<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Monday, December 13, 2004

Jæja.... OK !!! Myndirnar eru ekki að virka - held þetta hafi eitthvað að gera með Yahoo myndaalbúmið mitt þar sem ég geymi myndirnar - þarna úti á vefnum einhversstaðar.... - ÉG verð að finna útúr þessu sem fyrst - ekki hægt að láta síðuna standa svona !!!
Minn er að komast í hátíðarskapið - var að hlusta á íslenska jólatónlist á leiðinni heim í kvöld - meðal annars - "ég kemst í hátíðarskap... þótt úti séu snjór og krap... " Reyndar enginn snjór eða krap hérna ennþá .... -Seinni partinn í dag sýndum við Professor Moulton - tónlistarkennaranum sólóana okkar og hópverkin sem við erum búin að vera að semja. Hann gefur okkur einkunn fyrir þetta sem telur ca. 1/3 af heildareinkunn. Gekk ágætlega held ég - er bara rosalega feginn að þetta skuli vera búið. Hann er búinn að tala svo mikið um þetta allt saman og maður er búinn að vera að pæla í þessu endalaust. Áttum semsagt að setja saman annarsvegar sóló og hinsvegar hópverk þar sem við sömdum ryþma og dönsuðum við þá. Hóparnir voru allir með einhver "hljóðfæri" minn hópur t.d. með harðviðarkubba, annar með prik þriðji með hristur og fjórði hópurinn var með kodda. Margt skemmtilegt sem kom útúr þessu öllu. Fyrir sólóinn var svo kroppurinn manns eina hljóðfærið. -Ég er að hugsa um að taka að mér að skemmta á árshátíðum og svona með þessu verki mínu hehehe -Eitthvað í líkingu við Stomp allt saman - fyrir þá sem vita hvað það er.
Á morgun er síðasti kennsludagur - samkvæmt fimmtudagsstundarskrá sem þýðir að það verður annar tónlistartími seinni partinn á morgun. Þá verður farið í undirbúning fyrir próf sem er á fimmtudaginn. Allskonar spurningar varðandi nótnaskrif og svona... skemmtilegt.
VAR hálffúll í morgun - fékk mína fyrstu fjarvist í allan vetur :( -Ég hafði semsagt tekið að mér að prenta út nóturnar að hópverkinu okkar á glærur. Gerði mér ekki grein fyrir því að prentarinn minn myndi taka sér KLUKKUTÍMAOGTÍUMÍNÚTUR !!!!! í að prenta út 12 síður... ARG !!! ERGO = Mummi missti af móderntíma -síðasta tímanum með henni Pam sem er svo æðisleg !!!! - ég náði að horfa á svona seinni helminginn af tímanum hennar. En ég sem hef stært mig af því að vera ekki með eina einustu fjarvist í allan vetur þarf endilega að fá eina næstsíðasta daginn...
Oh well !!!! Það er víst ekki á allt kosið í þessu lífi
Gott fólk - ég læt þetta duga í bili - kem myndunum í lag sem fyrst, haldið bara áfram að tékka :)
ble ble
Mummi
Comments: Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?