<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Thursday, August 24, 2006

Smá svona hérna um Rockstar: Supernova...
Verð að viðurkenna að ég hef ekki alltaf horft á þáttinn - en svona það sem ég hef séð þá virðist Magni "okkar" vera að standa sig vel. -Það er í rauninni alveg ótrúlegt hversu margir þættir af svipuðum toga ganga hérna í amerísku sjónvarpi - hver stöðin á fætur annarri reynir að finna upp hjólið á ný og eru þessir þættir allir keimlíkir hver öðrum. Gaman að segja frá því samt að "So You Think You Can Dance" sló öllum þessum þáttum rebba fyrir rass í áhorfi. Það var þáttur sem ég horfði á í hverri einustu viku nema ég hefði eitthvað annað MIKLU mikilvægara að gera. Og það var ekki oft hehehe. En já af hverju fór ég að tala um þetta... Jú - var að lesa New York Times online hérna rétt áðan og þar var grein um alla þessa Making off... Searching for þætti og meðal annars minnst á Rockstar og myndin sem birtist með greininni sést vonandi ef þú smellir hérna. Þarna er hann Magni okkar hehehe
Annars er ótrúlegt hversu margir orðið eru alfarið á móti þessum endalausu raunveruleikaþáttum. Ég sá nýja seríu auglýsta af Survivor (sería 736?) og nýjasta tvistið á þeim bænum er að núna verður þátttakendum skipt upp í lið eftir kynþætti. Fjögur lið - asískt, svart, hvítt og hispanic. Virðist þegar vera farið að vekja mikið umtal því kynþáttamál eru enn í dag pólitískt mál - þarna er verið að etja saman fólki af mismunandi kynþáttum... Soldið fyndið því í myndinni minni einni sem ég er að vonast til að filma núna á næstu 1-2 vikum þá er ég einmitt að nota dansara af þessum sömu 4 kynþáttum en mín hugmynd er meira að fagna fjölbreytileikanum - mér finnst nefnilega frábært að við skulum ekki öll vera eins. New York er sko borg sem virkilega er fjölbreytt - hér býr fólk frá yfir 140 mismunandi löndum, 40% íbúanna eru fædd í öðru landi og samt ná allir að búa saman í sátt og samlyndi. Það kemur auðvitað fyrir að fólki lendir saman en eitt aðalsmerki borgarinnar og íbúanna er umburðarlyndi fyrir því að við erum ekki öll eins. SEM BETUR FER segi ég sko bara - ég held að lífið yrði alveg ofboðslega leiðinlegt ef við værum öll eins.
óver end át
Mummi
Comments: Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?