My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Sunday, December 04, 2005
Jahérna ég segi ég nú bara...
komið fram í Desember og mér finnst næstum eins og ég sé nýkominn út aftur. Þessi haustönn er búin að vera troðin af ýmsum verkefnum og nóg að gera eins og sést kannski best á því hvað ég hef verið óduglegur við að skrifa hérna á bloggið mitt.
Kláruðum sýningar þessarar annar núna í gærkvöldi -ég dansaði þar sólóinn minn "The F.N. Syndrome" við ágæta lukku og svo í tveimur öðrum verkum eftir tvo bekkjarfélaga mína. Næsta vika ætti svo að vera róleg að mestu -engar æfingar bara venjulegir tímar. Þarf reyndar að klára að skrifa ritgerðina mína um Andrew Lloyd Webber fyrir næsta mánudag. Fínt að fá tíma í að klára það í rólegheitum.
Ég verð eiginlega að segja að ég hef einhvern veginn ekki komist í mikið jólaskap - hef verið alltof upptekinn til þess að pæla mikið í jólum og jólastússi. Hlakka nú samt mikið til að koma heim aftur og hitta fjölskylduna og vinina aftur. Maður sér jólaskreytingarnar birtast í búðum og á götum úti smám saman. Finnst reyndar alltof langt síðan ég sá fyrstu skreytingarnar í búð einni sem ég labba oft framhjá á leið minni heim úr skólanum.
En það sem er búið að vera í gangi er t.d. þetta : sýningarstjóri fyrir showing I sem var sýning á verkum nemenda í skólanum - hér er mynd af mér í stjórnklefanum ásamt Vershawn sem stjórnaði ljósunum og Köru sem stjórnaði hljóðinu :)

Svo kom Showing III þar sýndi ég dúett sem ég samdi fyrir mig og Christy og Margrét Eir söng með okkur á sviðinu án undirleiks kom vel út þó ég segi sjálfur frá hehehe

Svo kom að sýningu "Second Avenue Dance Company" sem er dansflokkur skólans - þar samdi ég sóló í tveimur pörtum mynd vikunnar hérna að ofan er úr fyrri hlutanum - hér er mynd úr seinni hlutanum.

Ætli strákurinn hafi týnt fötunum sínum á leiðinni?
Læt þetta gott heita í bili - alltaf gaman að fá póst og komment svítí darlíngs
bless í bili og sé vonandi sem flesta um jól og áramót - lendi að morgni 20.des og verð til 15. janúar.
koss og knús
Mummi

Comments:
Flottur Mummi. Allt sem þú tekur þér fyrir hendur er gert með "bravör"..
kveðja og hafðu það gott,
Arnar Thor
kveðja og hafðu það gott,
Arnar Thor
Gaman að sjá myndir af því sem þú ert að gera.. vildi samt helst sjá videó af þessu.
Hafðu það gott
Kveðja Þórný
Hafðu það gott
Kveðja Þórný
já takk fyrir það
stefnan er sko að opna alvöru heimasíðu þar sem ég gæti haft klippur af verkunum mínum og svona - Ég er bara í vandræðum með að ákveða hvaða lén ég á að nota... :(
allar hugmyndir vel þegnar
áskil mér samt rétt til að velja og hafna hehehe

Hæhæ.
Þetta er bara allt flott hjá þér Mummi. Og það er líka gaman að sjá myndir af þessu. Vonast til þess að sjá þig um jólin,
Kveðja,
Guðmundur Ari

Glæsilegt hjá þér... skil vel að þú hafir ekki mikinn tíma til að hugsa um jól... ég segi það sama sit sveitt og reyni að skrifa hel... mastersritgerðina... svo ég geti komið út í vor og útskrifast með þér ;o) hehe.... vona að ég sjái þig eitthvað í fríinu
kveðja SB
Post a Comment
kveðja SB