My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Saturday, October 16, 2004
Halló halló halló !
Long time no see - sjaldséðir hvítir hrafnar - seint skrifa sumir en skrifa þó... hehehe
Ég verð að biðja lesendur þessarar síðu afsökunar á því hversu langt er um liðið síðan ég skrifaði síðast hérna inn. EN - núna er ég loksins laus frá þessari viku dauðans eins og ég hef svona kallað hana. Síðusta sunnudag var semsagt fyrsta tækniæfing fyrir sýningu "Second Avenue Dance Company" eða SADC. Mér hafði verið falið það verkefni að vera hljóðmaður á þessari sýningu en hérna í skólanum er það þannig að allir þurfa að taka það sem er kallað "Production Crew". Maður fær eina einingu fyrir þetta og er hugsað sem svo að maður kynnist öllum hinum störfunum sem eru í leikhúsinu. Svo voru æfingar á þessu öllu frá klukkan 7 á kvöldin til ca 10-11 mánudag, þriðjudag og miðvikudag og svo sýningar fimmtudag - föstudag og laugardag. Ágæt törn það sem lauk semsagt núna áðan / í kvöld. En þá er því líka lokið og ég þarf ekkert að gera þetta aftur fyrr en á næsta ári. Ekki að mér hafi fundist þetta eitthvað leiðinlegt - þvert á móti. Þetta er bara svolítið mikið eftir fullan skóladag sem byrjar þetta 9-10 á morgnana og er fram til 5-6:30 á kvöldin. OG eiga svo eftir að læra heima þegar þessu öllu sleppir. EN - ég vandi mig þó á það þessa viku að lesa í lestinni - sérstaklega á leiðinni heim. Þar eru 20 mínútur sem annars fóru bara í það að sitja og horfa á fólk á ferðalagi. Þetta snýst voða mikið um að nýta tíma sinn rétt og vel - þá gengur allt svo miklu betur.
Var að hugsa það þegar ég labbaði þvert yfir Manhattan í kvöld til að taka lestina heim (og afsakið orðbragðið) "Æ fokking lov ðis sittí" Það er eitthvað svo gaman að vera hérna - Mér finnst ég vera að fá svo mikla örvun svona andlega - skapandi - borgin bíður uppá svo margt sem veitir manni innblástur til allra hluta. Var með æfingu á verkinu mínu í dag og samdi meira en mínútu á rúmum klukkutíma. Mér fannst það bara nokkuð vel af sér vikið. Ég held ég sé svona smám saman að falla inní þennan margumtalaða ryþma sem er hérna í þessari borg.
jæja - nóg í bili - ætla að reyna að skrifa frekar oftar og styttra
klukkan er líka orðin margt og tími til kominn fyrir mig að fara að sofa...
ég hef frá mörgu að segja sem hefur gerst núna síðan ég skrifaði síðast og ég reyni að læða því að.
Skrifa meira á morgun sunnudag.
bless bless og góða nótt

Comments:
hahaha... ég veit sko alveg hvað þú ert að tala um þegar þú segir "Æ fokking lov ðis sittí" ;o) "æ nó ðe fíling"
Kveðja Þórný öfundsjúka
Post a Comment
Kveðja Þórný öfundsjúka