<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Sunday, September 19, 2004

Halló (þitt nafn hér)!
(Gunnar vinur minn var að kvarta undan því að ég ávarpaði hann aldrei persónulega hérna á blogginu mínu - og honum var alveg sama þó aðrir læsu þetta líka hehehe- hann vantaði persónulegt ávarp - Gunnar minn!!!- þetta er semsagt til þín (og ykkar líka)hehehehe )
LETISTUÐ !!!!
úff þvílíkt letistuð sem er búið að vera á mér í dag og í gær. Maður er reyndar orðinn það gamall að ég þarf að pína mig til að sofa frameftir. Ég er vaknaður klukkan svona 8 á morgnana um helgar - og þarf að taka á honum stóra mínum til að sofa fram eftir. Náði að sofa til klukkan 10:45 í gærmorgun en eitthvað skemur í morgun. Vika tvö í skólanum liðin og þetta er svona smám saman að venjast. Námið er svona við það sama - mikið að gera en sumir dagar erfiðari en aðrir. -Sagði mig úr "Anatomiu" -áfangi sem ég þarf ekki að taka þar sem ég lærði svipað fag í Svíþjóð. -Fannst það samt nógu áhugavert til að langa að taka það aftur - svo gerði ég mér grein fyrir hvernig stundaskráin væri .... Anatomia er semsagt klukkan 6-7:30 á miðvikudagskvöldum eftir langan dag.....
Fimmtudagar eru samt lengstu dagarnir mínir - þá byrja ég klukkan 9 í Pilates- svo balletttími - svo moderntími - svo"directing and choreography" -svo "Dance theory and composition" og loks músík til klukkan 6:30 - Níu og hálfur klukkutími alls. Og öll fögin nema músik fela í sér einhverja hreyfingu.
Eitt svolítið fyndið hérna - eftir tíma virðist vera hefðin - sérstaklega hjá yngri krökkunum BFA nemunum að raða sér upp í röð og taka í hendina á kennaranum og þakka fyrir tímann hehehehe - ég sæi íslenska krakka í anda gera það !!!!
Og annað ! -ég rak upp stór augu einn morguninn núna þegar ég var að skoða auglýsingaskilti í lestinni á leiðinni í skólann. Auglýsing fyrir Kenneth Cole sem er amerískur hönnuður. Nú nema hvað ég veit ekki betur en ég hafi þekkt þarna íslenskt andlit - Edda Pétursdóttir sem einu sinni var í Listdansskólanum og vann einhverja módelsamkeppnina heima -skoðið auglýsinguna hér. Edda er í neðstu röð önnur frá vinstri - hvað segið þið fólk þarna heima ? Er þetta ekki rétt hjá mér ? -Maður segir bara "You go girl!!!" Gott hjá henni.
Í gær var ég bara heima og þvoði þvott og svona. Spjallaði á netinu - náði krökkunum úr dansflokknum rétt áður en þau fóru á svið fyrir Chicago - var hérna í beinni á vefmyndavélinni minni - Rosa gaman að vera með vefmyndavél. Spjallaði heillengi við hann Gunnar vin minn í vikunni líka - með bæði vefmyndavél og míkrófón. Þannig að við þurftum ekkert að pikka - bara tala saman og horfa á myndina á skjánum. -Svolítið öðruvísi en þegar ég var í Svíþjóð hérna um árið og handskrifaði bréf til Íslands. Í kvöld er spunakvöld í skólanum - músík kennararnir ætla að sjá um tónlistina og svo spinnur fólk dansa saman. Frí pizza og svona - hugsa að maður skelli sér bara.
Á föstudaginn var fór ég í partý heima hjá leiklistarkennaranum mínum sem hún heldur víst á hverju ári fyrir MFA nemendurna ásamt skólastjóra dansdeildarinnar. Þessi kona Kay Cummings er einn uppáhaldskennarinn minn -kennir mér bæði leiklist og "leikstjórn&kóreografíu" -ofsalega klár kennari og skemmtileg. Hún lék víst í einhverjum bíómyndum hér áður fyrr og á Broadway ofl ofl. Maður þyrfti eiginlega að komast yfir þessar bíómyndir :) -væri gaman að sjá.
Vaknaði upp í fyrrinótt við brjálað þrumuveður - Wesley meðleigjandi minn sagði mér svo í gærkvöldi að allar lestarsamgöngur hefðu verið úr lagi vegna flóða - það endaði með því að hann þurfti að labba í vinnuna tók hann 1.5 klukkutíma. Það var auðvitað engan leigubíl að fá eða neitt ... Eins gott að ég ákvað bara að vera heima í gær hehehe.
Ása framkvæmdastjóri dansflokksins er að koma til New York núna í vikunni ásamt Hjálmari manninum sínum - ég býst við að hitta þau einhverntímann í vikunni - Fyrsta skipti sem Ása kemur til New York og verður gaman að sjá hvernig henni líkar :) Hún varð líka fertug um daginn og þetta er semsagt afmælisgjöfin hennar -Til hamingju með afmælið aftur Ása !!!!
jæja - ég verð víst að fara að hætta þessu - klára að læra áður en ég fer í þetta dansspunapartý niðri í skóla.
Bið kærlega að heilsa öllum heima
Mummi
Comments:
Hæ Mummi baby
Gaman að fylgjast með þér í NY og gott að sjá að þér gangi vel og ert augljóslega í góðu formi. Þú manst svo að við systurnar og lauren erum alveg að fara að koma í heimsókn.
Kv. Sóley
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?