<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Tuesday, February 27, 2007

Sælt veri fólkið :) -Er einhver að lesa ennþá? hehehe
Langt um liðið frá síðustu færslu enda strákurinn búinn að vera með eindæmum upptekinn.
Equinox dæmið er allt að þróast til betri vegar. Þessar svokölluðu "floor-shifts" eru ekkert sérstaklega skemmtilegar til lengdar og þá sérstaklega ekki vaktin sem ég stend á mánudögum frá klukkan 3-7... Þegar ég mætti í dag voru kannski 20 manns í gymminu að þjálfa - gjörsamlega dauður tími. Ég þarf ekki lengur að mæta klukkan 5:15 á mánudagsmorgnum - sem betur fer þó svo að furðulegt nokk var það farið að venjast.
Stjórarnir yfir mér þarna sögðu mér um daginn að þeir væru mjög stoltir af mér og mínum árangri. Er semsagt búinn að læra að gera svokölluð "Equifit" þar sem við fáum meðlimi í próf og tékkum á því í hversu góðu formi fólk er. Formúlan segir að fyrir hver 5 Equift sem maður gerir ætti maður að fá ca. 1 kúnna í einkaþjálfun... (Equifit er hugsað sem góð leið fyrir einkaþjálfarana að kynnast viðkomandi og selja sína þjónustu) Nema hvað - yðar einlægur er einmitt búinn að gera 5 Equifit að undanförnu og úr því hafa komið 2 kúnnar sem keyptu pakka í einkaþjálfun og frekar líklegt en hitt að 3ji kúnninn kaupi pakka á næstunni. Það myndi gera 60% árangur þar sem 20% er normið :) Ekki slæmt hjá manni sem þykist eiga mjög erfitt með að selja sig og sína þjónustu... Ég kann mjög vel við að þjálfa fólk svona - minnir mig á þá gömlu góðu daga þegar ég var að kenna við Listdansskólann. Fátt skemmtilegra að mér finnst en að vinna svona með fólki. Ég er sem stendur með 2 konur um fimmtugt og einn strák sem er tvítugur. Önnur kvennanna átti 6 tíma í einkaþjálfun útaf einhverju janúartilboði og ég er að vonast til að hún kaupi sér pakka líka í þjálfun hjá mér.
Nú og svo í kvöld tókst mér loksins að ná dönsurunum mínum saman til þess að filma 3ja kafla Benetton verkefnisins - búinn að vera að bíða eftir snjó og hentugum tíma fyrir alla dansarana...
Ég er mjög ánægður með afraksturinn og er þá bara einn kafli eftir í þessu verkefni - ætla að filma í vor þegar kirsuberjatrén blómstra í Grasagarðinum í Brooklyn :) Verður rosa fallegt að sjá það allt saman í bakgrunni
Jæja - klukkan að verða eitt - kominn tími á minn og koddann - ætla að reyna að vera duglegri að skrifa á næstunni... Námsskeiðin hjá Equinox eru núna formlega búin - ég þarf bara að taka prófið þeirra og þá má ég formlega fara að þjálfa fólk... (Er nú samt byrjaður á því - stjórarnir fylgjast bara með mér á meðan...)
Svo er maður auðvitað sjálfur að þjálfa - ekki hægt að vera einkaþjálfari og líta ekki út fyrir það :)
Var að spá í að taka fyrir og eftir myndir en ætla bara að láta það koma á óvart þegar ég kem heim næst hehehe
Jæja - góða nótt eða eitthvað svoleiðis
bless í bili
Mummi

This page is powered by Blogger. Isn't yours?