<$BlogRSDURL$>

writings for my International friends...

Monday, April 02, 2007

Mummi -Trainer of Stars...
þetta er búið að vera fyrirsögnin mín á MSNinu mínu núna í einhverja daga og hún Þórný frænka mín var að biðja um útskýringu á því hehehe - mér er það náttúrulega bara ljúft og skylt.
Einn kúnnanna minna sem ég er búinn að vera að þjálfa núna í 1.5 mánuð líklega er 20 ára strákur voða duglegur og ákveðinn í að koma sér í mjög gott form. Hann stefnir á nám við einkaþjálfunarskóla hér í borg núna í apríl og flutti hingað fyrir kannski 2 mánuðum síðan frá Illinois. Það var svona það sem ég vissi um hann í megindráttum. Mér fannst nú reyndar soldið skrýtið hvernig hann hafði efni á að borga 240$ á viku í einkaþjálfun ofan á mánaðargjaldið hjá Equinox sem er nú ekki ókeypis eins og fólk getur getið sér til um sem skoðar vefsíðuna þeirra.
Nema hvað - á miðvikudaginn síðasta vindur Robin vinkona mín, fyrrverandi bekkjarsystir og núverandi meðþjálfari sér að mér og spyr hvort ég viti hvað kúnninn minn hafi af atvinnu...? -Ég svaraði náttúrulega bara því til að hann væri nýfluttur til borgarinnar og á leiðinni í einkaþjálfaraskóla...
Hennar svar:
...."He's a porn-star" HEHEHE - Takk fyrir Mummi kallinn er semsagt að þjálfa klámmyndaleikara. Ég var mjög hissa því hann virkar mjög feiminn á mig og rólegur. Hann er ekta svona "All american pretty boy" eins og maður sér þá í mörgum venjulegum bíómyndum og myndirnar sem hann leikur í gera víst alveg út á það líka...
Ég hef nú ekkert rætt þetta við hann blessaðann enda kemur mér það svosem ekkert við - ég skil það nú samt betur nú að það er mjög mikilvægt fyrir hann að vera í góðu formi og það er eitthvað sem ég get sko alveg hjálpað honum með. Á einum mánuði náðum við t.d. fituprósentunni hans niður úr 11.6% í 9.8% og vigtin stóð í stað - náðum semsagt að skipta út þessari fitu fyrir vöðva :) Ekki slæmt það...
Af öðrum stjörnum má nefna t.d. að ég var kallaður inná skrifstofu um daginn til að hringja í meðlimi stöðvarinnar sem eiga Fitnesspróf og frían tíma í einkaþjálfun inní kerfinu en hafa einhverra hluta vegna ekki notfært sér það. Þessir tímar renna út venjulega eftir 3 mánuði held ég og því vorum við að hringja til að fá fólk til þess að nýta sér þetta. Nema hvað á listanum sem ég notaði til að hringja hvaða nafn haldiði að hafi verið þar á undan manneskjunni sem ég hringdi í...? Sú sem var í þessum úthringingum á undan mér fékk semsagt að hringja í þennan fræga leikara og hann svaraði víst til og með !!!!!
smá trommur ......
Jú leikarinn var Kiefer Sutherland. :)
Hún Alicia kollegi minn fékk semsagt að hringja í hann og bjóða honum að koma í frían prufutíma og svona hehehe - fylgdi ekki sögunni hvort hann hefði bókað tíma eða hvað... þarf að spyrja hana að því við tækifæri.
Annars er ég svo blindur á þessar stjörnur sem koma víst reglulega í gymmið. Ég kippti með mér tveimur slúðurblöðum úr vinnunni um daginn sem einhver hafði skilið eftir og þar sem ég fletti í gegnum þetta og skoðaði myndir af hinum ýmsu frægu leikurum og söngvurum var ég "já ok er þetta hún ... svo þetta er hann já ... " ég fylgist sko ekki nógu vel með greinilega.
Sá eini sem ég sé reglulega - síðast bara núna í morgun er Nigel Barker sem er afskaplega fallegur maður -ljósmyndari og fyrrum fyrirsæta og líklega þekktastur sem einn dómaranna í sjónvarpsþáttunum "Americas Next Top Model"
nóg af frægum í bili... þau eru sko ekkert merkilegri en ég hehehe
Comments:
coool... ég hefði reyndar aldrei getað hringt í Kiefer.. ég hefði bara andað í síman.. hahahaha.. mjög smekklegt.

Það hafa nú margar stjörnurnar byrjað í pornstardæminu.. svo bíddu bara.. ;-)

Ef Kiefer mætir þá bið ég auðvitað að heilsa honum.

Kv Þórný
 
Post a Comment

This page is powered by Blogger. Isn't yours?