nýtist manni. 

Ætla núna að fara að sofa – skrifa meira seinna

Bless í bili

Mummi

Monday, September 05, 2005

jæja - þá er bara komið að því...
Skólinn byrjar á morgun og ekki aftur snúið hehehe. Ekki laust við að það sé heilmikill spenningur í manni. Fórum nokkur í gær aftur á strönd - stærri hópur núna en síðast. Var bara voða gaman vorum á gay-enda strandarinnar sem var auðvitað miklu litríkari og skemmtilegri heldur en hinum megin þar sem fjölskyldufólkið var hehehe. Enda upprunaleg merking orðsins "gay" glaður eða bara hýr... Voða fínt að geta skroppið svona á strönd - legið í sandinum - vaðið í sjónum og bara sleikt sólskinið. Hittum flesta úr nýja MFA bekknum þarna á föstudagskvöld og ég held að þetta sé bara allt hið ágætasta fólk. Maður á náttúrulega eftir að kynnast því betur þegar fram líða stundir. Á ennþá eftir að hitta nokkra úr bekknum mínum aftur og það verður örugglega skemmtilegt að gera það. Er misjafnt hver hangir með hverjum - alltaf einhverjar svona hópamyndanir. Misjafnt hverjir fíla hverja. Ég held ég geti samt sagt nú þegar að ég hef eignast rosa fína vini þarna í þessum bekk. Margir tala um að heimsækja mig þegar ég er fluttur aftur til Íslands og svona. Verður gaman þá.
Ég held við séum laus úr viðjum hitabylgjunnar að mestu þó svo að það eigi örugglega eftir að koma dagar þar sem verður mjög heitt. Í dag eru mátulegar 24°C og sól. Verður líklega eitthvað svoleiðis fram í september mánuð.
Annars verður gott að byrja aftur í skólanum - hella sér á kaf í öll verkefnin sem bíða. Mér hefur í rauninni alltaf þótt gaman í skóla. Gaman að læra eitthvað nýtt og fróðleiksþorstinn er farinn að reka mig mikið í eigin lærdóm. Bobst-bókasafn skólans er uppfullt af allskonar bókum um allskonar efni sem mig þyrstir í að læra. Er td búinn að vera að lesa nótnabækur á fullu meðan ég hlusta á viðkomandi tónverk - hlusta á heilu óperurnar og kórverkin meðan ég fylgist með í nótnabókunum. Finnst það ferlega skemmtilegt að geta gert það núna þegar maður er búinn að læra nótnalestur í skólanum. Svo er ég að lesa merkilega bók sem heitir "Relativity of Deviance" -skrifuð af félagsfræðingi sem veltir fyrir sér í þessari bók allskonar samfélagslegri "óþekkt" - fólki og gjörðum sem í einu samfélagi á einum tíma teljast ekki "korrekt". Og svo getur sama hegðun talist ósköp eðlileg einhversstaðar annarsstaðar eða á öðrum tíma.
Svo tók ég aðra bók á bókasafninu um tónlistarstjórn við bíómyndir. Kemur inná 2 fög sem ég er að fara að læra í vetur - "Dance for the Camera" og "Music composition for choreographers". -Bara að svona bækur skuli vera til finnst mér alveg frábært. Svo á maður vonandi eftir að skapa allskonar skemmtileg verk útúr þessu öllu.
Hitti Auði Karítas frænku mína á föstudaginn var - löbbuðum um borgina og svona - hún er núna að hefja nám við New School University sem er líka inná miðri Manhattan. Nú svo kemur Stína frænka mín og Bössi maðurinn hennar til New York á föstudaginn kemur og þá verður maður svona að finna uppá einhverju skemmtilegu að gera fyrir þau. Þau nýgift og svona þannig að maður verður að gera brúðkaupsferðina eftirminnilega :)
jæja - meira seinna - bless í bili
Mummi

Friday, September 02, 2005

jæja - enn eitt síðkvöldsbloggið klukkan 1 eftir miðnætti - ca 30 mínútur síðan ég kom heim eftir bissí dag. Gærdagurinn fór bara mikið í leti og tölvupælingar - er svona að prufa mig áfram með klippiforrit á tölvunni minni til að klippa saman frábærar dansmyndir sem eiga eftir að fara eins og eldur í sinu um alla jörð :) Ehaggi? hehehe
Svo loksins í dag kom ég mér af stað niður í bæ - átti fullt af erindum sem þurfti að reka. Fór í bókabúð skólans og keypti þær kennslubækur sem ég þurfti - ég hafði kíkt inná vefsíðu bókabúðarinnar og þar var manni boðið að leita að þeim skólabókum sem maður þarf að kaupa. Voða sniðugt - slær bara inn skóla Æ Dí númer - hvaða önn og í hvaða deild maður er - svo kemur vefurinn bara með bókalistann fyrir þig byggðan á því hvað fög þú ert skráður í. Í dansnámi eru náttúrulega ekki margar bækur en ég þurfti þó að kaupa 2 - eina um 20.aldar músík og aðra um að koma dansi yfir á filmu eða video. Svo keypti ég mér fire-wire kapal sem mig vantaði til að tengja video-kameruna með góðu móti við tölvuna. Fór þaðan í K-mart til að láta prenta út nokkrar myndir sem ég tók heima í sumar ætla að koma vinum og vandamönnum uppá vegg hjá mér. Svo lá leiðin niður í skóla aðeins að kíkja á liðið þar - 2 bekkjarbræður mínir voru að vinna þar -4 úr bekknum mínum eru svokallað "work-study" í vetur. Aðstoða við kennslu og skipulag í skólanum og fá á móti niðurfelld skólagjöld og einhvern smá styrk. Þurfa að vinna ca. 20 tíma á viku að jafnaði. Ég sótti um þetta líka en fékk ekki... Var víst voða erfitt að ráðstafa þessu sögðu kennararnir í vor hehehe. EN :) gleði gleði - ég fæ þó allavega styrkinn minn aftur núna þennan vetur eins og í fyrra, 15.000$ afsláttur af 33.000$ skólagjöldum - það munar sko um minna. Eftir að skoða ástandið á skápnum mínum í skólanum ákvað ég að fara og kaupa svona hillu sem maður getur sett í þessa skápa - koma svolítið betra skipulagi á það. Keypti hillu fór og náði í myndirnar- settist smá á Union Square - mælti mér mót við Erin vinkonu mína. Fór og keypti ramma undir Gullfoss :) (ja eða myndina af honum sem ég tók í sumar). Aftur niður í skóla - setti upp hilluna - rammaði inn Gullfossmyndina - hitti svo Erin sem var á æfingu í einu studioinu þar og við fórum saman í bíó að sjá The 40 year old virgin. Snilldar mynd alveg hreint. Mjög fyndin og skemmtileg - Steve Carrell sem leikur aðalhlutverkið alveg brilliant. Myndin fjallar eins og nafnið gefur til kynna um 40ára mann sem er ennþá hreinn sveinn og hvernig 3 vinnufélagar hans,eftir að komast að því, ákveða að reyna að hjálpa honum að losna við sveindóminn. Þeir hafa auðvitað allir mismunandi skoðanir á því hvernig fara á að því. Þetta er mest sótta myndin hérna vestanhafs þessa dagana - veit ekki hvort hún er komin í bíó heima - mæli allavega með henni. Svo kom ég semsagt bara heim núna fór út með ruslið því á morgun er rusladagur (ruslabílinn kemur mánudaga - miðvikudaga og föstudaga) eins gott að muna eftir því því annars situr maður uppi með fullt af drasli og vonda lykt í nokkra daga. Föstudagar eru líka endurvinnsludagar þannig að þá setur maður allt plast og gler í sér poka fyrir endurvinnslubílinn að taka það. Sniðugt.
Semsagt langur og viðburðarríkur dagur :) og minn bara nokkuð þreyttur.
Fer aftur í bæinn á morgun - stefnan er að hitta hana Auði Karítas frænku mína einhvern tímann á morgun en hún var að flytja hérna núna til að fara í nám við New School University - ég held Parsons School of Design. Svo klukkan 6 ætlum við 2.árs MFA nemar að hitta fyrsta árs MFA nemana á morgun svona til að bjóða þau velkomin - og kynnast þeim svolítið. Verður vonandi skemmtilegt :)
NÚNA hins vegar ætla ég að fara að sofa í hausinn á mér eins og pabbi sagði alltaf ;) Svona þegar hann varð pirraður á því hvað maður var að hangsa fram eftir öllu. Fékk voða saknaðarkast í gærkvöldi þegar ég var að fletta í gegnum myndirnar mínar frá í sumar til að prenta út og svona. Ég á svo æðislega fjölskyldu og vini :) sniff sniff - og ég verð að setja inn eitt svona EKTA amerískt "I LOVE YOU GUYS !!!"
bless í bili
Mummi

This page is powered by Blogger. Isn't yours?