<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Saturday, January 22, 2005

BRRRRRRRRR
já - það er sko búið að vera kalt hérna í New York undanfarna viku. Ég hef semsagt labbað af stað í skólann í allt að 15 gráðu frosti - og -15°C er kalt gott fólk !!! ansi kalt. Fólk heldur alltaf að ég sé vanur svona veðri og finnist þessi kuldi bara alltí lagi. Verður bara frekar hissa þegar ég segi þeim að það verði aldrei svona kalt á Íslandi. Allavega ekki á þeim hluta landsins sem ég bý á. Núna er snjór -búið að snjóa síðan á hádegi í dag og spáir áframhaldandi snjókomu fram á hádegi á morgun sunnudag. Það er verið að tala um allt að 12-18 tommur af snjó það er 30-45 cm af jafnföllnum snjó - en svo spáir sko roki á morgun þannig að snjórinn getur fokið í allskonar skafla og læti. Annars fer skólinn bara vel af stað. Ég er miklu ánægðari með ballettkennarann minn núna miðað við þá sem ég hafði þarna seinni helming haustannar. Hún er miklu nær þeim stíl sem ég er vanur og finnst gaman að dansa. Mörg verkefni framundan og er eitt þeirra mjög stórt, hef minnst á það áður hérna held ég - í "leikstjórn og kóreografíu" faginu mínu erum við 2 og 2 saman að fara að vinna verk þar sem við byggjum á texta - fáum tónskáld, búningahönnuð, leikmyndahönnuð og ljósahönnuð allt fólk sem er að læra þetta hér við skólann til að fullvinna verkið með okkur. Ég og Lisa sem er með mér í bekk ætlum að byggja okkar verk á textanum úr Bítlalaginu "Lucy in the sky with diamonds" -hver er Lucy - hvernig persóna er hún. Margar fallegar og skrautlegar lýsingar í þeim texta. Örugglega draumur fyrir búningahönnuðinn.
Fór í gær í The Joyce og sá Savion Glover sem er einn frægasti/besti steppdansari hér á landi um þessar mundir. Hefur hlotið Tony-verðlaun dansað í kvikmyndum, á sviði, í sjónvarpi og í poppmyndbandi með Puff Daddy til að nefna eitthvað. Hann ferðaðist um með Gregory Hines og kom fram með Sammy Davis jr. -Þarna í gær var hann að steppa við klassíska tónlist. Mér fannst hann frábær og það sem hann var að gera. Fannst samt ekki alltaf passa að steppa svona við suma klassísku tónlistina. Kom misvel út það sem hann var að gera.... Lokaatriðið var sérstaklega flott þar sem hann var með klassíska kammerhljómsveit + jasstónlistarmenn sem spunnu útfrá stefinu "Stars and Stripes" og hann steppaði ofan í - með - á móti... Sú sena var bara algjört brill og maðurinn hreinlega stoppaði ekki meðan á því stóð í rúmar 40 mínútur. Hef sjaldan séð mann svitna eins mikið á sviði eins og hann. Það sem var nú samt best við hann er að hann er svo einlægur á sviðinu og laus við allt sem heitir yfirborðsmennska. Hann var bara að gera sitt þarna á sviðinu og ekkert "TARA!!!" í gangi... "sjáiði mig hvað ég er klár" Hann bara steppaði eins og hann ætti lífið að leysa og hafði gaman af því. :) alltaf gaman að sjá svona performans....
Jæja komið miðnætti hjá mér og tími til kominn að fara í háttinn... -ætla að reyna að vera vaknaður kl 10:30 í fyrramálið og hlusta á beina útsendingu á rás 2 á netinu. Viðtal við Maríu Reyndal sem leikstýrði leikritinu sem ég samdi dansana við þarna í fríinu mínu. Spítalaskipið eftir Kristínu Ómarsdóttur í Nemendaleikhúsinu.
Spennandi að heyra gagnrýnina sem mér skilst að eigi að flytja líka...
Bless í bili
Mummi
Comments:
Blessaður Mummi, Varðandi Bítladansinn þá mæli ég með að þið drekkið sama "te" og þeir félagar drukku þegar þeir sömdu lagið.
"Bítladansinn" er svo einstaklega smekklegur titill á verkinu :).

Gangi þér vel í sköflunum þarna úti.

kv.

Arnar Thor
 
Arnar ertu að segja mér að það sé ekki nóg að drekka piparmyntu-teið mitt sem ég er vanur að drekka á morgnana ? -Þarf ég að fara að drekka eitthvað enskt bítlate ? Voru þeir þá í Earl Grey ? eða kannski eitthað svona skrýtið te ? hmmmmmmm
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?