<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Wednesday, January 24, 2007

jæja - er ekki alveg kominn tími á nýtt blogg gott fólk?

jól og áramót komu og fóru í faðmi fjölskyldunnar og liðu þessar tvær vikur sem ég var á Íslandi alveg ótrúlega hratt... Ég flaug aftur hingað út til New York 5.janúar - sú ferð gekk ágætlega nema maðurinn sem skoðaði pappírana mína ætlaði ekki að hleypa mér inní landið fyrst - vildi halda því fram að þeir væru útrunnir þar sem á fremstu síðu stóð að gert væri ráð fyrir að ég lyki námi í maí 2006. Ég benti honum kurteislega á að jú - ég hefði vissulega lokið námi en væri núna í þessu OPT prógrammi þar sem ég mætti vinna í eitt ár að lokinni útskrift - með það fór hann með pappírana mína á bakvið til yfirmannsins og spurðist fyrir ... Kom svo til baka og byrjaði að stimpla án þess að segja orð hehehe - Merkilegt hvað svona embættismenn kunna ekki á kerfið stundum. Vita í rauninni ekkert hvað þeir eru að segja hvernig þetta virkar allt saman. Sem betur fer vissi ég nákvæmlega hvernig þetta gengur allt fyrir sig :)
Nú ég byrjaði svo í vinnunni minni hjá Equinox á mánudagsmorgni 8.janúar - ég þarf að vakna klukkan 3:15 á mánudögum til að vera mættur klukkan 5:15 í vinnuna. Ég er með opnunarvaktina og þar að sjá til þess að allt sé klárt í gymminu þegar fólkið byrjar að streyma inn kl 5:30 -og ég sver ! það er virkilega fólk sem töltir þarna inn milli 5:30 og 6 á morgnana til þess að þjálfa líkamann!!! Ég hristi nú bara hausinn yfir þessu fólki satt best að segja.
Ég er svo búinn að vera á námsskeiðum í vöðvafræði og þessháttar til að undirbúa mann sem þjálfara - maður þarf að standa klár á þessu öllu þegar maður fer að búa til prógramm fyrir kúnnana. Sumt er nú bara upprifjun fyrir mig en ég er líka að læra margt nýtt í þessu öllu sem er bara gaman. ÉG ætti að fá grænt ljós í dag til þess að framkvæma svokallað "Equifit" á fólki sem er einhverskonar þol/styrkleika/liðleikapróf sem við gerum - förum yfir helstu markmið fólks og reynum að finna lausnir handa því. Þetta er í leiðinni leið fyrir okkur að reyna að næla okkur í viðkomandi og fá þau í einkaþjálfun hjá okkur... Allt voða kapítalískt og svona... hehehe
Ég þarf semsagt að fara að leita leiða til að selja mína þjónustu hérna....
jæja - ætla að láta þessu lokið í bili - það var einhver hellingur meira sem ég var að spá í að skrifa um en það er allt dottið úr mér, ætla að fara að gera mig klárann í vinnuna - er á vakt í dag frá 16-21, loka á morgun þegar ég vinn frá 18-23.... Svo er ég líka á vakt á laugardögum frá 10-14.
Koss og knús,
Mummi
Comments:
3:15!!!!! vó.. maður er varla sofnaður.. gangi þér vel.. sæi mig í anda..hahaha.
 
Hæ hæ.... gaman að heyra í þér, leiðinlegt að hitta þig ekkert um jólin... en tíminn bara flýgur frá manni. Mér er hugsað til þín þessa dagana þar sem ég er að setja aftur upp Hárið, nú í Hvassó... og stelpurnar eru að reyna að semja dans við Hár ;o) gengur upp og niður.... og þú hefur alla mína samúð í kuldanum í New York svona snemma á morgnana.. man er ég átti að mæta á Farmers market kl. 5 á morgnana.... :o(
Bestu kveðjur
 
Blessaður gamli...samkvæmt dönskum tíma þá eru tæpir 3 tímar í að þú fyllir 3ju dúsínuna í árum talið.

Til lukku elsku besti vinur og vonandi muntu eiga ljómandi sunnudag þarna í stóra eplinu.

kv.

Arnar Thor iðjuleysingi
 
Hæææjjjj elsku besti Mummi minn,
Hér færðu einn rafrænan slummukoss, kissí, kissí, í tilefni af afmæli þínu. Hafðu það gott í dag!
Kveðja
Friðrika
 
Til hamingju með afmælið elzku frændi :*

Kærar kveðjur, KnúZ og Kossar,
Guðný Þóra, Ásgeir & Dreki.
 
Hæ hæ.. elsku frændi.. til lukku með daginn þinn í gær..

Knús, kram og kossar

Kveðja Þórný
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?