My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Monday, August 30, 2004
Nýja Jórvík kl 18:30 að staðartíma
Jæja !!!! Þá er minn loksins fluttur inn á 118 Gates Avenue VEI VEI VEI
Svaf síðustu nótt í mínu eigin rúmi og mínu eigin herbergi bak við mínar eigin lokuðu dyr :) ER semsagt eins og áður hefur komið fram búinn að sofa síðustu tvær vikur á sófanum í stofunni hjá Wesley meðleigjenda mínum í gömlu íbúðinni hans - ekki beint kjöraðstæður ekki síst fyrir það að sá sem bjó með honum þar er með tvo ketti og ég og kettir eigum ekkert alltof vel saman sko.... Annars er ofnæmið búið að vera ótrúlega stillt meðan ég var þarna - enda reyndi ég bara að taka ofnæmispillurnar mínar daglega.
Flutningarnir gengu vel en auðvitað þurftum við að lenda á einum heitasta degi ársins með það allt saman - Wesley og Jeffery, meðleigjendur mínir fengu lánaðan van og svo kom "Buddy" vinur Wesleys á jeppanum sínum og hjálpaði okkur líka- þetta hafðist í 3 ferðum á báðum bílum. Var gaman að keyra líka svona um nágrennið og sjá mismunandi hverfi og svona. Fórum td í gegnum hverfi strangtrúaðra gyðinga sem labba allir um með sína slöngulokka og hatta og svoleiðis - komst að því að konurnar hylja hár sitt annaðhvort með slæðum eða HÁRKOLLUM !!! Það er semsagt allt í lagi að sýna hár svo framarlega sem það er ekki þitt eigið hár - alltaf lærir maður eitthvað nýtt.
Í dag er ég svona búinn að vera að taka aðeins uppúr töskunum mínum og koma mér fyrir í herberginu mínu - setja fjölskyldumyndirnar í gluggakistuna og svona. Skrýtið hvað fjarlægðin magnar upp tilfinningar manns til vina og fjölskyldu - og manni finnst ennþá vænna um fólkið manns en áður.
Fór áðan og verslaði mér lak í K-mart - búinn að leita víða að stöku laki til að nota á móti rúmfötunum sem ég hafði með mér að heiman en flestar verslanir virðast selja þetta allt saman í settum. Lak+koddaver+sængurver. Rölti svo hérna yfir á næsta Starbucks - náði í póstinn minn og er svona aðeins að spjalla við þá sem eru nettengdir núna.
Var rétt í þessu að starta mömmu og pabba á MSN sem verður væntanlega aðal samskiptamátinn hjá okkur svona í vetur. Vonandi einstaka símtal líka inn á milli :)
Fer svo á eftir að kaupa mér skrifborðsstól sem ég fann um daginn - svo er það ferð í IKEA næsta sunnudag væntanlega til að kaupa skrifborð og eitthvað fleira smálegt.
Læt þetta nægja í bili
bestu kveðjur frá Stóra Eplinu
Mummi

Comments:
Hæ hæ darling, So nice to hear that you have moved in your new appartment con'grats darl!...er að taka mér pásu hérna í vinnunni og varð bara að skoða hvort þú hafir skrifað :-)
Hafðu það gott darl'....mun fylgjast vel með það sem er að gerast hjá þér :-)
Yours Addi og Gunnar
Ps Passaðu þig á róttækum mótmælendum...
Post a Comment