My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Saturday, December 11, 2004
HÓ HÓ HÓ !!!!
Mummi heilsar öllum frá landi Kókakóla-jólasveinsins :)HeHeHe -Rosalega rímar þetta flott
Hér er búið að vera mikið að gera eins og alltaf og ég ekki nógu duglegur að skrifa eins og nokkrir hafa bent mér á hér í commentum sem annarsstaðar. Það er gaman að vita að fólk lesi þetta og hafi gaman að.
Jæja - nú er ein vika í það að ég leggi í hann heim í jólafrí og ekki laust við að það sé heilmikill spenningur í manni. Það eru liðnir 4 mánuðir síðan ég sá fjölskylduna og vinina svo það verða vonandi fagnaðarfundir þegar ég kem heim.
Hér er maður búinn að vera í ýmsu - fullt að gera í skólanum að vanda... Eigum á mánudaginn kemur að sýna tónlistarkennaranum okkar Professor Moulton ryþmasóló og hópverk sem við erum búin að vera að vinna að núna í margar vikur. Við fáum svo einkunnir fyrir þetta sem gilda 1/3 af lokaeinkunn þannig að það er eins gott að standa sig. Á fimmtudaginn kemur verður svo próf í tónlist sem samanstendur af nótnalestri, hlustun og "dictation" þ.e. hann klappar og syngur einhverja takta sem við eigum svo að skrifa upp í nótum... Ekki það auðveldasta hér í heimi en mér fer óðum fram í þessu öllu. Svo er maður bara laus allra mála eftir það - verslar nokkrar jólagjafir og heldur heim á leið.
Ég er búinn að sjá nokkrar sýningar hérna síðustu vikurnar þar á meðal sýningu Pinu Bausch og Tanztheater Wuppertal - sýning sem heitir Children of Yesterday, Tomorrow and the Future. Tæplega 3ja tíma sýning með einu hléi og mér leiddist ekki baun allan tímann. Fyrsta skipti sem ég sé verk eftir hana á sviði og ég varð alls ekki fyrir vonbrigðum. En fyrir þá lesendur hérna sem ekki þekkja til þá er Pina Bausch einhver þekktasti danshöfundur Evrópu. Annars er nú samt það skemmtilegasta líklega þegar ég fór um daginn á skauta í Central Park með 3 bekkjarsystrum eftir skóla einn föstudaginn... Hef semsagt ekki komið á skauta í ein 15-20 ár held ég líklega nær tuttugu árum en hitt. Maður var náttúrulega frekar valtur fyrst til að byrja með og óstöðugur EN ég datt nú samt aldrei. Þarna voru nokkrir starfsmenn á fullu í að hjálpa fólki sem hafði dottið og svona sjá til þess að öllum reglum væri framfylgt. Meðal starfsmannanna var þarna rosalega fallegur Latino-gæji sem ég var nú bara hálf skotinn í hehehe. Ég var að leggja á ráðin við stelpurnar um að ég myndi láta sem ég dytti þarna rétt við fæturna á honum og hann myndi hjálpa mér á fætur og auðvitað falla kylliflatur fyrir þessum fallega manni frá Íslandi. Ég var samt of mikil gunga til að kýla á það fyrir utan það að ég held að þessi maður sé ekkert mikið fyrir karlmenn.... Því miður fyrir mig sniff sniff
Í gær var svo jólapartý í skólanum með fullt af allskonar heimatilbúnum skemmtiatriðum sem bæði nemendur og kennarar sáu um - mjög gaman.
Nathaniel "eigandinn" að húsnæðinu sem ég bý í og sá sem býr á fyrstu tveimur hæðunum hérna hélt jólapartý á fimmtudagskvöldið - ég veit ekki hvað hann er búinn að halda mörg partý síðan hann flutti inn hehehehe hann er alltaf að sýna vinum og kunningjum húsnæðið sem hann er náttúrulega voða stoltur af.
Jæja - ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili
bestu jólakveðjur til allra sem ég hitti ekki fyrir jól
OG JÁ !!! endilega skoðið myndirnar hérna að neðan teknar við ýmis tækifæri af hirðljósmyndara bekkjarins hinni Kóreönsku Na-Ye Kim .... ÉG verð að fara að eignast digital myndavél svo ég geti sjálfur tekið myndir og sett inn hérna
koss og knús
Mummi

Comments:
Post a Comment