<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Monday, November 08, 2004

Jæja, haldiði að maður sé duglegur í dag !!! Önnur færslan hérna á einum degi ekki 13 tímar síðan ég skrifaði hitt inn í morgun.
Langaði bara svona að deila með ykkur þjóðerniskenndinni minni. Fór semsagt í Carnegie Hall þar sem Garðar Cortes stjórnaði New England Symphony Orchestra og kórum héðan og þaðan úr heiminum þar á meðal óperukórnum og Karlakórnum Þröstum. Nú þar sem ég stóð og beið eftir að kaupa miða var mér boðinn miði svona á næst besta stað sem kostar 50 dollara á 25 dollara en þar sem ég átti bara 20$ seðla fékk ég miðann á 20 :) -Maðurinn hafði semsagt gefist upp á að bíða eftir vini sínum sem átti að fá hinn miðann og ákvað að selja hann frekar og minnka tapið. Gott fyrir mig - slæmt fyrir hann. Tónleikarnir hófust svo á því að Garðar bað alla að rísa úr sætum meðan þau syngju þjóðsönginn okkar þar sem forsetinn og hans frú væru stödd í salnum. Og Mummi fylltist þjóðerniskennd auðvitað - með tár á hvarmi og kökk í hálsi hehehe.
Elijah var svo mjög fínt hjá þeim. -Ég verð samt að viðurkenna að ég hef aldrei heyrt verkið áður þannig að ég get lítið dæmt um flutninginn nema að hljómurinn var mjög þéttur og fínn - enda varla annað hægt í þessu flotta húsi. Þetta er nokkuð langt verk hátt í 3 klukkutímar en margt mjög fallegt í því. Viðtökurnar voru mjög góðar held ég bara - spurning hvað gagnrýnendum finnst um þetta allt saman. Spjallaði svo aðeins við þau á bak við húsið við sviðsinnganginn eftir á. Annars voru þau öll á hraðferð - á leið í siglingu í kringum Manhattan - eitt af því sem ég á eftir að gera hérna í þessari borg þar sem allt er til og hægt.... Bekkjarsystir mín ein hún Jane er meira að segja búin að finna stað þar sem er til Pepsi Max en það hef ég ekki séð síðan ég fór frá Íslandi. Það versta var að svo gleymdi hún aftur hvar hún hafði séð það. Jæja næstum komið miðnætti og ég ætti að fara að sofa - helgin búin að vera viðburðarrík og ekki nóg um svefn, búinn að semja 4 takta af flottum ryþmum fyrir tónlistartímann minn á morgun. -Músíkverkefnin mín eru alltaf aðalhöfuðverkurinn um helgar - ég held hjá okkur öllum. Promo eins og hann er kallaður =Professor Moulton hleður alltaf á okkur verkefnum. En maður lærir þó allavega eitthvað
góða nótt segi ég bara
:)
Comments:
Tíminn á sko eftir að vera fljótur að líða hjá þér með öll þessi verkefni... brjálað að gera. Frábært...

Kveðja Þórný
 
sæll frændi
það að skrifa tvisvar á einum degi þýðir ekki að þú þurfir ekki að láta heyra í þér meira þann mánuðinn,
hlakka til að lesa meira frá þér,
kveðja Hrönn frænka.
 
Hæ Mummi sæti!
Gott að heyra að það gengur svona vel hjá þér og að þú ert glaður og ánægður!!!
Ég fékk sms frá Trey um daginn eftir að hann var búinn að vera á sýningunni hjá þér. Hann sagði að þetta hefði verið rosa flott, trúi honum sko vel! þú ert náttúrulega sú týpa sem almennt tekur sér ekkert fyrir hendur nema gera það 120 prósent!
Allt bara fínt að frétta héðan, Screensaver búið og líka Chicago loksins, loksins!!!!! Þetta var nú ekki alveg samt án þín, saknaði þín til dæmis alveg sérstaklega í Haltu kjafti Hófí. Ég er eiginlega búin að vera í soldið rusli í líkamanum, með verk í náranum undanfarna 2 mánuði og svo síðustu vikur er bakið alveg að svíkja mig í fyrsta skipti á ævinni, ætli ég sé að verða gömul :/
Annars fer ég í launalaust frí frá mars! Er búin að sækja um listamannalaun og ef ég fæ þau þá get ég vonandi ferðast út um allt og kynnt mér flokka og gert audition (setti þetta reyndar aðeins öðruvísi fram í umsókninni) En ef ég fæ þau ekki þarf ég að velja og hafna og skipuleggja mig rosa vel. Er reyndar eiginlega búin að fá atvinnutilboð frá Rami Beer höfundi screensaver, en ég veit ekki alveg hvort samyrkjubú í ísrael er alveg málið fyrir mig, er eiginlega meira svona manhattan type of girl!! Allavega ég sé til hvað ég geri, þetta kemur allt í ljós.
Hafðu það áfram rosa gott og gangi þér vel!
Knús pjús!
-Kata... (Johnson)

ps. Hvernig er þetta eiginlega... eru engir sætir strákar í stóra eplinu???
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?