<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Sunday, April 17, 2005

Jæja...
eins og ég lofaði í síðasta bloggi ... New York Times er með viðtal við eiganda hússins sem ég bý í í sunnudagsblaðinu núna í dag. Það kom blaðamaður í heimsókn hérna um daginn og svo ljósmyndari daginn eftir... Því miður birtist nú engin myndanna af mér og meðleigjendum mínum EN -nafnið mitt kemur þó allavega fram þarna í greininni og hvernig stendur á því að ég endaðí hérna sem meðleigjandi hehehe.
Hérna er GREININ TAKIÐ EFTIR ÞIÐ VERÐIÐ AÐ SMELLA Á 2 eða NEXT NEÐST Á SÍÐUNNI TIL AÐ FÁ FRAMHALD GREINARINNAR ÞAR SEM MITT NAFN KEMUR FRAM :)
Annars er það bara ritgerð og æfingar og önnur minni verkefni sem bíða mín í dag - þarf að vera mættur uppí skóla klukkan 2 fyrir æfingu á verkinu okkar um hana Lucy... frumsýning á því núna á föstudaginn kemur spennó spennó :) Þarf að skila stóru ritgerðinni minni amk 10 síður á miðvikudaginn - er búinn að vera í mikilli rannsóknarvinnu og upplýsingaöflun fyrir hana hingað til og nú þarf ég bara að koma því öllu niður á blað.
Á miðvikudaginn mætti Ernesto hin hliðin á sjálfum mér í leiklistartíma og vakti mikla lukku hehehe - við áttum að velja okkur úrklippu með mynd af einhverjum og mæta svo í tíma sem þessi karakter og svara spurningum kennarans og hinna í bekknum um okkar líf... Við áttum semsagt að skapa sögu fyrir manninn á myndinni - Ernesto -sem ég lék er semsagt ólöglegur innflytjandi frá Ecuador - algjör höstlari og svona hehehe. Ég er búinn að vera að horfa á fullt af latino-gæjum í lestinni og svona til að pikka upp hvernig þeir hreyfa sig og svona - notaði það svo þegar ég var Ernesto. Ferlega skemmtilegt verkefni :)
Jæja - ætla að reyna að vinna í ritgerðinni minni áður en ég fer á æfingu.
Bless á meðan
Mummi
Comments:
Þjóðarstoltið blossaði upp þegar maður sá nafnið þitt í greininni.

til lukku,

Arnar Thor
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?