<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Saturday, October 15, 2005

Ussususs segi ég nú bara... alltof langt síðan ég bloggaði síðast.
Oftast nær er það nú þannig að þegar ég er ekkert að blogga þá er alveg brjálað að gera - undanfarnir dagar eru sko engin undantekning þar á. Mér finnst eins og ég hafi eittþúsund og sautján hluti á listanum mínum yfir hluti sem ég þarf að gera. Það er alveg fullt að gera í skólanum - eiginlega miklu meira en ég hélt að yrði þennan vetur. En álagið er einhvern veginn öðruvísi samt núna. Ég er t.d. núna þessa dagana að vinna í verkefni fyrir tónsmíðakúrsinn minn - samdi litla melódíu á píanó sem ég þarf svo að útsetja fyrir 8 mismunandi hljóðfæri sem eiga öll að spila í einu á einhverjum tímapunkti í verkinu. Mér finnst í rauninni merkilegt hvað maður eins og ég sem kann í rauninni voða lítið í tónlist getur fundið upp. Ég sat í eina fimm klukkutíma í hljóðstúdíói skólans um síðustu helgi og lék mér á píanóið og tölvuna sem er tengd hljómborði. Svo spilaði ég melódíuna fyrir kennarann og bekkinn á píanó í síðasta tíma hehehe - og ég kann ekki á píanó sko!!! Get spilað þetta lag mitt samt. Þetta er ferlega skemmtilegt - ný tegund sköpunar sem ég hef aldrei fengist við áður. Svo erum við að sigla inní stórt verkefni í video-kúrsinum "Dance for Camera". Við eigum semsagt alveg sjálf að búa til stuttmynd sem er sjálfsmynd. Það má vera texti og svoleiðis en aðallega eigum við að hugsa um myndbyggingu og hreyfingu - bæði okkar eigin hreyfingu og myndavélarinnar. Megum ekki fá neina hjálp við þetta -eigum að taka allt saman alveg sjálf annaðhvort með að halda á vélinni eða stilla henni upp. Megum bara hafa einhvern með okkur ef við erum að taka upp einhversstaðar í borginni þar sem hætta er á að dótinu okkar verði stolið. Þá megum við hafa einhvern með til að passa dótið okkar. Eigum fyrir næsta tíma að skila inn tillögu hvernig við byggjum þetta allt saman upp - tækjalista og lista yfir nokkur skot (image-list). Svo verðum við í þessu það sem eftir lifir annar - að taka upp myndefnið og klippa það saman í tölvuforritinu sem við erum að læra á. Nú svo um næstu helgi, fimmtudag, föstudag og laugardag er sýning hjá SADC -Second Avenue Dance Company - þetta er dansflokkur skólans sem ég er í, hluti af náminu. Ég er nú ekki að dansa mikið -er í einu verki bekkjarbróður míns en er búinn að vera að aðstoða við æfingar á "Changing Steps" sem er verk eftir Merce Cunningham. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er Merce Cunningham einn af stóru frumkvöðlunum í nútímadansi í heiminum. Hann mætti sjálfur á æfingu fyrir um viku síðan og horfði á rennsli og gaf krökkunum nokkur komment á það sem þau voru að gera. Maður fékk að taka í höndina á manninum og svona sem var náttúrulega bara skemmtilegt og svo hrundu nokkrir gullmolar af vörum hans sem voru mjög insperandi -hann var að tala um hvernig þau eiga að reyna að gera allar hreyfingar eins stórar og hægt er og þó það sé mikið um endurtekningar þá að reyna að gera hvert skipti sem hreyfing er framkvæmd sérstakt og svolítið frábrugðið hinum skiptunum. Hann benti í lokin á sólblóm sem var í blómvendi sem hann fékk og talaði um hvernig blöðin virkuðu öll eins en voru það í rauninni ekki við nánari athugun. Þannig ættu dansararnir að dansa - gera hvert spor einstakt/sérstakt.
Svo er ég að reyna að koma á smá eins-manns sýningu í vor - dansleikhúsverki sem mig langar að setja upp. Kay leiklistarkennarinn minn frá í fyrra ætlar að hjálpa mér með það - þurfum að ná samkomulagi við tæknistjórann í leikhúsi skólans. Mjög spennandi ef ég fæ þetta í gegn. Allt kostar þetta mikinn undirbúning og skipulag langt fram í tímann. Svolítið ólíkt því sem ég er vanur - er miklu meira maður andartaksins. Ég er með tvö verk í bígerð núna í haust - annað verkið er dúett/tríó þar sem ég dansa sjálfur ásamt stelpu sem heitir Christy og er í skólanum. Margrét Eir ætlar að syngja á sviðinu með okkur og ég er svona að skoða hvernig ég get tvinnað saman hennar söng og dansinn okkar svo úr verði ein skemmtileg heild. Margrét er líka í námi hérna í New York. Er að skoða aðferðir konu sem ég man því miður ekki hvað heitir, við söng- og raddþjálfun. Þetta er víst mjög spennandi og skemmtilegt sem hún er að kenna og á örugglega eftir að nýtast Margréti vel við kennsluna heima. Við erum reyndar á biðlista með að komast að á þessa sýningu sem er í nóvember... Vonandi að einhver detti út - hefur eitthvað verið um það í haust að fólk hafi verið að detta út af listum fyrir sýningar. Verkin ekki tilbúin eða eitthvað svoleiðis. Svo er ég sjálfur með sóló í undirbúningi fyrir desembersýningu SADC - verður vonandi skemmtileg blanda af gleði og alvöru... Er svolítið að velta fyrir mér ástinni og samböndum. Ég verð líka í tveimur öðrum verkum á þessari sýningu sem krakkar úr bekknum mínum eru að semja. Nóg að gera hjá mínum semsagt. Félagslíf ? ...lítið -maður er aðallega svona með krökkum úr skólanum og svo hitti ég reglulega góða vinkonu mína hana Erin sem hætti í skólanum núna í haust. Hún ákvað að prógrammið væri ekki það rétta fyrir hana - er ekki að bjóða henni það sem hana langar til að gera þannig að það er ekki alveg réttlætanlegt að eyða öllum þessum peningum í skólagjöld og svoleiðis. Hún er lærður arkitekt hefur alveg nóg að gera í því svona á meðan hún skoðar hug sinn varðandi hvað hana langar til að gera í framtíðinni.
Nú svo eru að verða breytingar hérna í meðleigjandamálum. Jeffery annar meðleigjandi minn hefur ákveðið að flytja burt frá New York. Hann er að stefna á framhaldsnám næsta haust og ætlaði að flytja burt í vor. Hann er samt svo óánægður í vinnunni sinni hérna núna og erfitt að safna peningum hérna í þessari frekar dýru borg að hann ætlar að flytja aftur heim til foreldranna sem búa í Wisconsin-fylki og vinna þar frekar. Við erum komnir með nýjan meðleigjanda sem flytur inn um mánaðarmótin kemur - hann heitir Mike og er frá Þýskalandi. Wesley hinn meðleigjandi minn kynntist Mike á netinu og urðu þeir góðir vinir. Mike hefur oft komið hingað í heimsókn - komið á sýningar í skólanum hjá mér og svo framvegis. Hann vinnur á skrifstofu Sameinuðu Þjóðanna - ég er ekki alveg viss hvað hann gerir þar en ég veit að hann þurfti að vinna launalaust í langan tíma áður en hann var tekinn til greina í launað starf. Ég kann ágætlega við Mike og það er vissulega betra að fá inn einhvern sem maður þekkir heldur en einhvern ókunnugan.
Ég er búinn að fá leigjendur heima á Barónsstíginn - erum ekki búin að ganga frá samningnum við þau en foreldrar mínir hittu þau um daginn og leist bara vel á þau. Þannig að það leystist allt saman vel á endanum.
Finnst fleirum en mér eins og tíminn þjóti framhjá með hraða eldingar ? Í gær þegar það kom föstudagur fannst mér eins og það hefði verið föstudagur bara deginum áður. Ég held að þeim mun uppteknari sem maður er -þeim mun hraðar þjóta dagarnir framhjá. Ég hefði ekkert á móti því að fjölga dögunum í svona 8 per viku kannski - og áttundi dagurinn væri þá "ekki gera neitt" dagur. Ég hef verið að reyna að eiga einn þannig dag í viku en það tekst sko alls ekki alltaf og ég sé sko ekki fram á svoleiðis daga á næstunni. Þarf t.d. á æfingu á morgun, sunnudagí skólanum vegna sýningarinnar um næstu helgi. Ætla líka að nota tímann eftir æfinguna til að klára þetta tónsmíða verkefni.
Semsagt nóg um að vera hjá mínum... Ekki vera feimin við að kommentera og svona
bless í bili
Mummi
PS. LOKSINS er stytt upp hérna og sólin farin að skína aftur. Búið að hellirigna alla þessa viku. Með tilheyrandi flóðum og skemmtilegheitum. Síðasta laugardag rigndi t.d. meira þann eina dag en ágúst og septembermánuð samtals.
Comments:
Úff maður fær nú bara harðsperrur við að lesa bloggið. Mikið að gera hjá þér...en það er líka gott.
En já samt þarf maður einn svona gera ekki neitt dag...Ef sjálfur skaparinn sá ástæðu til þess þá held ég að það sé nú eitthvað til í því. Farðu vel með þig og hafðu það sem best,

Þinn vinur Arnar Thor
 
Hæ hæ bara brjálað að gera hjá þér frábært :) jú ég er alveg sammála þér tíminn flýgur áframm aftur komin helgi áður en maður veit af.
Gangi þér vel með þetta allt

Kveðja Inga
 
hæ hæ, mig vantar svo símanúmerið þitt? viltu senda mér það darling, annað hvort á email eða sms 6462701397. love auður
 
HÆ hæ.. tíminn líður alltof hratt. Ég er búin með fæðingarorlofið mitt og á að byrja að vinna 1. nóv.. mér finnst það bara hræðilegt.
Kveðja Þórný
 
Sammála þessu með tíman.... mér finnst t.d. alltaf vera þriðjudagar.... dag eftir dag... en veistu hvað... við verðum bæði skráð í NYU eftir áramót... ég verð semsagt að klára ritgerðina mína fyrir vorið... .þannig að kannski útskrifumst við bara á sama tíma frá NYU... :o) ert þú annars ekki í 2 ára námi? Hvenær ætlarðu að klára?
Ástarkveðjur SB
 
Sæll minn kæri! :)
nóg að lesa og nóg að gera hjá þér sé ég :)
...ég vona að enter takkinn þinn sé ekki bilaður :/

*KnúZ!* & Koss!!
GÞG
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?