<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Wednesday, February 09, 2005

Jæja - bara stutt að sinni :(
Mínum tókst sko að meiða sig á föstudaginn var. Ég var að sýna sólóinn minn sem ég var að semja, einhverskonar forsýning fyrir tæknifólk á MFA-sýningunni sem verður í næstu viku. Nú til að gera langa sögu stutta þá lenti ég illa úr stökki sem ég geri og meiddi mig á vinstri úlnlið. Læknarnir á "Urgent Care" -Bráðavaktinni í skólanum gátu lítið sagt mér hvað þetta var en ég hitti íþróttalækni -þ.e. sérfræðing í íþróttameiðslum, í gær miðvikudag og hann gat útskýrt þetta betur fyrir mér. ÞAð kemur tvennt til greina: annaðhvort er ég illa brákaður EÐA með brotið scaphoid-bein þarna á mörkum úlnliðs og handar SJÁIÐ HÉR litla gula beinið á myndinni. Málið er bara það, að svona brot sést ekki á röntgen myndum fyrr en eftir ca. 10-14 daga. Ég fer semsagt í aðra röntgenmyndatöku á föstudaginn í næstu viku og þá ætti þetta að koma betur í ljós. Verkurinn var mjög mikill þarna fyrstu 2-3 dagana en núna er hann svo til enginn nema ég reyni á hendina. Maður vonar bara að beinið sé óbrotið því ef svo er þá erum við að tala um 3 mánuði í gifsi takk fyrir.
Og til að stytta söguna enn meira - þá varð ég að hætta við að dansa þennan sóló minn í næstu viku þar sem álagið á úlnliðinn er of mikið. Ég fæ að aðlaga æfingarnar eins og ég vil í bæði ballett-tímum og móderntímum, þannig að það er allt í góðu lagi með það. Allir viljugir að hjálpa til og svona - Linda skólastjóri bað mig að láta sig bara vita ef það væri eitthvað sem hún gæti gert.
Mér fannst nú hálf endasleppt að vera svo bara ekkert með í sýningunni þannig að ég lagði höfuðið í bleyti og stakk uppá því að ég gerði sófaatriðið úr Partý-verkinu mínu frá 2003. Núna er semsagt allt á fullu til að koma þessu verki mínu á svið - fór í dag og fann uppblásinn dansfélaga sem ég þarf til að geta gert þetta. Sófi fannst á einni skrifstofunni í skólanum og svona þannig að þetta ætti allt að ganga upp. Málunum reddað og allt í góðu. Ég er núna í bráðabirgða-gifsi og hugsa að ég dansi bara með það - get samt tekið það af mér ef ég vil - þegar ég fer í sturtu og svona.
Ekki meira að sinni - þreytist fljótt í úlnliðnum við þetta pikkerí hérna...
Minni svo bara á föstudaginn 11.febrúar - engin afsökun ef þið gleymið honum ;) híhíhí
bestu kveðjur,
Mummi
PS er enn að vinna í myndunum - þarf að ná að minnka þær einhvern veginn, þær eru alltof stórar fyrir síðuna
Comments:
Til hamingju með daginn Mummi minn og leitt að lesa þetta með úlnliðinn. Hvað rímar annars við orðið úlnliður? Minni á sögur um Sæmund fróða og viðureignir hans við skrattann.

Við erum búnir að þekkjast bara í 29 ár. Við verðum nú að gera eitthvað á næsta ári ha...30 ár ó mæ god...

jæja farðu vel með þig og já Sófaatriðið er magnað...var ekki tónlistin þar fengin af NATO ruslahaugunum á Miðnesheiðinni...kannski misminni...

Sjáumst síðar,

Arnar Thor
 
TIL LUKKU MEÐ DAGINN OG NJÓTTU VEL!!!!

Kveðja Þórný

PS vonandi fer þetta vel með úlnliðinn... krossa fingur. ;-)
 
Til hamingju með ammmilið :)
hvernig fór með nýju röntgenmyndirnar eiginlega? vonandi bara góðar fréttir.
Líka upp á amerískan máta, happy valentines. Fékkstu falleg kort, konfekt og hjartalaga blöðrur?
Farðu vel með þig, sé þig kannski fljótlega í NewYork ...
kveðjur, auðurkaritas
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?