My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Tuesday, April 26, 2005
Jæja,
nú smella bitarnir í púsluspilinu á sinn stað einn af öðrum. Kláraði ritgerðina mína góðu, nóttina áður en ég átti að skila henni. Ca. 15 bls þar og ég hefði getað skrifað miklu meira. Nú svo var sýningin okkar um helgina - þessi stóra með leikmynd+búningum+ljósum+frumsaminni tónlist :) -Gekk bara mjög vel og við Lisa vorum rosa ánægð með útkomuna þessi mynd hérna er af dönsurunum okkar, mér og Lisu. Litagleðin í fyrirrúmi enda varla annað hægt þegar maður er að semja verk um Lucy in the sky with diamonds...

Í dag kláraði ég svo sóló sem ég þurfti að semja fyrir sjálfan mig í "Dance Theory&Composition" tímum. Sóló sem við erum búin að vera að semja smám saman síðan um áramót... Sýnum hann reglulega í tímum og kennarinn gefur okkur krítík á hann og við endurbætum. Ég sýndi í dag og hún var ekki ánægð með tvo staði í sólónum... Vildi að ég sýndi meiri hugmynda-auðgi... Mér leið eins og ég væri að kreysta vatn úr steini en náði að breyta og laga áður en dagurinn var búinn og sýna henni aftur og viti menn !!! "This was beautiful" ..."Very nice !!" "Beautifully danced as well".... Þannig að þá er það frá - kennarinn hún Phyllis (hef talað um hana áður...) búin að samþykkja þetta og ég þá væntanlega formlega útskrifaður úr þessum kúrsi. Við eigum að sýna sólóana okkar á morgun fyrir alla kennarana og aðra nemendur skólans og Phyllis ætlar líka að taka þetta uppá video. Ég er þvílíkt ánægður að þetta sé frá. Núna er þriðjudagskvöld og síðasti kennsludagur er næsti mánudagur. Músíkpróf á miðvikudaginn í næstu viku og þá er ég búinn með þetta fyrsta ár mitt hérna úti og hálfnaður með Masterinn :) -Maður verður nú bara stoltur af sjálfum sér við tilhugsunina.
Jæja - ég er að hugsa um að horfa á smá DVD áður en ég fer að sofa. Dreifa huganum svolítið
Meira seinna...
koss og knús til þeirra sem vilja svoleiðis - aðrir fá bara klapp á bakið hehehe
Mummi

Comments:
Frábært, gaman að heyra hvernig þeta gengur allt saman.
Fannst myndin af ykkur þarna dáldið skondið, fannst ég væri að skoða mynd af áhugaleikhópi frá Húsavík eða eitthvað álíka ;)

ég myndi nú ekki tala niðrandi um húsavík í mín eyru sko... -ÉG er ættaður þaðan og bjó þar til ég var 5 ára. Hef meira að segja heyrt að leikfélagið á húsavík sé bara nokkuð gott sko !!! ;)
Heyr heyr Mummi!!! Þau eru að sýna leikrit núna sem heitir Sambýlingarnir.. hahahaha.. nokkuð gott leikrit fyrir þau. En það gengur svo vel að mér skilst að þau komi með það hingað suður til sýningar.
Kveðja Þórný Húsavíkurmær ;-)
Kveðja Þórný Húsavíkurmær ;-)
Hæ Mummi! Sá síðuna á fermingarafmælisspjalli. Gaman að vita hvað þú ert að gera. Gangi þér vel í prófunum ;-) Sjálf er ég í Master í heimspeki út í Berlín og verð til júlí, og því sleppi ég fermingarafmælinu. Heiða
Post a Comment