<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Monday, September 27, 2004

Jæja !
Þá er maður orðinn frændi í öðru-veldi - Steinar bróðir kominn með aðra stelpu sem fæddist núna í morgun að því að ég best veit - 12merkur 2.890gr og 48cm og ef það er eitthvað að marka hann bróður minn þá er þetta síðbúinn tvíburi Ásdísar Evu litlu frænku minnar sem kom fyrst í heiminn fyrir rúmum 6 árum.
Skrýtið að geta ekki skroppið í heimsókn á spítalann og séð litla krílið .... Ég verð bara að láta mér duga myndir þangað til ég kem heim um jólin. -Svo má náttúrulega alltaf hafa beina útsendingu með vefmyndavélum eins og ég er búinn að gera nokkrum sinnum síðan ég kom út. Ferlega gaman
Til hamingju Steinar - Dagný og Ásdís Eva - og auðvitað allir hinir sem þátt eiga :)
Sunnudagur að kveldi kominn og tími til kominn að hátta sig og fara að sofa - enn ein busy vika framundan með nægum verkefnum.
Ég setti hérna inn nýjan link til hliðar - einn undirleikarinn í skólanum, Chris De Rosa, er með heimasíðu þar sem hann setur inn upplýsingar um sig og sín verk. Margir rosalega góðir undirleikarar - þetta er semsagt ásláttarleikari og svo er einn snillingur sem spilar á selló - hann hefur spilað bæði í balletttíma og móderntíma hjá mér. Alveg brilliant músíkant - hef ALDREI! séð manninn í samstæðum sokkum - heheheh - flott týpa og skemmtileg.
Comments:
Til lukku með nýju frænkuna... Hamingjuóskir til ykkar allra...
Kveðja Þórný
 
Hugsa sér hvað tíminn líður Mummi. Það er nú ekki langt síðan hann Steinar var að lemja á hurðina að herberginu þínu hundfúll yfir því að hann, sem var nú orðinn 4 ára, fengi ekki að vera með.

kveðja og til lukku með frænku,

Arnar Thor
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?