<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Tuesday, September 19, 2006

Jæja, það væri synd að segja að það væri ekkert að gerast hjá honum Guðmundi.
Í rauninni er heilmikið búið að vera í gangi -svo mikið að ég veit varla hvar skal byrja. Kannski skeytastíllinn sé bara bestur á þetta :
-Ég er búinn að filma "Benetton-project" eins og ég hef kallað það -ekki ólíklegt að það endi sem röð fjögurra stuttmynda hver um sig tekin upp á mismunandi árstíð.
-Heimasíðan mín er svona að taka á sig mynd -hægt og sígandi, ég er að kenna sjálfum mér vefsmíðar og reyni að hanna og forrita síðuna jafnóðum.
-Um daginn báðu meðleigjendur mínir mig um að flytja út ekki seinna en í lok október, :( -Kom í ljós að þeim fannst þetta ekki vera að ganga nógu vel ekki nógu mikið chemistry í gangi (lesist ég er ekki besti vinur þeirra) auk þess sem Mike hefur núna efni á að leigja alla hæðina sem við búum á fyrir sig og kærastann sinn. Ekkert gegn mér persónulega segja þeir bla bla bla ...
-Í gær var ég kominn að því að kasta inn handklæðinu eins og maður segir og flytja heim til Íslands aftur. Atvinnuleyfið var enn að láta á sér standa = ekkert atvinnuleyfi = engin vinna, engin vinna = engir peningar til að lifa... Tók þá ákvörðun að flytja heim fyrir jól ef ekkert breyttist fljótlega. Viti menn - c.a. klukkutíma síðar fékk ég email um að málið hafi verið samþykkt og ég myndi fá kortið mitt innan tveggja vikna.
Tók þá ekki nema 4 mánuði að afgreiða þetta!!! Trúiði mér þegar ég segist HATA skrifræði? Fjóra mánuði að ENDURÚTGEFA kortið mitt frá í vor sem var með villunni á. Allt í allt tók það mig 6 mánuði að fá þetta í gegn ARG !!!!! OG nota bene, ég ætla ekki að fagna sigri fyrr en ég er kominn með kortið í hendurnar VILLULAUST takk fyrir.
Þetta þýðir að ég get loksins farið að sækja um vinnu hérna - er svona aðeins búinn að vera kíkja á netinu á Craigslist sem er svona alhliða smáauglýsinga vefsíða... Sjáum hvað gerist þar...
Nú svo þarf ég náttúrulega - þökk sé mínum "yndislegu"?!??!!!! meðleigjendum að fara að leita mér að stað til að búa á. Ein bekkjarsystir mín kom mér í samband við vinkonu sína sem er líka að leita að íbúð - fer og hitti hana á morgun. Það er talsvert ódýrara að leigja með öðrum heldur en uppá eigin spýtur...
Já - núna um helgina síðustu lék ég svo í stuttmynd eftir Erlu Skúladóttur, kvikmyndagerðarkonu sem býr hér í borg. Þetta er verkefni á vegum leikstjórafélagsins heima sem á 40 ára afmæli í ár og býður þessvegna fjörutíu leikstjórum að gera jafnmargar stuttmyndir. Afraksturinn verður svo sýndur í Kastsljósinu á föstudögum skilst mér. Læt vita þegar af verður þannig að allir geti nú límt sig við skjáinn og borið augum dýrðina hehehe. Svo var nú annað því tengt sem var ótrúlega fyndið. Ég var semsagt búinn í tökum um tvö leytið á sunnudaginn - fór þá aftur inná Manhattan og hitti þar bekkjarsystur mína - við sátum í Washington Square Park og spjölluðum. Kvöddumst um fimm - ég labbaði aðeins um - fékk mér að borða og var svo að kíkja eftir kössum til að byrja að pakka niður dótinu mínu... Labba inní Duane & Reade sem er svona lyfja + allt múlígt búð... tékka hvort þeir eigi einhverja kassa... Rekst ég þá ekki á mótleikonu mína úr stuttmyndinni sem hafði orðið eftir klukkan 2 til að taka upp senur sem bara hún var í. Hún hafði klárað milli 5 og 6 og var mætt þarna til að kaupa sjampó, andlitskrem og fleira... Við erum að tala um 8 milljón manna borg !!!! Hún er bara ekkert svo stór eftir allt saman. Við stóðum bara og hlógum eins og kjánar hehehe - hverjar eru líkurnar á svona löguðu...

Ég vona að ég sé að taka rétta ákvörðun með að vera hérna áfram í vetur... Ætla samt að sjá hvernig málin þróast fram að jólum núna þegar ég er kominn með kortið mitt í hendurnar loksins. Mig dauðlangar heim til Íslands EN -þetta er líka tækifæri sem kemur ekkert endilega aftur... Að vera með svona atvinnuleyfi og mega finna, sækja um og vinna hérna í borg tækifæranna. Maður náttúrulega skuldar eitthvað nú þegar og ef illa gengur að finna vinnu hérna munu skuldirnar aukast eitthvað -ég er svona að gera upp við mig hvort er mikilvægara... Þessi lífsreynsla eða peningar...
Verð nú samt að segja eitt - ég er of gamall orðinn til þess að lifa lífi hins sveltandi listamanns... Það er jú ákveðin rómantík í því en æ... maður spyr sig af hverju... Ég þarf bara ákveðinn stöðugleika í lífinu.
Hvað segja lesendur BLOGGsins?
Ég segi bless í bili - ætla að reyna að vinna eitthvað í einhverju af þessum alltof mörgu verkefnum sem ég skapa sjálfum mér...
koss og knús
endilega skilja eftir komment
Mumminn
Comments:
ó hið óendanlega skrifræði. hvar tekur það enda? ef þú ert í stuði einhvern daginn þá máttu endilega preppa mig fyrir komandi átök við bjúrókrasíuna... þ.e.a.s ef þér verður ekki of heitt í hamsi við að ræða þetta ;)
keep your head up high my dear. peningar smeningar.
bestur kveðjur frá your fellow newyorker.
 
fellow newyorker - ekki málið - ég skal taka þig í námsskeið fyrir þetta allt saman ;)
Lexía númer eitt - ekki skrifa afmælisdaginn þinn uppá evrópska mátann !!!! hehehehe
Þetta lítur nú allt betur út núna -vonandi eða allt gangi upp :)
Bestu kveðjur og ég verð í bandi væntanlega þegar ég er búinn að leysa húsnæðismálin ;)
Mummi
 
vúhú.. ofsa glöð að sjá nýja færslu.. en mér finnst meðleigendurnir þínir leiðinlegir.. hahaha.

ég segi eins og frænka mín .. péningar sméningar.. hehe.. en ég skil þig samt mjög vel. Endurskoðaðu málið þegar þú ert búinn að fá vinnu og húsnæði... þá sérðu þetta í öðru ljósi. Ég skal hjálpa þér að safna dósum og flöskum ef þú verður alveg á kúpunni þegar þú kemur heim.. hehe..

Hafðu það gott og gangi þér vel..
bíð spennt eftir næstu færslu.
 
takk fyrir þetta frænkz,
Ég held að engum finnist meðleigjendur mínir eins leiðinleigir og mér hehehe - Good riddance - segi ég bara.
Safna dósum og flöskum segirðu? Hehehe - kannski við ættum bara að skipuleggja allsherjar fjáröflunarsamkomu - ja nema SPRON vilji heita á mig eins og þeir hétu á Magna. Kannski 500.000 þegar ég finn íbúð og önnur 500.000 þegar ég fæ vinnu? hihi
 
mér finnst það alveg það minnsta sem þeir gætu gert.. hehe..
 
Elsku láttu reyna á þetta.Kannski var verið að tékka þolinmæðina þína.Eins og þú veist er ég í sama pakkanum, bara annars staðar, og aðeins öðruvísi pakki, en PAKKI samt!Heheh. Nú ertu að fá helvítis kortið loksins og því um að gera að láta reyna á minn kæri. Vertu duglegri við að skrifa! Það er svo gaman að lesa pistlana þína.
Kveðja frá atvinnulausasta manni í heiminum.
 
brostu og þetta reddast!! :)

ætla vera sammála Þórnýju - kúkameðleigjendur...

KnúZ og Kossar
GÞG
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?