<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Saturday, January 15, 2005

Jæja,
langar til að byrja á að óska öllum gleðilegs árs - sérstaklega þeim sem ég ekki náði að hitta meðan ég var heima.
fannst ég bara verða að setja inn eina færslu hérna - maður er eitthvað svo "Þotuliðslegur" hérna - sitjandi á Logan-flugvelli í Boston eftir millilendingu frá Íslandi og núna bíð ég semsagt eftir fluginu mínu áfram til New York - Kominn í gegnum vegabréfaskoðun og tollinn og allt gekk vel þar. Allir pappírar í lagi og svona :)
Annars var jólafríið nú allt öðruvísi en ég hafði gert ráð fyrir. María Reyndal leikstjóri hringdi semsagt í mig og bað mig að vinna með sér í verkefni með nemendaleikhúsinu, nýtt leikrit eftir Kristínu Ómarsdóttur. Það er skemmst frá því að segja að þetta var voða skemmtilegt tímabil - gaman að vinna með þeim krökkunum en verst að ég næ ekki að sjá frumsýningu hjá þeim sem verður um næstu helgi. En skólinn kallar byrjar núna á þriðjudaginn kemur 18.jan. Ég hlakka nú bara heilmikið til að komast af stað aftur - mörg skemmtileg og spennandi verkefni framundan sem þið fáið að heyra af þegar þar að kemur.
Þá er þessari þotuliðs-dagbókarfærslu lokið í bili hehehe best að koma þessu í birtingu hérna á vefnum
bless í bili
Mummi
Comments: Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?