<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Sunday, April 10, 2005

Jæja, hér sit ég rétt um hádegi á sunnudegi rauður eins og karfi eftir að hafa setið í eina 3 tíma í sólinni í gær hérna uppi á svölunum okkar. Ég var að lesa fyrir ritgerð sem ég er að skrifa og bara gleymdi mér... Er núna með eina 6-7 lófastóra bletti hingað og þangað um líkamann sem mig svíður svolítið í og svo önnur svæði sem eru líka rauð en ekki eins illa brunnin... :( -Ekki mjög gáfulegt af mér en oh well...
Þessi ritgerð á eftir að taka megnið af mínum annars litla frítíma næstu eina og hálfa vikuna. Hún á að vera amk 10 blaðsíður og verkefnið er semsagt að skrifa sjálfan mig inní danssöguna. Semsagt byggja á heimildum og skrifa ritgerð eins og ég hafi verið á staðnum og upplifað þessa atburði. Svolítið skemmtilegt sko... Ég er að skrifa mig inní sögu "Les Ballets Suédois" sem var sænskur flokkur sem hafði aðsetur sitt í París frá 1920-25 og voru langt á undan sinni samtíð í allskonar nýsköpun. Margt af því sem þau gerðu tilraunir með í sínum sýningum er vinsælt í dansheiminum í dag !!!!
Nú... í vikunni kom hingað blaðamaður frá The New York Times og tók viðtal við okkur sem búum hérna á 118 Gates Avenue - þetta er fyrir fasteignablaðið og á víst að birtast næsta sunnudag. ÉG veit ekki nákvæmlega hvernig þetta kom til EN þeim þótti víst eitthvað forvitnilegt hvernig eigandinn hérna niðri er vinur okkar og kemur of oft upp í kaffi og svoleiðis og við höldum sameiginleg partý og uppákomur. Ekki algengt að leigusalar séu vinir leigjenda sinna held ég. Ég set inn link á greinina í vefútgáfunni hérna næsta sunnudag þannig að þið getið lesið þetta... Það kom hérna ljósmyndari líka og vonandi verður maður á einhverri myndinni líka hehehe. Ég er semsagt ALVEG AÐ MEIKA ÞAÐ hérna í útlandinu :) hehehe -Það fyndnasta af öllu í þessu var samt hvað meðleigjendur mínir Wesley og Jeffery voru stressaðir yfir þessu - sérstaklega myndatökunni. Kvöldinu áður komu Concetta og Anthony sem eru par og góðir vinir Wesleys og Jefferys og aðstoðuðu við fataval... hehehe Þeim strákum fannst rosalega mikilvægt að klæðnaður okkar allra passaði vel saman og við kæmum vel út á myndum. Mér fannst þetta nú nett fyndið en tók bara þátt í leiknum og sýndi þeim nokkrar útgáfur af hugsanlegum klæðnaði fyrir mig - þau voru öll sammála mér um mitt fyrsta val fannst það koma best út. Þannig að allir voru ánægðir. Anthony og Concetta eru að fara að gifta sig núna í maí og það var Wesley sem kynnti þau og kom þeim saman -voða sætt allt saman. Allt húsið er undirlagt málverkum eftir Anthony - hann er sko listmálari og missti leigusamning á studioinu sem hann vann í ... til að koma málverkunum á öruggan stað var ákveðið að koma með megnið af þeim hingað og núna erum við með stór málverk eftir hann á veggjunum um alla íbúð. Ég er með eitt skemmtilegt verk eftir hann hérna inni hjá mér... Mynd af manni sem er víst mikill aðdáandi verka hans og Anthony málaði af honum -skemmtilegur karakter sem er þarna á myndinni.
Ég fór á Jerome Robbins dans-bókasafnið í Lincoln Center um síðustu helgi að afla mér heimilda fyrir ritgerðina og þetta er í einu orði sagt frábært safn. Þarna er mikið safn bóka, blaðaúrklippa, videoupptökur af verkum og svo framvegis og framvegis allt um dans og tengt dansi. Ég gat semsagt horft á sænska heimildarmynd um þennan dansflokk sem ég er að skrifa um OG horft á upptöku af sýningu sem Konunglegi Sænski Ballettinn setti upp 1996 til að minnast þessa sænska dansflokks og þeirra afreka. Þetta var reyndar uppfærsla byggð á heimildum sem eru til um verkin en ekkert þeirra hefur í rauninni varðveist í upprunalegri mynd. -Þegar ég mætti þarna voru amk 6-7 nemendur úr skólanum mínum að vinna að heimildaöflun fyrir ritgerðirnar sínar. Ég held að ég eigi örugglega eftir að fara þarna aftur og fá að horfa á fleiri videoupptökur af sýningum... fínt að nota rigningardaga í það :)
Innkaupamáti framtíðarinnar ...? FRESHDIRECT.COM ÉG er að prófa þetta núna í dag - pantaði vörur í gær og fæ þær sendar hingað heim milli 3 og 5 í dag. Maður velur vörur í körfuna sína og tékkar sig út - velur afhendingartíma og svo er bara að bíða. Maður þarf að versla fyrir amk 40$ og svo er 5 $ heimsendingargjald. Mér sýnist þetta oft vera ódýrara heldur en kjörbúðin hérna í hverfinu sem er ekki besta búð í þessari borg hvað varðar vöruúrval og gæði. Fresdirect á hinsvegar að vera með mikla gæðavöru - allt mjög ferskt og gott. Þetta er allavega mjög þægilegt...
Jæja - ég ætla að snúa mér aftur að ritgerðinni minni sólarkveðjur héðan úr 16°C í stóra Eplinu. Og mínar dýpstu samúðarkveðjur til ykkar í kuldakastinu heima hehehe Annars skilst mér nú að það sé aðeins farið að hlýna aftur...
koss og knús
Mummi
Comments: Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?