<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Saturday, December 17, 2005

jæja LOKSINS - er þessari önn lokið - kláraði 20.aldar tónlistarsögu prófið í gær og gekk bara alveg rosavel held ég. Þurftum að standa klár á 23 tónverkum og tónskáldum, þekkja verkin þegar þau voru spiluð og svara ýmsum spurningum fyrir utan tónskáld og nafn á verkinu. Þeir sem þekkja mig vita hversu mikinn áhuga ég hef alltaf haft á að þekkja tónlist -ein vinkona mín hérna vill endilega senda mig í sjónvarpsþátt hérna sem heitir "Name the Tune" - kannski eitthvað svipað og "Það var lagið" --hef ekki séð þann þátt ennþá heima. En allavega -þá þekkti ég hvert einasta verk -spurningin er bara hvort hin svörin mín hafi verið nógu ýtarleg til þess að ég fái A -í einkunn. Ég fékk ritgerðina mína um Andrew Lloyd Webber, til baka í gær B+ fyrir hana :( ég varð eiginlega svolítið spældur - er kannski að gera alltof miklar kröfur til sjálfs míns. Annars er fyrsta opinbera einkunnin komin "Dance for the Camera" = A sem er hæsta einkunn -ég náttúrulega bara rosa ánægður með það. Það eru bara þessi tvö fög sem ég fæ einkunn fyrir - tónlistarsagan og "dans fyrir myndavél" -annað er PASS/FAIL þ.e. annað hvort nærðu eða ekki. Hef nú engar áhyggjur af því hvort ég nái eða ekki. Ég er ekki að standa mig það illa að ég sé að falla - fyrir utan þá staðreynd að ég hef aldrei á ævinni fallið í neinu fagi. Fer sko ekki að taka uppá því núna á gamalsaldri.
Nú styttist óðum í það að maður fari heim aftur - hlakka alveg svakalega til að sjá fjölskylduna og vinina aftur. Ætla að nota helgina í jólagjafakaup og svona bara að njóta þess að vera til og þurfa ekki að mæta í skólann, skila verkefnum og svona.
Ég er að fara núna á eftir að sjá Alvin Ailey sem er einn af frægustu dansflokkum Bandaríkjanna. Hef ekki haft tækifæri til að sjá þau dansa ennþá þannig að þetta ætti að vera skemmtilegt.
Það var nú mikið panik í gangi hérna á fimmtudagskvöld og aðfararnótt föstudagsins. Ég er eiginlega svolítið hissa á að hafa ekkert séð um það í pressunni heima. TWU-sem er verkalýðsfélag þeirra sem vinna við almenningssamgöngur hérna í borginni hótuðu verkfalli frá miðnætti á fimmtudag sem hefði þýtt að allar almenningssamgöngur hefðu lamast - engir strætóar engin neðanjarðarlest EKKERT. Sjö til átta milljónir manna strandaglópar og í erfiðleikum með að komast til vinnu, í skóla og svo framvegis og svo framvegis. Og ég átti að mæta í þetta próf mitt klukkan 10 á föstudagsmorgun. Þetta leit ekkí vel út og ég var undir það búinn að labba í skólann sem tekur mig líklega 1.5 -2 tíma. Þeir ákváðu samt á síðustu stundu að fresta verkfalli fram á miðnætti á þriðjudag ef ekki verður búið að semja fyrir þann tíma. Þá verð ég nú reyndar farinn heim en þetta gæti orðið meiriháttar mál ef fólk ekki kemst leiða sinna með almenningsfaratækjunum. Borgaryfirvöld eru tilbúin með viðbragðsáætlun - einkabílar fá t.d. ekki að fara inná Manhattan nema þeir séu með 4 farþega. Þannig að fólk verður að bjóða öðrum far til þess að fá að fara á sínum eigin bíl inní miðborgina... Nokkuð sniðugt plan svona þrátt fyrir allt vesenið.
Jæja - ætla að hætta þessu í bili - gera mig klárann í leikhúsið
Lendi að morgni 20.desember og verð með sama gamla GSM númer fyrir þá sem vilja ná í mig...
Bless í bili
Mummi
Comments: Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?