<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Monday, August 21, 2006

ÞETTA ER EKKI ALVÖRU FÆRSLA

hehehehe
smá grín - nenni ekki alveg að skrifa akkúrat núna langaði bara til að segja að ég er enn á lífi, enn í new york og svona rétt að byrja að kíkja útúr skelinni sem ég skreið inní eftir útskrift...
Ég er búinn að bíða síðan í maí eftir atvinnuleyfinu mínu og það virðist sem það ætli loksins að fara að mjakast eitthvað eftir meira en 2ja mánaða tíðindaleysi á þeim vígstöðvum...
Byrjaði í dag að vinna í vefsíðunni minni - læt vita þegar eitthvað verður komið inn þar af viti.
Set inn link hérna til hliðar líka í myndaalbúmið mitt - á enn eftir að setja inn fleiri myndir þar þannig að það er bara um að gera að kíkja við aftur...
Ein spurning svona að lokum...
LES ÞETTA YFIRLEITT NOKKUR ORÐIÐ ?
Miðað við fjölda kommenta sem ég fæ eru það ekkert rosalega margir... Skrýtið hvernig þetta blogg virkar svolítið eins og einstefnugata stundum - mér líður stundum eins og ég standi hérna á mínum trékassa og blaðri um mitt "merkilega líf" útí tómarúmið... ? Er þetta vitleysa í mér?
Væri gaman að fá komment - email - símtöl what ever, sérstaklega frá þeim sem ég sjaldan/aldrei heyri frá...
Strákurinn saknar fjölskyldu og vina voða mikið þessa dagana og finnst hann eitthvað einn í útlandinu ... Hef líka aldrei verið eins lengi að heiman og einmitt nú... sniff sniff...
Ég reyni að vera duglegri að blogga - sérstaklega ef þið eruð dugleg að skrifa hehehe (smá mútur geta ekki skaðað mikið?)
Mumminn
Comments:
Elsku kallinn. Ég verð bara að segja þér að ég hef kíkt á bloggið svo til daglega, og varð því hissa og glaður að sjá nýja færslu í dag! :) Ég leyfi mér að ætla að það séu fleiri í þessum sporum, og því eigi commentum eftir að rigna inn á þig. Láttu þér ekki leiðast of mikið minn kæri.
 
Einn !
...að lesa
Takk fyrir það Gísli minn :)
 
Ég kem inn mjög reglulega.. og var ekkert smá kát að sjá að það var komin ný færsla... ;-) og ég tala nú ekki um myndir til að skoða. Er alltaf að safna fyrir ferð til NYC.... ;-) Hafðu það gott
 
Maður kíkir alltaf af og til, en ég verð líka að viðurkenna að heimsóknunum hefur fækkað eftir að þú varðst svona latur að skrifa ;) Get samt alveg verið sammála þér með að stundum finnst manni að maður sé eingöngu að blogga fyrir sjálfansig.
 
Jæja
Þrír sem lesa...
Þetta fer nú bara að verða tilefni til nýrrar færslu bráðum :)
 
COMMENT
 
Vá !!! :)
fjórir lesendur hehehe
allt mikil gæðablóð að sjálfsögðu
 
hæhæ elsku frændi.ég kíki alltaf reglulega inn á síðuna hjá þér og var mjög glöð að sjá nýtt blogg vildi bara láta vita af mér áður en ég fer að skoða myndir sá að það er komið albúm hjá þér:)þín er líka saknað hér heima hafðu það sem best kv: Stína
 
Hææjjj Mummilíus,
Ramba stundum hérna inn, alltaf bara myndin af þér með ljósaskiltin fyrir ofan hausinn... Svo bara bing, nýtt blog. Gaman, gaman...
Smútsí
Friðrika *eiginkona úr fyrra lífi*
 
6 lesendur... Jei!!!
ég verð að fara að ráða fólk í áskriftarþjónustu með þessu áframhaldi -Veit einhver um bloggburðarbörn sem vantar vinnu?
hehehe
 
Bloggburðarbörn...hahaha :)
Ætli ég sé ekki 7.lesandinn :)
Ég segi eins og hinir, maður kíkir hérna daglega, nema þegar langt hefur liðið á færslu, þá líður lengra á milli, en þá verður maður líka svo ánægður að sjá færslu, loks þegar hún kemur :P
 
YESS!!
3 nýjar færslur að lesa ;)

jibbíkóla!

Hafðu það gott minn kæri :*
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?