<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Wednesday, October 11, 2006

Jæja,
og svo kom haustið bara allt í einu einn daginn.
Ætli það sé ekki best að maður skrifi eitthvað hérna svona handa fréttaþyrstum vinum og ættingjum. Hef svolítið verið að einbeita mér að íbúðarleit að undanförnu og má segja að sú leit hafi tekið smá U-beygju núna á mánudaginn var. Við Claudia vorum semsagt búin að finna voða fína íbúð með aðstoð leigumiðlara núna í síðustu viku. En það var komin umsókn á hana þannig að það voru kannski ekki miklar líkur á að við fengjum hana. Ég var eiginlega farinn að spá í bara eitthvað tímabundið fram að jólum og sjá bara til hvort það rættist eitthvað úr hjá mér með vinnu og slíkt. Nema svo hringir leigumiðlarinn á sunnudaginn - umsóknin hafði verið dregin til baka og vildum við sækja um? Það varð úr að við Claudia mættum á mánudaginn til þess að fylla út alla pappíra - og það er ekkert smá sem leigusalar vilja fá að vita um væntanlega leigjendur. Það er beðið um staðfestingu á atvinnu, afrit af skattskýrslu, skilríki, svokallað kredit-tékk ofl ofl. Ég var með einhverja skrýtna tilfinningu yfir þessu öllu og hún jókst bara þegar þeir á leigumiðluninni tilkynntu okkur að þóknunin fyrir þeirra vinnu væri 3400$ eða 1700$ á hvort okkar. Þetta er standardinn hérna - 15% af ársleigu takk fyrir. Við erum að tala um ca. 235.000 til þeirra fyrir að finna handa okkur íbúð og aðstoða við pappírsvinnuna. Mér skildist á Robin bekkjarsystur minni að við fengjum einhvern díl hjá þeim en það var ekki... Þetta eru einfaldlega peningar sem ég á ekki til - þannig að eftir að tala við Claudiu og hugsa málið aðeins - tala við mömmu í símann og svona þá hringdi ég í leigumiðlarann og bað hann um að draga umsóknina okkar til baka. Held það sé útilokað mál að ég fari útí það að fá mér eigin íbúð fyrir þennan tíma. Ekki meðan þessi óvissa er enn í gangi með vinnu og hvað ég geri hérna. Frekar að ég finni mér laust herbergi hjá fólki sem þegar er með íbúð. Eitthvað tímabundið meðan ég sé hvernig málin þróast hérna hjá mér.
Mig dauðlangar heim aftur til Íslands og ef ég finn ekkert spennandi að gera þá held ég að það verði lendingin í þessu máli.
Er annars að vinna mikið í heimasíðunni minni - hún er öll að koma til, útlitið er nokkurn veginn komið og ég er aðallega í því að koma inn öllu innihaldinu. Tekur smá tíma þegar maður er svona að læra forritunina jafnóðum og maður vinnur síðuna.
Svo er ég mikið að fást við allar þessar eilífu tilvistarspurningar - hver er ég? -hvað vil ég gera? -hvað er ég að gera? er ég á réttri braut? -er ég kannski bara rammvilltur? Ég veit stundum bara ekki baun hvað ég vil - eða jú - ég veit það alveg en stundum koma bara upp aðrar hugmyndir sem rugla mann í ríminu. Ég er kannski svolítið eins og Marta úr bíblíusögunum "Marta, Marta þú mæðist í mörgu..." var þetta ekki einhvern veginn svona? Það er svo margt sem mig langar til að gera og vinna við. Bara verst að maður er ekki í launaðri vinnu við að skapa sína list og svona hehehe. Ég er búinn að grófklippa "Benetton-project" númer 1 og er að gera mig klárann í að filma númer 2. Hugmyndin er semsagt að filma dansarana fjóra í fjórum mismunandi árstíðum. Allt á mismunandi stöðum hérna í new york. Er með tvo staði í Central Park í huga fyrir haustið en hérna eru haustlitirnir óðum að láta sjá sig. Þetta verður að sjálfsögðu allt saman til sýnis á vefsíðunni minni og ég læt vita um leið og þetta verður komið upp.
Já - svo fæ ég væntanlega að sjá afraksturinn af stuttmyndinni sem ég lék í um daginn í dag. Erla Skúladóttir sem skrifaði handritið og leikstýrði henni er á leiðinni heim til Íslands með afraksturinn - þetta verður svo sýnt í föstudags Kastljósi ásamt hinum 39 myndunum næstu vikurnar. Þetta er semsagt í tilefni af 40 ára afmæli Leikstjórafélags Íslands að þeir láta peningana renna í þetta í staðinn fyrir að halda partý. Flott hjá þeim!!! Endilega að fylgjast með Kastljósinu á næstunni - veit reyndar ekkert hvenær stendur til að sýna myndina sem ég lék í. Læt ykkur vita um leið og ég veit eitthvað sjálfur.
Ætla að segja þetta gott í bili - bið að heilsa öllum
xoxox
Mummi
Comments:
þessi leigumiðlarar eru glæpamenn í dulbúningi. ojbarasta. ég mæli með sublet.com.
svo er íslendingapulsupartý í prospect park á laugardaginn. ég læt þig vita um details þegar ég veit meira ok?
farðu vel með þig í rigningunni.
 
Jibbýý ný færsla...

ojoj.. sammála Auði Kaju.. ekkert annað en glæpamenn. Vonandi gengur þetta samt upp hjá þér. Ég skil þig rosalega vel að vilja koma heim til Íslands.. ;-)

Gangi þér vel

Kveðja Þórný
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?