My Links
- Íslenskt Blogg
- My Flickr Photos
- MummiOnline ~ my website (work in progress)
- Iceland Dance Company
- NYU
- Times Square LIVE
- Accomodation in Reykjavík
- Equinox...
- Edit-Me
Archives
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 08/01/2005 - 09/01/2005
- 09/01/2005 - 10/01/2005
- 10/01/2005 - 11/01/2005
- 11/01/2005 - 12/01/2005
- 12/01/2005 - 01/01/2006
- 02/01/2006 - 03/01/2006
- 03/01/2006 - 04/01/2006
- 06/01/2006 - 07/01/2006
- 08/01/2006 - 09/01/2006
- 09/01/2006 - 10/01/2006
- 10/01/2006 - 11/01/2006
- 11/01/2006 - 12/01/2006
- 12/01/2006 - 01/01/2007
- 01/01/2007 - 02/01/2007
- 02/01/2007 - 03/01/2007
- 03/01/2007 - 04/01/2007
- 04/01/2007 - 05/01/2007
- 05/01/2007 - 06/01/2007
- 06/01/2007 - 07/01/2007
- 08/01/2007 - 09/01/2007
- 12/01/2007 - 01/01/2008
writings for my International friends...
Sunday, February 12, 2006
Jæja,
það er nú ekki annað hægt en að blogga svolítið eftir allar kveðjurnar og svona.
Afmælisdagurinn var alveg ágætur - vaknaði reyndar kl 8:30 sem var nú ekki alveg það sem ég hafði ætlað mér. Var svona að plana að sofa út en það var ekki alveg að gerast. Svo fór ég í bæinn seinni partinn út að borða með nokkrum bekkjarfélögum á "Ponto Vecchio" ítalskan veitingastað í "Village" mjög fínt. Eftir það fórum við á "Duplex" sem er píanóbar/Kabarettleikhús. Þar var Candy Samples (dragdrottning) með klukkutíma söngshow og Margrét Eir söng einn dúett með henni. Svo fékk ég afmælissönginn eftir það að beiðni Margrétar var voða fínt. Ég, Ben og Erin fórum svo heim til Erinar eftir þetta allt og sátum þar í svolítinn tíma að spjalli og borðuðum kökur sem við keyptum á heimleiðinni - þið munið New York, borgin sem aldrei sefur. Svo var nú eitthvað vesen á lestunum í nótt þegar ég var á leiðinni heim - þurfti að bíða í 45 mínútur eftir lestinni minni, var ekki kominn heim fyrr en kl 3, einum og hálfum tíma eftir að ég lagði af stað heim. Á ekki að taka nema 30 mínútur fyrir mig að fara heim.
Í gærkvöldi byrjaði svo að snjóa - loksins. Janúar búinn að vera alveg hreint óvenju hlýr - fór uppí 15°C nokkra daga og ég sem var búinn að kaupa nýja húfu og fleira hlýtt til að halda á mér hita í kuldunum sem geta orðið hérna. Núna þegar þetta er skrifað er enn að snjóa og talað um að þetta sé önnur mesta snjókoma sem orðið hefur hérna í New York - snjór uppað hnjám og flugvellir lokaðir. Ég sit bara inni í rólegheitum í dag - horfi á Eurovision þáttinn frá í gær - skrifa blogg og þarf svo að skrifa 2 blaðsíðna ritgerð fyrir morgundaginn um leiksýningu sem ég sá um daginn.
Skólinn er alveg á fullu að venju - er að vinna í nýju video-verkefni, búinn að filma og klippi það saman á næstu dögum. Verkefnið var semsagt að semja 25sekúndna dans-frasa og filma frá ýmsum sjónarhornum og klippa svo saman í mynd sem er 2-5 mínútur. Video-tíminn og tónlistartíminn minn eru svo að vinna saman - það er þeir sem eru að læra að semja tónlist fyrir videobekkinn. Þar sem það eru bara 4 í tónlistinni en 8 í videotímanum þá þurfum við "tónskáldin" að semja tónlist fyrir 2 myndir. Ég sem tónlist fyrir mína eigin mynd og svo líka fyrir bekkjarsystur mína.
Fór um daginn á sýningu sem er í gangi hérna í borginni BODIES THE EXHIBITION -Ekki fyrir mjög viðkvæma en rosalega merkilegt. Þetta eru semsagt alvöru mannslíkamar sem búið er að vinna á einhvern sérstakan hátt þannig að þeir haldast svona. Sýningunni er skipt upp eftir hinum ýmsu hlutum líkamans. Fyrst beinagrindin -þá vöðvakerfið, taugakerfið, meltingarkerfið og svo framvegis. Búið að opna líkamana þannig að maður sér þessa hluti alla, engin húð heldur sér maður alla vöðva og svona. Mér skilst að þeir nái vökvanum út einhvernveginn og sprauta svo silikoni inní vefina til að þetta harðni allt saman. MJÖG merkilegt að skoða allt saman, ég var mjög hissa á því hvað ég var eitthvað rólegur yfir þessu. Þetta var sett upp þannig að þetta var ekkert ógeðslegt. Í lok sýningarinnar var svo eitt lungnapar og tveir heilar sem maður gat skoðað og handfjatlað. Ég fékk semsagt að halda á heilanum þarna.... frekar skrýtin tilfinning sko. Áferðin er víst ekki alveg eins og hún er í alvörunni þar sem sílikonið breytir henni eitthvað. Heilinn var svona svolítið gúmmíkenndur viðkomu og ótrúlega þungur miðað við stærð. Merkileg sýning þetta...
Ég er annars voða latur eitthvað við að blogga þessar vikurnar eins og þið hafið eflaust tekið eftir öll sömul - hugurinn er voða mikið eitthvað á framtíðinni og hvað tekur við núna þegar námi líkur. Á þriðjudaginn kemur eru 100 dagar fram að útskrift - og ef ég á að dæma af reynslunni munu þessir 100 dagar líða hjá áður en ég veit af. -Ég ætla að sækja um svokallað "optional practical training" sem innifelur að ég fæ atvinnuleyfi til að vinna við dans í eitt ár. Er svona aðeins farinn að skoða það sem er í boði með það... keypti mér eintak af "Backstage" tímaritinu sem kemur út vikulega og auglýsir öll inntökupróf fyrir söngleiki, leikrit, sjónvarp og hin ýmsu dansdjobb. Það er nú nett spennandi verð ég að segja að prófa sig á þeim markaði. Best launuðu djobbin eru söngleikirnir á Broadway - þar er hópdansari með amk 1200$ á viku í laun eða um 75.000 krónur - Getur alveg farið uppí 2000$ á viku fyrir stærstu showin. Ef maður dansar í dansflokki eru launin miklu lægri fyrir utan að það er ekki alveg það sem mig langar til þess að vera að gera.
Ég læt ykkur vita þegar eitthvað gerist meira í þessum málum. Svo er alveg spurning um að skoða danskennslu - sá auglýsingu um kennarastöðu á Hawaii :) -Væri ekki ónýtt að búa þar og kenna hehehe.
Svo langar mig mikið að gera mínar eigin dansmyndir - er kominn með 4 dansara í mynd sem fæddist í kollinum á mér fyrir jól í tónlistarsögu. Ætla að filma hana núna í vor og helst klára áður en skólanum líkur.
Segi bara bless í bili - ætla að reyna að læra eitthvað núna
koss og knús og takk fyrir allar afmæliskveðjur -Skrýtið hvað 35 virkar eitthvað miklu eldra en 34....
Mummi
PS - þið sem "gleymduð" að senda kveðjur - ég minni ykkur á að ég á aftur afmæli eftir eitt ár hehehe - getið ekki sagt að ég hafi ekki minnt ykkur á ;)
PPS -hver er Flísteppaskvísa?

Comments:
Flottur dagur greinilega og sá á CNN að menn eru eitthvað að hafa áhyggjur af snjónum í BNA (eng. USA). Ég hef nokkuð góða hugmynd um hver flísteppaskvísan er.
heyrumst.
Arnar Thor
heyrumst.
Arnar Thor
Vá en skemmtilegt, það er nóg að gera hjá þér greinilega.... og vertu ekkert að fara út.... það er varað við því að vera á ferli... Ég meina það er nú snjóstormur.. hehe ;o)
jæja frændi.. ekkert að gerast hehehe.. alveg þyrstir í nýtt blogg og nýjar myndir
Kveðja Þórný og co
Post a Comment
Kveðja Þórný og co