<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Wednesday, December 15, 2004

Jæja, þá ættu myndirnar mínar loksins að vera komnar inn og það sem skiptir meira máli þá ættu þær að HALDAST áfram hérna inni... Það er eins og Yahoo-myndaalbúmið á vefnum, sem ég var að nota, breyti alltaf urlinu inná hverja mynd þannig að eftir vissan tíma þá ratar bloggsíðan ekki inná myndina þar sem urlið hefur breyst HEHEHE - þeir skilja þetta sem hafa eitthvað pælt í tölvum að ráði - þið hin... Látið bara eins og þið séuð með á nótunum og verið glöð að myndirnar virki :)
Endilega verið dugleg að senda inn comment hérna að neðan nú eða ef þið viljið eiga við mig orð svona undir "fjögur" þá er bara að senda póst með því að smella á linkinn hérna til hliðar hægra megin á síðunni.
Músíkpróf á morgun og svo heim á laugardaginn VEI VEI VEI - hlakka ekkert smá til !
Bestu kveðjur til allra
Mummi
Comments:
Flottar myndir vantar þegar þú kolfélst fyrir honum ha ha:)
Sjáumst , gangi þér vel í prófonum . Góða ferð
kveðja Inga
 
ohhh.. nú langar mig líka á skauta.. sennilega ekki ráðlagt með bumbubúanum innanborðs..hehehehe...

Góða ferð heim.

Kveðja Þórný
 
Elsku Mummi,

TIL HAMINGJU!!

þín Anna
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?