My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Wednesday, January 26, 2005
jása jása ....
sælt veri fólkið... ég var að spá hvort ég væri að verða amerískari og amerískari með hverjum deginum sem líður hérna. Seinni partinn í dag þegar ég var á leiðinni heim úr skólanum hringi ég eftir lyftunni eins og venjulega (það er sko sérstakt fólk sem keyrir lyftuna upp og niður). Svo kemur lyftan, dyrnar opnast og hvað segi ég við lyftuvörðinn ?... :"Hi MAN!!!!" Mér brá nú bara svolítið þegar þetta datt uppúr mér. -Ekki beint eitthvað sem ég er vanur að segja.
Ég og meðleigjendur mínir áttum alveg gullið móment um daginn - síðasta sunnudag til að vera nákvæmur. Jeffery eldaði handa okkur kvöldmat og svo sátum við og horfðum á Sex and the city í sjónvarpinu. Það voru allskonar umræður hérna um það hvernig þær voru nú að haga sér stelpurnar. Hvort rétt væri að tala svona - fara fram á ákveðna hluti í sambandi og svona .... Allt rosalega merkilegt svona hehehe NEMA HVAÐ - þetta var semsagt þátturinn þar sem mamma hennar Miröndu deyr, allt rosalega sorglegt og vinkonurnar reynast vinir í raun. Fínn leikur í gangi þarna og mikil sorg og erfiðleikar. Alveg í lokin á þættinum er komið að dramatískum hápunkti og allt voðalega fallegt í sorginni. -Tárin voru nú alveg komin fram í augnkrókana á mér og ég hugsaði með mér : "ég get nú ekki látið strákana sjá mig skæla hérna..." og sem ég lít upp - þá erum við allir með tárin í augunum og við það að beygja af !!! Þegar við föttuðum þetta - hvað þetta var nú eitthvað hommalegt allt saman, að sitja skælandi yfir Sex and the city sprungum við allir úr hlátri og veltumst um í dágóða stund á eftir. Frekar fyndin staða sem kom þarna upp hjá okkur.
Þegar ég kom heim í kvöld var svo miði á útidyrahurðinni hjá okkur -stílaður á eiganda 118 Gates Ave. -Frá heilbrigðiseftirlitinu hér í borg - sekt uppá 100$ takk fyrir - fyrir að hafa ekki mokað snjóinn af gangstéttinni hérna eftir hríðina miklu um daginn. Hér er það semsagt á ábyrgð eiganda hússins að gangstéttarnar séu göngufærar og ekki slysahætta fyrir vegfarendur. -Nathaniel, eigandinn að húsnæðinu sem ég bý í var semsagt í burtu og mokaði þar af leiðandi ekki snjóinn af stéttinni. Meðleigjendur mínir mokuðu að framan daginn eftir að hætti að snjóa (það á sko að moka 4 tímum eftir að hættir að snjóa) en Nathaniel dró það semsagt eitthvað að moka stéttina til hliðar við húsið. hehehe -eins gott að vera "on top of things" eins og þar stendur.
Hmmm hvað annað... um helgina síðustu brann stjórnstöð í neðanjarðarlestarkerfinu inni á Manhattan sem hefur sett lestarsamgöngur heilmikið úr skorðum. Ég er reyndar heppinn. Lestin sem ég tek venjulega C-lestin verður ekkert á ferðinni næstu mánuði meðan þetta verður lagað en í staðinn er búið að færa F-lestina sem ég skipti venjulega yfir í til að komast í skólann þannig að ég get tekið hana alla leið núna án þess að skipta. Það er verra ef maður vill komast uppá UWS-upper west side.... gæti tekið langan tíma með einhverjum skiptum og svona.
Jæja -- ætla að láta þetta duga í bili, heimavinnan bíður EN ég er nú að reyna vera duglegri að skrifa hérna - það eru vonandi einhverjir lesendur þarna... endilega haldið áfram að senda mér póst - skrifa comment hérna á síðuna og svo framvegis :)
kærar kveðjur
Mummi

Comments:
Hæ.
Gaman að lesa hvað þú virðist njóta þín þarna í stórborginni. Ég kíki reglulega á bloggið þitt. Svo ekki fara neitt að slappa af með það.
Fyndið með þetta "moment" hjá ykkur félögunum. :oD

Þetta er snilld þetta með snjómoksturinn og sektina... sæi þetta í anda ganga upp hérna heima hahahaha..
Kveðja Þórný Bumbulína
Post a Comment
Kveðja Þórný Bumbulína