<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Wednesday, September 01, 2004

Mummi heilsar ykkur öllum frá Stóra Eplinu - á þessum fallega dýrðardegi 25°C í dag og ekki eins svakalega mikill raki og hefur verið -
Í dag var fyrsti opinberi "orientation & registration" dagurinn sem þýðir hvað ? Jú maður mætir á svæðið og hlustar á nokkra "fyrirlestra" um hvað fer í hönd og útá hvað þetta gengur allt saman.
Ég byrjaði í morgun á því sem kallast International Student Orientation sem er með fókusinn á alþjóða stúdenta við NYU sem eru ca 4000 - Svo fór ég klukkan 3 og hitti alla í dansdeildinni - valdi mér fög og fleira skemmtilegt - á morgun fer ég svo í balletttíma og smá modern til að sjá með hverjum ég verð í tímum - svo er smá stöðupróf í músík til að sjá hvar við stöndum öll sömul og hvernig kennarinn á að haga kennslunni. Ég er feginn að þetta er allt saman að smella saman hægt og bítandi - fer í fyrramálið í skoðun hjá sjúkraþjálfara líka til að tékka á stöðunni hvernig líkaminn er undirbúinn. Ekki ósvipað því sem dansflokkurinn gerir heima með sína dansara - svokölluð ástandsskoðun.
Jæja - minn er dauðþreyttur núna -klukkan orðin 7 og tími til kominn til að fara heim - vaknaði uppúr klukkan 7 í morgun eftir hálfgerða andvökunótt - var alltaf að vakna með einhverja draumavitleysu í gangi.... Það er alltaf sama sagan með mig nóttina fyrir eitthvað meiriháttar. Þá dreymir mig alltaf allskonar vitleysu - Þannig var það
skrifa meira seinna og endilega verið dugleg að lesa og senda mér mail eða comment - þessi síða hérna býður uppá hvoru tveggja :)
bestu kveðjur
Mummi
Comments:
Blessaður karlinn, Ástandsskoðun er eitthvað sem við 71 módel verðum að lifa við. stutt í antíkina og hærri þungaskatt.Dreymi þig vel og bið að heilsa.
Arnar Thor
 
HÆ Mummi, Frábært að allt gangi vel og ég öfunda þig geðveikt yfir því að vera í NYC, I love it there. Ég skil þig svo vel hvað þú meinar með að sofa ekki vel nóttina fyrir stórviðburði... maður vaknar þreyttur eftir draumavitleysur :o) Haltu áfram að hafa það gott.

Kveðja frá klakanum
Þórný Birgisdóttir Steingrímssonar ;)
 
Minn kæri!
Gaman að lesa. Ég er kominn aftur heim frá leiðindar París! Sendi þér við fyrsta tækifæri tíðindi. En hvernig væri nú að fara að setja inná bloggið einhverjar myndir af herberginu, íbúðinni og meðleigjendum???
 
Þinn vinur Gunnar
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?