<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Thursday, September 30, 2004

Vitiði að ég verð eiginlega að viðurkenna smá samviskubit hérna -
Þegar ég labbaði heim í kvöld fannst mér vera svona hálf svalt úti - og ég sé hérna á tölvunni minni sem er beintengd við einhverja veðurstöð hérna í Brooklyn að það er 16°C hiti úti akkúrat núna. Manni hefði nú einhvern tímann þótt það heitt - allavega kann ég yfirleitt betur við mig í svölu lofti en heitu. Þetta þýðir væntanlega að maður er svona hægt og bítandi að samlagast loftslaginu hérna. Mér fannst nú illa heitt hérna fyrstu dagana og vikurnar enda dólaði hitinn þá á milli 25 & 30°C fyrir nú utan allan rakann sem var í loftinu alltaf hreint.
Núna er veðrið miklu þægilegra fyrir svona hitaskræfu eins og mig. -Ja fyrir utan þetta að mér er eiginlega farið að finnast nett kalt hehehe. Það er margt skrýtið í henni veröld.
Jeffery meðleigjandi minn átti afmæli í gær og Wesley í síðustu viku og komu nokkrir vinir þeirra í heimsókn í gærkvöldi. Var nokkuð ljúft og skemmtilegt fyrir utan það að gestirnir hefðu nú alveg mátt fara fyrr heim þar sem ég þurfti náttúrulega að mæta í skólann í morgun.
Á morgun er besti dagur vikunnar - þá mæti ég í jógatíma klukkan 9:50-11:20 og er svo praktískt séð búinn í skólanum þann daginn þar sem ég þarf ekki að taka danssögu. Á morgun ætla ég samt að æfa í klukkutíma verk sem ég er að fara að semja fyrir sýningu sem verður í byrjun nóvember. Nota óperuaríu (aftur) úr óperunni Rusalka eftir Dvorak - dúett fyrir tvær stelpur úr skólanum. Verður vonandi fallegt hjá mér - ég er búinn að detta svolítið mikið í það að vera fyndinn og sniðugur í kóreografíutímum. Fólk er alltaf að segja mér hvað það sé allt sniðugt sem ég geri - mig langar svolítið að gera eitthvað annað núna. Kómíkin hefur jú oftast verið mér auðveld. Nú langar mig til að skora á sjálfan mig að gera eitthvað allt annað.
Í gær var smá svona fundur með kennurum og nemendum, fundir sem eru hálfsmánaðarlega. Bæði eru ræddir praktískir hlutir og svo sýna nemendur svona það sem þeir eru að fást við. Við erum búin að vera vinna með ákveðinn frasa af hreyfingum í tíma sem heitir "Leikstjórn & kóreografía" setja allskonar tilfinningar á hann og svona. Síðast bættum við svo texta á þetta allt saman og var útkoman ansi skemmtileg hjá mörgum. Ég var beðinn ásamt 3 öðrum úr því fagi að sýna okkar útkomu á þessum fundi þarna í gær þannig að það var nú svolítið skemmtilegt - að vera valinn. -Maður er jú alltaf að reyna að sanna sig. Ég er alltaf með á bakvið eyrað hjá mér að ég fékk nú einu sinni rúmlega milljón krónu styrk frá skólanum þannig að ég ætti kannski að leggja svolítið á mig og sanna það að ég eigi skilið að fá þessa peninga. -Maður vill allavega sýna þakklæti sitt og ekki slá slöku við.
jæja nóg í bili - klukkan að nálgast miðnætti og minn ætti að fara að sofa.
Jóga - æfing og svo smá barátta við kerfið á morgun - ætla að fara að sækja um kennitölu hérna. Þeir mæla með því í skólanum að maður geri það -auðveldar marga hluti í kerfinu. -Þeir sem lesa þetta blogg reglulega vita það að mér finnst rosalega gaman að fást við skrifræðið sem fylgir öllu hérna !!! - Ja eða þannig sko !!!!
Hmmm - segi frá því seinna
bestu eplakveðjur
Mummi
Comments: Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?