<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Monday, February 21, 2005

Jæja,
alveg kominn tími á að maður setjist niður og bloggi eitthvað smá. Síðasta vika ansi strembin byrjaði eiginlega á föstudaginn 11.febrúar með afmælinu mínu - fór í leikhús að sjá hana Bridget bekkjarsystur mína dansa með Ron Brown Comapny í BAM. Svo fórum við nokkur og settumst niður inni á Manhattan og fengum okkur snarl, ég kom ekki heim fyrr en kl. 2 um nóttina og vaknaði aftur kl 7:30 til þess að fara í tíma. (Já - á laugardagsmorgni...) Er semsagt núna 4 laugardaga í röð á námsskeiði í lýsingarhönnun og svoleiðis mjög intressant og skemmtilegt. Eyddi svo lunganum úr laugardeginum í að reyna að finna búninga á mig og Kevin (uppblásin dúkka fyrir Partý) fyrir sýninguna sem var núna 17-19 feb. Sunnudeginum eyddi ég svo í heimalærdóm - aðallega tónlistarritgerð þar sem við vorum að kryfja í öreindir stutt píanóverk. Ég var að vinna í henni til kl. 5 aðfararnótt mánudags og GAT ekki farið í ballettíma þá um morguninn - svaf bara aðeins lengur og fór svo í bóklegu fögin mín eftir hádegið. Svo voru æfingar hjá okkur mánudag-þriðjudag og miðvikudag og svo sýningar fimmtudag-föstudag og laugardag. Minn ákvað svo að gera ekki neitt í gær sunnudag og í dag mánudag sem er frídagur sem betur fer :) Presidents Day - hvað svo sem það þýðir.
Fór á laugardaginn var að sjá "The Gates" í Central Park. Merkilegt fyrirbæri það og flott að sjá þetta teygja sig um allan garðinn - ég tók fullt af myndum og hér er ein sem ég er einna ánægðastur með :
takið eftir skugganum af trénu sem varpast á tjaldið
THE GATES - Umhverfislistaverk Christo og Jeanne-Claude í Central Park.

Annars er bara allt á fullu - stóra verkið okkar Lisu að komast á fullt skrið - hönnuðurnir okkar á fullu í sinni vinnu og fyrsta æfing með dönsurum á morgun.
Fór í aðra röntgein-myndatöku á föstudaginn var og ekkert sem kom útúr henni, myndirnar sýna ekkert brot. Það er nú ekki allt búið enn með það því Dr. Erkes - íþróttalæknirinn sem ég hitti vill senda mig í MRI - segulómskoðun til að vera 100% viss um að allt sé í lagi þar sem röntgeinmyndir sýna ekki með sömu nákvæmni það sem segulómskoðunin sýnir. Þannig að ég þarf að ganga um með þetta blessaða gifs næstu 2 vikur í viðbót....
Aumingja Mummi
Mig langar svona að lokum að þakka allar kveðjurnar sem ég fékk í kringum afmælið mitt - koss og knús til ykkar allra
Takið eftir nýjum lið hérna að ofan - skemmtimynd vikunnar :) Langar til að koma þar með mynd af einhverju fyndnu/merkilegu sem ég rekst á hérna í borginni... Vonandi ný mynd vikulega - fylgjist með...
Bless í bili
Mummi
Comments: Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?